Fréttablaðið - 12.08.2010, Blaðsíða 37

Fréttablaðið - 12.08.2010, Blaðsíða 37
jazzhátíð reykjavíkur ●FIMMTUDAGUR 12. ÁGÚST 2010 3 Básúnunni verður gert hátt undir höfði á Jazzhátíð Reykja- víkur í ár. Innan jazzins hefðu saxófónninn og trompetinn líklega vinninginn ef kosið væri um vinsælasta blást- urshljóðfærið. Það er ekki gott að segja hvað veldur en ekki er ólík- legt að hinar sérkennilegu sleða- ferðir sem einn básúnuleikari þarf að leggja í til að ná lagi spili þar inn í. Ótrúleg hönnun að þurfa að breyta í sífellu stærð hljóðfærisins. En í stað- inn býr básúnan yfir sérstökum galdri og túlk- unarmöguleikum. Og einmitt vegna sleð- ans og hversu myndræn túlk- un básúnu- leikarans er hrífst maður kannski ein- mitt frek- ar af góðum básúnuleik- ara en trompetleikara sem hreyf- ir einungis fingurna. Þó vitum við að vinna brassleikara yfirleitt fer aðallega fram með vörunum. Básúnuleikarar eru þungamiðja í hverri hljómsveit, hvort sem um er að ræða jazzhljómsveit eða sin- fóníuhljómsveit. Þar sitja íhugulir tónlistarmenn sem geta litað hvað hljóm sem er á einstakan máta. Og þeir geta líka haft ótrúlega hátt. Það er t.d. mikilvæg regla að biðja básúnuleikara aldrei að spila sterkar. Það getur beinlín- is verið hættulegt. Algengt er að hljóm- sveitarstjórar og útsetjar- ar komi úr röðum básúnuleik- ara. Hvað veldur er ekki gott að segja en kannski er hlut- verk básúnuleikar- ans í hljómsveit- artónlist almennt betur fallið til að öðlast yfir- sýn yfir heild- armyndina af hljómsveitinni en önnur hlut- verk. Tveir ís- lenskir bás- únuleikarar verða áberandi á Jazzhátíð Reykjavíkur. Samúel Jón Samú- elsson fer fyrir eigin stórsveit og einnig hljómsveitinni Jagúar, en Samúel er meðal mikilvirkustu blásara íslenska tónlistarífsins um þessar mundir. Björn R. Einarsson er af annari kynslóð básúnuleikara og verður blásið (bókstaflega) til hyllingar á þessum merka tónlist- armanni og hljómsveitarstjóra í Kirkju óháða safnaðarins sunnu- daginn 22. ágúst. Og eins og til að setja básúnu- punktinn yfir i-ið, eða sleðann í skemmtilega stöðu hefur Jazz- hátíð boðið einum áhugaverðasta básúnuleikara Evrópujazzins til landsins. Nils Wogram kemur fram ásamt Nostalgia tríói sínu föstudaginn 26. ágúst. Wogram er þrátt fyrir ungan aldur margverð- launaður tónlistarmaður. Hann hóf nám í básúnuleik í heimabæ sínum Braunschweig í Þýskalandi tólf ára gamall og var farinn að spila með jazzhljómsveit unga fólksins í Neðra-Saxlandi sextán ára. Sautj- án ára gamall vann hann til fyrstu verðlauna fyrir einleik á básúnu í keppninni „Jugend musiziert“ og gekk í framhaldi af því til liðs við þjóðarjazzhljómsveit Þýskalands undir stjórn Peters Herbolzheim- er. Merkishljóðfærið básúnan Meðal þeirra sem heimsækja Ís- land á Jazzhátíð Reykjavíkur 2010 er píanistinn Don Randi og hljóm- sveit hans Quest, sem kemur hing- að fyrir tilstuðlan Geirs Ólafsson- ar sem ætlar að bjóða upp á mikla stórsýningu á Broadway laugar- dagskvöldið 