Fréttablaðið - 12.08.2010, Blaðsíða 52
32 12. ágúst 2010 FIMMTUDAGUR
menning@frettabladid.is
Guðmundur Ingi fer með
einleikinn Interjections í
Norðurpólnum á Seltjarnar-
nesi. Verkið er hugarfóstur
Mischa Titchin og byggt
á bréfaskriftum Antonins
Artaud.
„Þetta er í raun ekki leiksýning
heldur meira rannsóknarverkefni,
en verkið er í stöðugri vinnslu,“
segir leikarinn Guðmundur Ingi
Þorvaldsson.
Á sviðslistasýninguni artFart
verður gjörðaleikhúsið og tilrauna-
sýningin Interjections sett á svið
hér á landi. Verkið er einleikur á
ensku sem er hugarfóstur Mischa
Twitchin og er það Guðmundur
Ingi sem sér um leikinn. Efniviður
verksins eru bréfaskriftir franska
heimspekingsins, súrrealistans og
leikhúsmannsins Antonins Artaud
til vina sinna og samferðarfólks
er hann var lokaður inni á á geð-
veikarhælinu Rodez í Frakklandi.
Artaud lá ekki á skoðunum sínum
um þjóðmál og listir og sagði sam-
félaginu óhikað til syndanna. Hann
var ekki á móti neinni ákveðinni
gerð þjóðfélags, heldur var hann
einfaldlega á móti þjóðfélaginu
sem slíku. Hann gerir sér grein
fyrir því að hann sé á skjön við
aðra menn og að hann eigi við and-
leg veikindi að stríða og er allan
tímann á meðan á innlögn hans
stendur að rannsaka eigin hugs-
anir, lífið og dauðann.
„Artaud var magnaður heim-
spekingur. Þegar hann slasaðist
varð hann háður ópíumi og síðar
heróíni. Í framhaldi af því varð
hann í raun geðveikur og var lagð-
ur inn á geðspítalann en gerði sér
grein fyrir því að hans hugsun
var frábrugðin hugsun annarra.
Hann rannsakar því hugsun og við
byggjum verkið upp á þeim skrif-
um,“ segir Guðmundur Ingi.
Twitchin, sem rekur Shaunt-leik-
húsið í London, kenndi Guðmundi
Inga er hann nam við Goldsmiths
University og urðu þeir góðir vinir.
Þeir komu saman hér á artFart
í fyrra þar sem þeir settu einn-
ig verk á svið. Þetta verk byrjuðu
þeir að þróa í nóvember og hafa
sett sýninguna upp þrisvar áður.
„Hvernig hann hugsar um leik-
hús og skilgreinir list ásamt því
að tala um hana og framkvæma
hefur kennt mér meira en ég hef
nokkurn tímann áður lært um list
og það hefur skilgreint mig í list-
inni,“ segir Guðmundur Ingi.
Twitchin hefur myndað sér
sterkar skoðanir um leikhúsið og
einkennist þessi sýning mikið af
þeim. „Hann vill hafa eins lítið
ljós á sviðinu og hann kemst upp
með og er mjög hrifinn af skugg-
um. Hann vill að leikhúsið gerist
í huga áhorfendanna. Við búum
til lágmarkshughrif á sviðinu svo
þinn hugur fari af stað. Leikhúsið
er ekki ég að sýna þér eitthvað. Þú
ert leikhúsið,“ segir Guðmundur
Ingi. linda@frettabladid.is
Verk byggt á bréfaskriftum
Antonins Artaud sett á svið
GUÐMUNDUR INGI Setur á svið verkið Interjections sem er einleikur á ensku.
> Ekki missa af
Hljómsveitirnar Klassart og
Stone Stones slá upp blús-
veislu á Faktorý í kvöld. Efri
hæðin verður opnuð kl. 21 og
byrja tónleikarnir stundvíslega
kl. 22. Frítt er inn á tónleikana.
Klassart sendi nýverið frá sér
aðra breiðskífu sína. Þess má
geta að platan er plata vikunn-
ar á Rás 2 þessa vikuna.
