Fréttablaðið - 12.08.2010, Blaðsíða 66

Fréttablaðið - 12.08.2010, Blaðsíða 66
 12. ágúst 2010 FIMMTUDAGUR46 PGA-meistaramótið í golfi hefst í dag á hinum alræmda Whistl- ing Straits-golfvelli í Wisconsin í Bandaríkjunum. Völlurinn er af mörgum talinn einn sá allra erfið- asti í Bandaríkjunum og líkist að mörgu leyti breskum strandarvelli, því vallarstæðið er við Michigan- vatnið. Sem fyrr beinast allra augu að Tiger Woods. Óhætt er að segja að kylfingurinn magnaði hafi leikið langt undir getu frá því hann hóf keppni á ný eftir að hafa sveigt „lítillega“ af beinu brautinni í einkalífinu. Þótt þeirri ferð hafi lokið með árekstri á einkalóðinni í Flórída, játningum tuga kvenna sem sögðust hafa átt næturgam- an með Tiger og síðar skilnaði við Elínu, hélt ógæfuferðin áfram þegar hann sneri aftur á golfvöll- inn. Kannski skiljanlega. Það er í það minnsta auðvelt að ímynda sér að einbeitingin sé ekki alveg í lagi eftir það sem á undan hefur gengið. Sumir vilja meina að hann nái sér ekki á flug aftur fyrr en á næsta ári enda margsannað að „golf er að stórum hluta leikið á fimmtán sentí- metra velli – á milli eyrnanna.“ (Bobby Jones). Nú er svo komið að Tiger er ekki öruggur með sæti í Ryder-liði Bandaríkjanna. Af þeim tólf sem skipa liðið komast átta sjálfkrafa inn samkvæmt stigagjöf, sem mið- ast við árangur í mótum, en Corey Pavin fyrirliði velur hina fjóra. Sam- kvæmt stigagjöfinni er Tiger ekki í liðinu og hefur Corey Pavin fyrirliði neitað að láta nokkuð uppi um það hvort hann velji hann í liðið. Það er því morgunljóst að mikið er undir hjá Tiger um helgina og Tennisolnbogi Magni M. Bernhardsson, kírópraktor með sérhæfingu í golfmeiðslum og öðrum íþrótta- meiðslum. golfogveidi@frettabladid.is 74270 G O LF & H EI LS A Hollráð Hinna Grundvallarreglur golfsins Einföldustu golfreglur virðast flækjast fyrir mörgum kylfingum. Hinrik Gunnar Hilmarsson, sem annast hefur eftirlit, vallarvörslu og dómgæslu hjá Golfklúbbi Reykjavíkur, ráðleggur kylfingum að hafa eftirfarandi ávallt í huga: Það má segja að grundvallaratriði golfreglnanna séu þrjú. 1. Leika boltanum eins og hann liggur. 2. Leika völlinn eins og hann er. 3. Ef hvorugt er hægt, gera þá það sem er réttlátast. ■ Í raun fjalla golfreglurnar um undantekningar frá tveimur fyrstu atriðun- um og útskýringar á því þriðja. Kynna sér skilgreiningarnar – þær geta svarað spurningum sem við höfum til dæmis um lausung, hreyfðan bolta og svo framvegis. ■ Aldrei snerta eða lyfta bolta í leik á leið nema láta skrifarann vita og merkja boltann. Sé það ekki gert kostar það leikmanninn eitt högg í víti. ■ Ef leikmaður hittir sjálfan sig, kylfusvein eða útbúnað sinn fær leikmaður- inn eitt högg í víti. ■ Ef leikmaður snertir yfirborð torfæru áður en hann slær högg þá fær leikmaðurinn tvö högg í víti. Þetta á við ef leikmaðurinn snertir sand í glompu eða vatn í vatnstorfæru til dæmis í baksveiflunni. ■ Ef boltinn hreyfist eftir að leikmaður hefur hafið leik og hefur tekið sér stöðu skal leggja boltann til baka og leikmaður fær eitt högg í víti. Leggi leik- maður boltann ekki til baka fær leikmaður- inn tvö högg í víti. Þetta eru algeng atriði sem leik- menn klikka oft á en allir kylfingar þurfa að tileinka sér strax frá upphafi. Langur og erfiður völlur Iowa Whistling Straits Illinois Michigan M in ne so ta Indiana O hi o M ic hi ga nv at n Chicago Detroit Milwaukee Wisconsin Sautjánda holan gengur undir heitinu Klemmda taugin. Flötin er varin með glompum og vinstra megin er Michigan-vatnið. Átjánda holan er kölluð Hin djöfullega. Brautin er tvískipt. Of stutt upphafshögg þýðir að erfitt er að ná inn á flöt í tveimur. Of langt og þá getur lækurinn gleypt hana. Whistling Straits golfvöllurinn er gríðarlega langur eða 6.865 metrar. Til saman- burðar er Grafarholtsvöllurinn 6.057 metrar af hvítum teigum. Lokaspretturinn, eða 15. til 18. hola, þykir einn sá erfiðasti í golfi. Völlurinn líkist helst breskum strandarvelli þar sem glompur, hátt gras og vindur leika stórt hlutverk. Skorkortið Hola Par Metrar 1 4 373 2 5 542 3 3 166 4 4 447 5 5 547 6 4 325 7 3 202 8 4 464 9 4 408 Út 36 3.473 10 4 