Fréttablaðið - 12.08.2010, Blaðsíða 30

Fréttablaðið - 12.08.2010, Blaðsíða 30
 12. ágúst 2010 FIMMTUDAGUR4 Hönnunarverslunin Origami var opnuð á Akranesi hinn 17. júní síðastliðinn og fékk strax góðar viðtökur frá bæjarbúum, raunar svo góðar að verslunin tæmdist á fyrsta degi. „Okkur þótti viðeig- andi að opna á þjóðhátíðardag- inn enda eingöngu með íslenska hönnun í versluninni. Fólk var í fríi, hafði tíma til að líta við og búðin fylltist af fólki,“ segir Guð- munda Sjöfn Magnúsdóttir, annar eigandi verslunarinnar. Þar fást föt sem hún og Tinna Rós hanna undir nafninu Topi di pelo, ásamt íslensku skarti og fylgihlutum sem þær eru með í umboðssölu fyrir aðra hönnuði. Þá eru þær með saumaþjónustu og taka að sér alls kyns saumaskap og viðgerðir. Þær Guðmunda og Tinna Rós fóru að vinna saman fyrir um það bil ári en fóru varlega af stað. „Við vorum báðar atvinnulausar og byrjuðum á því að sauma upp úr gömlum fötum þar sem við höfð- um ekki úr öðru að moða,“ segir Guðmunda sem er með sveins- próf í kjólasaumi. Úr urðu þrenns konar bolir sem ganga undir nöfn- unum nippon, origami og sun rise. „Þetta eru eins konar bútabolir og við byrjuðum á því að hengja þá upp á vegg í kaffihúsinu Skrúð- garðinum hér á Akranesi. Það vakti lukku og þeir seldust vel. Í kjölfarið stofnuðum við Facebook- síðu og fórum að bæta við okkur hettupeysum, kjólum og leggings. Síðar fórum við á frumkvöðla- námskeið hjá Vinnumálastofnun og fengum meðal annars aðstoð við að gera viðskiptaáætlun og ákváðum í kjölfarið að opna búð. Nú notum við ný og gömul efni í bland og erum þegar farnar að leita að umboðsaðilum fyrir merk- ið okkar í Reykjavík og víðar.“ Þær Guðmunda og Tinna eru sífellt að prófa sig áfram með nýja hluti og í kvöld milli 20 og 22 verða þær með kynningu á sér- stökum brjóstagjafarpeysum. vera@frettabladid.is Byrjuðu á bútabolum Þær Guðmunda Sjöfn Magnúsdóttir og Tinna Rós Þorsteinsdóttir opnuðu hönnunarverslunina Origami á Akranesi fyrir skemmstu. Þær taka líka að sér saumaskap og hefur verið tekið fagnandi á Skaganum. Þær Guðmunda og Tinna byrjuðu á því að sauma boli upp úr gömlum efnum. Í versluninni fást kjólar, bolir, leggings, hettupeysur og skart. Coco Chanel kom á árunum 1920 til 1930 með prjónaefni (jersey) á markað en það hafði áður verið notað í sportfatnað og herra- undirfatnað. Nýtt orð var haft yfir þennan stíl, nýfátækt eða fátæk- legi lúxusinn. Tíska aldanna Tinna Rós og Guð- munda Sjöfn fóru hægt af stað en eru nú sífellt að auka við úrvalið. M eirapró f U p p lýsin gar o g in n ritun í s ím a 5670300 NÝTT NÁMSKEIÐ HEFST 25/8 Skeifunni 11 • 108 Reykjavík • Sími: 517-6460 • Fax: 517-6465 www.belladonna.is Flott föt fyrir flottar konur, Stærðir 40-60. 50% AUKA- AF SLÁTTUR af útsölu vörum (reiknas t við kas sa) ÚTSALAN ENN Í FULLUM GANGI 30%-50% afsláttur af útsöluvörum 1.990 • 3.990 • 4.990 • 5.990 AÐEINS FJÖGUR VERÐ Í BÚÐINNI 50—70% AFSLÁTTUR NÝ SENDING AF SKOKKUM BEINT Á ÚTSÖLUNA Sími 534 0073 Erum með opið á lau. kl. 11—16 DALVEGI 16c · 201 KÓPAVOGI SÍMI 568 6411 · WWW.RAFVORUR.IS · Tekur 12 Kg · Hljóðlát · Stórt op > auðvelt að hlaða · Sparneytin 12 kg Þvottavél og þurrkari
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.