Risið í kvöld kl. 21
Tónleikar tileinkaðir saxófónleik-
aranum Charlie Parker, sem hefði
orðið 90 ára í lok mánaðarins, verða
í Risinu Tryggvagötu í kvöld. Á
meðal þeirra sem koma fram eru
Haukur Gröndal, Óskar Guðjóns-
son, Ólafur Jónsson, Birkir Freyr
Matthíasson, Ari Bragi Kárason,
Agnar Már Magnússon, Eyþór Gunn-
arsson, Erik Qvick. Jafnframt eru
allir hvattir til að mæta með hljóð-
færi sín og taka þátt.
Óperan sem Íslenska óperan
færir upp á komandi haustmiss-
eri er Rigoletto eftir Giuseppe
Verdi. „Þetta áhrifamikla og
hádramatíska meistaraverk er ein
af þekktustu óperum sögunnar
og er reglulega færð upp í flest-
um óperuhúsum veraldar,“ segir
í tilkynningu. „Í verkinu koma
saman ástir, valdabarátta og
örlög í æsispennandi fléttu, sem
römmuð er inn af hrífandi tónlist
meistara Verdis og inniheldur
meðal annars hinar þekktu aríur
„La donne e mobile“ og „Questa
o Quella“ að ógleymdum kvart-
ettinum „Bella figlia dell’amore“.
Aðalsöngvararnir í verkinu
eru Ólafur Kjartan Sigurðarson
sem Rigoletto, Jóhann Friðgeir
Valdimarsson sem Hertoginn af
Mantua, Þóra Einarsdóttir sem
Gilda, Jóhann Smári Sævars-
son sem Sparafucile, Sesselja
Kristjánsdóttir sem Maddalena,
Bergþór Pálsson sem Monterone
og Bylgja Dís Gunnarsdóttir sem
Giovanna, auk þess sem Ágúst
Ólafsson, Hlöðver Sigurðsson
og Bragi Jónsson syngja minni
hlutverk.
Hljómsveitarstjóri verður Daníel
Bjarnason, handhafi tvennra verð-
launa á Íslensku tónlistarverðlaun-
unum í ár. Alls eru sex sýningar
ráðgerðar á verkinu.
Rigoletto í Óperunni í haust
RIGOLETTO Ólafur Kjartan
Sigurðarson fer með titilhlut-
verkið. FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA
Kvöldskóli BHS haustönn 2010
Innritun í málmiðnadeild kvöldskóla BHS verður eftirfarandi daga.
föstudag 13. ágúst kl: 17 - 19
laugardag 14. ágúst kl: 11 - 14
Eftirtaldir áfangar verða í boði fyrir málmiðngreinar. Tilvalið fyrir þá sem eru að fara í sveinspróf
í málmiðngreinum. Einnig eru kenndar allar suðugreinar, s.s.MIG/MAG, TIG, logsuða og rafsuða.
Verklegir áfangar eru.
HSU-102/212 verkleg suða
HSU 232 verkleg þunnplötusuða, ál / stál / ryðfr.
LSU-102/202 verkleg suða
RSU-102/202 verkleg suða
REN-103/203/303 verkleg rennismíði
AVV-102/202 verkleg aflvélavirkjun
Upphaf kennslu: mánudag 23. ágúst frá 18:10 Lok kennslu: þriðjudaginn 30. nóv. frá 18:10
Ath: Áfangar geta fallið niður, náist ekki nægur fjöldi í hópa.
Sjá einnig á vef skólans www. bhs.is Skólameistari.
1
3
5
7
9
2
4
6
8
10
Vitavörðurinn - kilja
Camilla Läckberg
Eyjafjallajökull
Ari Trausti og Ragnar Th.
Borða, biðja, elska - kilja
Elizabeth Gilbert
Makalaus - kilja
Tobba Marinós
Það sem mér ber - kilja
Anne Holt
Brandarabók Andrésar
Walt Disney
25 gönguleiðir á höfuðborgar-
svæðinu - Reynir Ingibjartsson
METSÖLULISTI EYMUNDSSON
SAMKVÆMT BÓKSÖLU Í EYMUNDSSON UM LAND ALLT
04.08.10 - 10.08.10
Aldrei framar frjáls
Sara Blædel
Vegahandbókin 2010
Ýmsir höfundar
Toy Story - Þrautabók 3D
Walt Disney