330 11 5 565 12 3 131 13 4 369 14 4 341 15 4 474 16 5 520 17 3 204 18 4 457 Inn 36 3.392 Samtals 72 6.865 Karlaflokkur 1 Hlynur Geir Hjartarson GK 5179.38 2 Kristján Þór Einarsson GKJ 4905.00 3 Sigmundur Einar Máss. GKG 4501.88 4 Þórður Rafn Gissurarson GR 4070.00 5 Birgir Leifur Hafþórsson GKG 4000.00 6 Arnar Snær Hákonarson GR 3695.38 7 Guðmundur Á. Kristjánss. GR 3418.75 8 Axel Bóasson GK 3295.00 9 Guðjón H. Hilmarsson GKG 2821.62 10 Tryggvi Pétursson GR 2440.62 Tiger þarf að hysja upp um sig Fjórða risamót ársins hefst á Whistling Straits golfvellinum í Wisconsin í dag. Tiger Woods er spáð glimr- andi gengi þrátt fyrir ömurlega frammistöðu allt frá því að upp komst um framhjáhald hans og gjálífi. vikur hefur Tiger Woods verið í efsta sæti heimslistans í golfi. Tveir kylfingar gætu velt honum úr sessi um helgina, Phil Mickelson og Lee Westwood. Tennisolnbogi er bólgur í liðbönd- um vöðva sem festast á utan- verðan olnbogann. Tennisolnbogi finnst venjulega á vinstri hendi hjá rétthentum golfara vegna stirðleika og rangrar beitingar. Einkennin eru aumur utanverður olnbogi, verkur sem leiðir út í framhandlegg og versnar við átak. Ef ekkert er gert getur það leitt til þrálátra meiðsla. Hvað er til ráða? Farðu í sveiflugreiningu og fáðu úr því skorið hvort þú sért með svokallaðan kjúklingavæng (chicken winging), en þá er vinstri handleggur boginn (á rétthentum golfara) í framsveiflunni. Einnig er talið að það að slá síendurtekið fyrir aftan boltann geti ýtt enn frekar undir þessi einkenni. Nuddaðu kælikremi eða settu kælipoka á olnbogann eftir golf- iðkun til að minnka bólgumyndun og settu hitapoka eða hitakrem fyrir golf til að fá gott blóðstreymi til umræddra vöðva. Sumir nota spelku á olnbogann til að fá stuðn- ing sem er gott á meðan verið er að vinna í að laga olnbogann en dugar ekki sem langtímalausn. Mikilvægast er að finna orsökina og lagfæra það sem er að, þannig næst langtímaárangur og þar af leiðandi spilar maður betra golf. Kvennaflokkur 1 Valdís Þóra Jónsdóttir GL 7282.50 2 Ólafía Þ. Kristinsdóttir GR 5885.00 3 Signý Arnórsdóttir GK 4382.50 4 Tinna Jóhannsdóttir GK 4362.50 5 Ingunn Gunnarsdóttir GKG 3679.17 6 Eygló Myrra Óskarsdóttir GO 3269.17 7 Þórdís Geirsdóttir GK 3193.75 8 Nína Björk Geirsdóttir GKJ 3052.50 9 Berglind Björnsdóttir GR 2662.50 10 Heiða Guðnadóttir GKJ 2591.25 Eimskipsmótaröðin 2010 Næsta mót í Eimskipsmótaröðinni verður haldið á Strandarvelli á Hellu dagana 28. og 29. ágúst. Hlynur Geir Hjartarson Valdís Þóra Jónsdóttir 74 er sætið sem Tiger Woods skipar nú á peningalistanum. Síðustu þrettán ár hefur hann lægst verið í fjórða sæti listans en í níu af þessum þrettán árum í efsta sæti hans. þrátt fyrir allt sem á undan hefur gengið spá veðbankar honum glimr- andi gengi þótt flestir spái þeir Phil Mickelson sigri og Tiger öðru sæt- inu. Ef ég væri fyrir veðmál þá færi þúsund kallinn minn á Spánverj- ann vindlasjúgandi, Miguel Angel Jimenez, enda ólíkt skemmtilegra að vinna 150 þúsund en 15. Fyrir alvöru spilafíkla er David Hutsell (ekki spyrja mig) líklega málið en þúsund kall á hann gæfi 2 milljónir í aðra hönd. Aftur að Tiger. Í fyrradag lék hann æfingahring á Whistling Straits með þjálfaranum Nick Foley, sem meðal annars hefur þjálfað Hunter Mahan og Sean O‘Hair. Það er skref í rétta átt hjá Tiger, sem hefur verið þjálfara- laus undanfarið með þessum líka árangri. Mahan sigraði einmitt á Bridgestone-mótinu í Ohio um síð- ustu helgi en Tiger gerði upp á bak, þið fyrirgefið orðbragðið. PGA-meistaramótið er venjulega talið fjórða stórmótið. Hin eru að sjálfsögðu Masters, Opna banda- ríska og Opna breska. Í annað skiptið á sex árum fer mótið fram á Whistling Straits-vellinum, en sem áður sagði þykir hann gríðar- lega erfiður. Árið 2004, þegar mótið var haldið þar síðast, hafði stórmót í golfi aldrei farið fram á jafnlöng- um velli. Þá sigraði Vijay Singh þrátt fyrir að hafa leikið á 76 högg- um á lokadegi mótsins. Það verður spennandi að fylgjast með mótinu næstu daga. Bein útsending hefst á Stöð 2 klukkan átta í kvöld. trausti@frettabladid.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.