14. ágúst í samstarfi við Jazzhátíð Reykjavíkur. Þar verða meðal annarra söngvararn- ir Ragnar Bjarnason, Egill Ólafs- son og Kristján Jóhannsson gestir Geirs, sem hyggst gera kvikmynd um viðburðinn. Don Randi hefur verið stórveldi í stúdíóum Hollywood í áratugi og þeir listamenn sem hafa notið krafta hans eru Beach Boys, Frank Sinatra og Michael Jackson svo að fjölhæfni Randis er einstök. Hann var líka í hópi tónlistarmanna sem helstu upptökustjórar vestanhafs voru með á sínum snærum á sjö- unda áratugnum og gengu undir nafninu Wrecking Crew en þeir lutu stjórn manna á borð við Phil Spector. Björn Thoroddsen var við nám og störf í Los Angeles á sínum tíma og lá því beinast við að spyrja Björn hvort hann þekkti kallinn? „Þegar ég var úti var Don Randi vel kynntur og í slagtogi með stóru köllunum. Namedroppið getur verið allur ameríski listinn alveg frá Zappa til Lindu Ronstadt. Don er alvöru tónlistarmaður og er einn af stofnendum þekktustu klúbb- anna í L.A. til dæmis Big Potatos. Hann er einn af fyrstu sem spil- aði fusion í denn. Það má segja að við höfum verið með helstu frum- kvöðla fusion-tónlistarinnar á okkar Jazzhátíðum, þá Don Randy og Larry Coryell. Hann verður ör- ugglega með flott lið í bandinu. Ég veit allavega um trommarann Tom Brechtlein sem er heitur í Banda- ríkjunum í dag.“ Björn kemur sjálfur fram á Jazzhátíð Reykjavíkur með hinu rómaða akústíska jazztríói Guit- ar Islandcio á tveimur tónleikum á Café Rósenberg og ætlar ekki að sitja heima þar fyrir utan. „Ég ætla að sjá eins mikið og ég get. Django Bates og Don Randi ætla ég ekki að missa af og mun surfa á milli staða meðan ég er ekki sjálfur að spila.“ Frá Hollywood til Reykjavíkur Það hefur löngum verið sagt að jazzpíanótríóið sé hreinasta form jazzins. Hliðstæða við strengjakvart- ett sígildrar tónlistar. Pétur Östlund lét hafa eftir sér að tvær eftirlætis hljómsveitartegundir hans væru stórsveitin og píanótríóið. Ástæðan væri einföld: Í tríóinu væru hljóðfæraleikarar svo fáir að þeir yrðu að vinna vel saman og í stórsveitinni væru þeir svo margir að þeir yrðu að vinna vel saman. Píanistar á jazzhátíð ársins eru fjölmargir og koma fram í mörgum mismunandi kringumstæð- um. Django Bates spilar bæði einn og í tríói. Slíkt hið sama gerir franski píanistinn Jean Marie Mach- ado sem föstudaginn 21. ágúst leiðir nokkra íslenska kollega sína í gegnum lögin sín eftir einleikshluta tónleika sinna í Þjóðmenningarhúsi. Sama kvöld verður Stórsveit Reykjavíkur í Norræna húsinu undir stjórn þýska píanistans og tónskáldsins Mariu Baptist. Annar þýskur píanisti, Achim Kaufman, verður að störfum ásamt Valdimari Kolbeini Sigurjónssyni og ameríska trommaranum Jim Black þriðjudaginn 17. ágúst. Þá eru ótalin þau Sunna Gunnlaugsdóttir, Agnar Már Magnússon, Ástvaldur Traustason og Kristján Tryggvi Martinsson sem öll koma fram með eigin tónlist og annarra á Jazzhátíð ársins. Af öðrum stórsveitum má nefna stórsveit Sam- úels