Fréttablaðið - 12.08.2010, Blaðsíða 64

Fréttablaðið - 12.08.2010, Blaðsíða 64
44 12. ágúst 2010 FIMMTUDAGUR Laugardalsvöllur, áhorf.: 3327 Ísland Liechtenstein TÖLFRÆÐIN Skot (á mark) 9–4 (4–1) Varin skot Árni 0 – Bicer 3 Horn 5–4 Aukaspyrnur fengnar 23–14 Rangstöður 1–2 Ísland (4-3-3): Árni Gautur Arason, Grétar Rafn Steinsson, (74., Arnór Sveinn Aðalsteinsson), Sölvi Geir Ottesen, (49., Ragnar Sigurðsson), Kristján Örn Sigurðsson, Indriði Sigurðsson, Aron Einar Gunnarsson (65., Guðmundur Kristjánsson), Ólafur Ingi Skúlason, (77., Matthías Vilhjálmsson), Eiður Smári Guðjohnsen (65., Veigar Páll Gunnarsson), Arnór Smárason (84., Ólafur Páll Snorrason), Rúrik Gíslason, Heiðar Helguson. 1-0 Rúrik Gíslason (20.) 1-1 Michael Stocklasa (69.) 1-1 Anthony Buttimer, Írland. Vináttulandsleikir: Bandaríkin-Brasilía 0-2 - Neymar, Pato. Suður Kórea-Nígería 2-1 Y. Bit-Garam og C.H. Jin - P. Odemwingie. Finnland-Belgía 1-0 Vincent Kompany, sjálfsmark. Svíþjóð-Skotland 3-0 Zlatan Ibrahimovic, Emir Bajrami og Ola Toivonen. Úkraína-Holland 1-1 O. Aliyev - J. Lens. Danmörk-Þýskaland 2-2 D. Rommendahl, M. Junker - M. Gomez, P. Helmes. Svartfjallaland-Norður-Írland 2-0 R. Dalovic 2. Írland-Argentína 0-1 Angel Di Maria. England-Ungverjaland 1-2 Jagielka sjálfsmark, Gerrard 2. Noregur-Frakkland 2-1 Erik Huseklepp 2 - Hatem Ben Arfa. Mexíkó-Spánn 1-1 Javier Hernandez - David Silva. ÚRSLIT Kr. 86.900 Aguamarina Netverð á mann, m.v. 2 fullorðna og 2 börn, 2-11 ára, í íbúð með 1 svefnherbergi í 11 nætur. Verð m.v. 2 í studio kr. 109.980.- á mann. Sértilboð 17. ágúst. Ótrúleg kjör! Heimsferðir bjóða ótrúlegt tilboð á síðustu sætunum í spennandi sumarleyfi sferðir til eins allra vinsælasta sólaráfangastaðar Íslendinga, Costa del Sol. Fjölbreytt gisting í boði á ótrúlegum kjörum. Costa del Sol býður allt það helsta sem maður getur óskað sér í fríinu. Gríptu þetta einstaka tækifæri til að njóta lífsins á þessum vinsæla áfangastað í sumarfríinu. Ath. mjög takmarkaður fjöldi íbúða og herbergja í boði - verð getur hækkað án fyrirvara. Costa del Sol Síðustu sætin 17. ágúst á einstöku tilboði Kr. 109.900 Hotel Roc Flamingo ★★★ með „öllu inniföldu“ Netverð á mann, m.v. 2 fullorðna og 2 börn, 2-11 ára, í fjölskyldu- herbergi með „öllu inniföldu“ í 11 nætur. Verð mv. 2 í herbergi kr. 137.380.- Sértilboð 17. ágúst. Kr. 49.900 Flugsæti 17. – 28. ágúst. Netverð á mann. Frá kr. 49.900 Taktu þátt í laufl éttum leik. Vertu vinur okkar á Facebook og þá áttu m öguleika á 50.000 krón a inn- eign í ferð til Costa d el Sol í ágúst eða sep tember. FÓTBOLTI Ísland og Liechtenstein gerðu jafntefli, 1-1, í leiðinlegum og lélegum vináttulandsleik á Laugar- dalsvelli í gær. Ólafur Jóhannesson landsliðs- þjálfari talaði um að spila ekki fyrirsjáanlegan sóknarleik en það gekk frekar illa í fyrri hálfleik. Þó var talsvert líf í ungu strákunum á vængjunum, þeim Rúrik og Arn- óri. Eiður reyndi að búa til hluti í sókninni en spilið var oftar en ekki of þröngt, og jú fyrirsjáanlegt, og varnarmenn Liechtenstein lentu ekki í stórkostlegum vandræðum. Ísland var reyndar heppið að lenda ekki undir eftir átta mínútur þegar Mario Frick slapp einn í gegn- um vörn íslenska liðsins. Blessunar- lega var skot hans slakt og fór fram hjá marki Íslands. Eftir um 20 mínútna leik reyndi Eiður sendingu í gegnum vörn gest- anna. Boltinn fór af varnarmanni og þaðan beint á Rúrik sem var einn á auðum sjó. Smá heppni en Rúrik var ekki að velta sér upp úr því og lagði boltann laglega í stöngina og inn. Mótspyrna gestanna var ekki mikil og það verður að viðurkenn- ast að liðið er arfaslakt. Þess vegna voru það talsverð vonbrigði að íslenska liðið skyldi ekki skapa sér meira í hálfleiknum og aðeins leiða 1-0 í hálfleik. Flestir vonuðust til þess að íslenska liðið myndi girða sig í brók í síðari hálfleik. Af því varð nú heldur betur ekki og síð- ari hálfleikur var álíka lélegur og sá fyrri. Íslenska liðið var sem fyrr