J. Samúelssonar sem heldur tónleika á Venue 24. ágúst og svo má ekki gleyma BigBanG stórsveit núverandi og fyrrverandi nemenda tónlistarskóla Seltjarnarness sem ætlar (ef veður leyfir) að leika fyrir okkur á Ingólfstorgi laugardaginn 28. ágúst. Minnsta stórsveitin eða stærsta smásveitin á Jazzhátíð Reykjavíkur er án efa hin rómaða belg- íska lúðrasveit La Fanfare du BelgistaN. Þó lúðra- þyturinn komi frá uppdiktuðu héraði í austurhluta Belgíu er enginn skáldskapur að þessi hópur fimm blásara og tveggja slagverksmanna skilar óbrengl- uðum BelgistaN-hljómnum til heimsbyggðarinn- ar. Djöfullegir dansar, villtir og dularfullir ryþ- mar í bland við dáleiðandi laglínurnar æra jafnt þá sem aðhyllast arabíska-, sígauna- eða jazzmúsík. Sérviskulegt hljóðfæravalið ýtir enn frekar undir svimandi hamingjusaman trans. Leitið þá uppi á Jazzhátíð Reykjavíkur en þess má geta að þeir ætla líka að heimsækja höfuðstað Norðurlands og leika á Græna hattinum 26. ágúst. Stórar og litlar hljómsveitir Það verður varla haldin jazzhátíð án söngs þó að jazzlistin sé ekki síður instrumental. Söngvarar hafa í gegnum tíðina tileinkað sér tækni blásaranna sem í staðinn hafa gjarnan hermt eftir söngvur- um við hendingamótun og túlkun. Margir feikimagnaðir söngvarar hafa heimsótt okkur í gegnum tíð- ina og má þar nefna Theo Bleck- man, sem hélt ógleymanlega tón- leika í Fríkirkjunni 2008, Kurt Elling, New York Voices og Jon Hendricks. Söngvarar Jazzhátíðar Reykja- víkur 2010 koma úr ýmsum áttum. Það er okkar eigið fólk sem heldur uppi merkjum jazzsöngsins þetta árið. Kristjana Stefánsdóttir heiðr- ar hefðina í Gerðubergi með tón- leikum og söngnámskeiði. Kristj- ana kemur einnig við sögu sem gestur þegar píanistinn Agnar Már Magnússon hyllir stórpíanist- ann Bill Evans, en þar verða líka Ragnheiður Gröndal og Ragnar Bjarnason. Martin Roy Wade er eini erlendi gesturinn úr söng- heimum þetta árið og syngur með Sveiflusextetti Hauks Gröndal. Ekki má þó gleyma níu söngkonum úr IKI-hópnum sem ætla að bjóða upp á spennandi raddsprengjur á óvenjulegum stöðum. Þetta eru ungar söngkonur frá Norðurlönd- unum. Ellen Kristjánsdóttir býður upp á nýtt prógram á Sódómu og annars staðar er fjallað um stór- sýningu á Broadway. Þá eru ótald- ar Hrund Ósk Árnadóttir sem hyll- ir Billie Holiday og Stina August sem er búsett í Kanada en kemur fram með nokkrum okkar bestu jazzleikara. Svo má ekki gleyma Moses Hightower sem syngja blíð- lega en jafnframt karlmannlega ís- lenskan ryþmablús. Söngvarar á Jazzhátíð Básúnuleikarinn Nils Wogram kemur fram ásamt Nostalgia tríói sínu. Björn R. Einarsson verður hylltur í Kirkju óháða safnaðarins 22. ágúst. Don Randi með Geir Ólafs og fleirum sem spila á Broadway á laugardagskvöldið. Kristjana Stefánsdóttir verður með tón- leika og söngnámskeið í Gerðubergi. Samúel Jón Samúelsson fer fyrir eigin stórsveit. La Fanfare du BelgistaN er belgísk lúðrasveit.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.