fyrir- sjáanlegt og hægt í sínum sóknarað- gerðum. Færin létu því á sér standa og voru í raun engin í síðari hálfleik. Það er eiginlega ekki hægt að lýsa þessu öðruvísi en að þetta hafi verið grátlega lélegt. Til að bæta gráu ofan á svart jöfn- uðu gestirnir leikinn með sínu eina skoti á markið í leiknum. Mark- ið gerði Michael Stocklasa eftir að íslenska vörnin hafði sofnað á verð- inum í aukaspyrnu. Jafntefli því niðurstaðan sem er langt frá því að vera ásættan- legt enda gerir maður þá kröfu að Ísland leggi lið eins og Liechtenstein á heimavelli. Þetta er mjög slakt lið og íslenska liðið á alltaf að klára þetta dapurt lið. Áhyggjuefnin fyrir Ólaf Jóhann- esson eftir leikinn eru mörg. Þetta var síðasti æfingaleikurinn fyrir undankeppni stórmóts og það var ekki að sjá á flestum leikmönnum liðsins að þeir væru að spila fyrir sæti í leiknum gegn Noregi. Kannski er ástæðan sú að flestir þeirra eru hvort eð er með áskrift í hópnum, sama hvernig þeir spila. Þeir telja sig þar af leiðandi ekki þurfa að leggja sig fram. Aðaláhyggjuefnið er einmitt þetta áhuga- og andleysi sem skín af leik- mönnum liðsins. Baráttan var engin og leikmenn lögðu afar lítið inn af því sem þeir eiga. Ólafur virðist eiga í vandræðum með að ná til leikmanna því þeir berjast ekki fyrir hann né landsliðið lengur. Það á aldrei að vera ásættanlegt. Ef ekki verður stórkostleg hugar- farsbreyting í þessum hópi þá verð- ur liðið búið að ljúka keppni snemma í næstu undankeppni. henry@frettabladid.is Átakanlegt andleysi hjá Íslandi Íslenska A-landsliðið varð sér til skammar með andlausum leik gegn Liechtenstein í gær. Baráttan var engin og liðið virtist ekki hafa nokkurn áhuga á verkefninu. Leikurinn lofar ekki góðu fyrir framhaldið. ANGISTARSVIPUR Þessi svipur Ólafs Jóhannessonar landsliðsþjálfara segir allt sem segja þarf. Íslenska liðið olli miklum vonbrigðum í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON FÓTBOLTI „Við verðum bara að taka þessu, þetta er partur af því að vera í fótboltanum. Þetta er ekki alltaf dans á rósum,“ sagði Aron Einar Gunnarsson, miðjumað- ur Íslands og Coventry, eftir von- brigðin á Laugardalsvelli í gær. „Ég hef engar áhyggjur, við verðum bara að mæta grimm- ari í næsta leik. Við vorum ekki nægilega ákveðnir í okkar aðgerð- um. Við ætluðum að keyra á þá en gerðum það ekki. Þetta er enginn heimsendir. Þetta var bara æfinga- leikur og það eru sterkir karakter- ar í þessum hóp, við rífum okkur upp úr þessu.“ Það var ekki að sjá á spila- mennsku Íslands að leikmenn væru að berjast fyrir sæti sínu í liðinu fyrir næsta leik sem er í forkeppni Evrópumótsins. „Við sáum að U21 liðið var að gera vel fyrr í dag og það eru margir þar sem geta komið til greina frá því liði. Við verðum að bara að sanna okkur og sýna með okkar félagsliði,“ sagði Aron. Ólafur Jóhannesson, landsliðs- þjálfari, var allt annað en glaður eftir leik. „Þetta var léleg frammi- staða og langt frá því sem við ætl- uðum okkur. Frammistaðan var mjög döpur og við fengum ekki færi,“ sagði Ólafur sem kunni ekki skýringar á þessari spilamennsku landsliðsins. „Við þurfum að gera betur en þetta í öllum leikjum og ég tala nú ekki um í þessari undankeppni sem framundan er. Við förum ekkert á svona frammistöðu. Þessi leikur skilar manni fleiri spurningum en svörum. Það er ekki gott þegar stutt er í keppni.“ Ólafur segir erfitt að taka eitt- hvað jákvætt úr þessum leik en hrósaði frammistöðu U21 lands- liðsins fyrr um daginn. „Við eigum nokkuð marga unga og góða leik- menn og framtíðin er björt. Margir af þeim leikmönnum hafa verið í og við hópinn minn undanfarið og þeir verða það örugglega áfram“ sagði Ólafur Jóhannesson. - egm Landsliðsþjálfarinn var ósáttur við leikinn í gær: Skilar fleiri spurn- ingum en svörum ÓSAMSTÍGA Þrír íslenskir leikmenn fara upp í skallabolta án þess að vita hvar boltinn er í landsleiknum í gærkvöldi. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.