Fréttablaðið - 12.08.2010, Blaðsíða 62
42 12. ágúst 2010 FIMMTUDAGUR
sport@frettabladid.is
Verkfall Elísabetar Gunnarsdóttur og stelpnanna hennar í Kristianstad
skilaði sér og vakti bæjarbúa Kristianstad sem sameinuðust
á bak við liðið sitt sem er búið að standa sig mjög vel í
sænsku kvennadeildinni á þessu tímabili. Verkfallinu
lauk á þriðjudaginn aðeins fimm dögum fyrir fyrsta leik
eftir sumarfrí sem er mikilvægur leikur á móti Tyresö á
sunnudaginn en liðin eru jöfn að stigum í 5. og 7. sæti
deildarinnar.
„Þetta eru búnir að vera svolítið erfiðir dagar. Við sem
erum í þessum fótbolta erum í þessu af ástríðu og
ánægju en ekki bara fyrir einhverja peninga,“ sagði
Elísabet Gunnarsdóttir, en það var ekkert annað í
stöðunni en að fara í verkfall. „Ekki eftir allt sem gekk
á í fyrra þegar við vorum hérna í þrjá mánuði án þess
að fá laun. Það var rosalega erfiður tími og okkur
finnst stjórnin ekki hafa lagt nógu mikið á sig til að
forðast þessa stöðu sem er komin upp hjá félaginu.
Okkar svar var að fara í verkfall og það hefur heldur betur skilað sér,“
segir Elísabet. Bæjarbúar Kristianstad stóðu á bak við stelpurnar sínar
og margir sendu félaginu peninga.
„Það voru mjög mikil viðbrögð úr samfélaginu, við höfum fengið
mikið af auka kostendum og mikið af fólki hefur líka komið
með peninga inn í félagið. Eftir því sem ég best veit er ekki bara
búið að redda þessum mánuði heldur öllu tímabilinu og jafnvel
vinna upp þann mínus sem félagið var búið að safna sér upp,“
segir Elísabet en hún viðurkennir að æfingaleysið gæti háð
liðinu í fyrstu leikjunum eftir frí.
„Við vorum að koma úr fríi þegar þetta skellur á og
svo höfum við ekki æft saman í dálítinn tíma. Það
verður svolítið erfitt að púsla þessu saman en á móti
kemur að þetta mun eflaust hjálpa til við að ná upp
stemningu og sterkari liðsheild,“ segir Elísabet sem
lítur á leikinn við Tyresö sem einn af úrslitaleikjunum
um hvort Kristianstad nái að halda sér í hópi fimm
ELÍSABET GUNNARSDÓTTIR, ÞJÁLFARI KRISTIANSTAD: VERKFALL HENNAR OG STELPNANNA BAR ÁRANGUR
Þetta eru búnir að vera svolítið erfiðir dagar
Daníel Bjarnason og Melkorka Ólafsdóttir
„Brjóta upp hið hefðbundna
tónleikaform“
FÓTBOLTI Það er ekki á hverjum degi
sem íslenskt landslið valtar yfir
stórveldið Þýskaland í fótbolta. Það
gerðist þó í gær þegar frábært U-
21 árs landslið Íslands rassskellti
Þjóðverja í Krikanum, 4-1. Ísland
er nánast öruggt í öðru sæti rið-
ilsins eftir sigurinn og getur þess
utan enn unnið hann.
Það sást strax í upphafi að
íslenska liðið ætlaði sér stóra hluti
í leiknum. Strákarnir mættu geysi-
lega einbeittir og grimmir til leiks
og tóku ákveðið á Þjóðverjum. Á
5. mínútu leiksins áttu Íslending-
ar síðan frábæra sókn. Jón Guðni
sendi boltann upp í hægra horn
á Gylfa Þór. Hann kom boltan-
um fyrir markið þar sem Birkir
Bjarnason var mættur. Hann var
í vandræðum með móttökuna en
gerði ákaflega vel í því að koma
boltanum fyrir og spyrna honum í
markið.
Þjóðverjar sköpuðu sér nákvæm-
lega engin færi þegar þeir sóttu
enda var bæði vörn og miðja
íslenska liðsins vel skipulögð og
þétt fyrir. Færin í hálfleiknum voru
Íslendinga sem hefðu getað skorað
fleiri mörk.
Leikur íslenska liðsins í fyrri
hálfleik var magnaður. Varnarleik-
urinn afar þéttur og góð samvinna
milli varnar og miðju. Strákarnir
gáfu Þjóðverjum lítinn tíma með
boltann og reyndu svo nær und-
antekningalaust að spila boltanum
með jörðinni og gerðu það oftar en
ekki afar vel. Fram á við var liðið
alltaf líklegt með þá Kolbein, Gylfa
Þór og Jóhann Berg afar hættu-
lega.
Það mátti búast við því að Þjóð-
verjar myndu mæta grimmir til
síðari hálfleiks og eftir rúmar
þrjár mínútur í hálfleiknum kom
sending á fjarstöng þar sem Kevin
Grosskreutz var einn á auðum sjó
og hann jafnaði leikinn.
Það vantaði ekki fjörið á þessum
kafla því nokkru síðar fiskaði Gylfi
Þór aukaspyrnu rétt fyrir utan teig.
Hann tók spyrnuna sjálfur og skor-
aði með stórkostlegri spyrnu efst í
markhornið. Aðeins mínútu síðar
fékk Kolbeinn stungusendingu inn
fyrir vörn Þjóðverja. Hann lyfti
boltanum smekklega yfir mark-
vörðinn og í netið. Tvö frábær mörk
og 3-1 fyrir Ísland.
Veislan var ekki búin því sex
mínútum fyrir leikslok urðu Þjóð-
verjum á slæm mistök. Varnarmað-
ur átti slæma sendingu til baka,
Alfreð Finnbogason komst á milli,
lék snilldarlega á þýska markvörð-
inn og skoraði í tómt markið.
4-1 sigur Íslands staðreynd og
fyllilega verðskuldaður enda allt
liðið að spila hreint út sagt frábær-
lega. Það var ótrúlega gaman að
fylgjast með þessum strákum spila
fótbolta í gær en ég man vart eftir
því að hafa séð íslenskt landslið
spila eins góðan fótbolta og þá sér-
staklega þetta góðan sóknarleik.
Það eru greinilega bjartari tímar
fram undan í íslenskum fótbolta og
miðað við frammistöðu U-21 í gær
eiga ansi margir leikmenn liðsins
orðið erindi í A-landsliðið nú þegar
þar sem má klárlega fara að stokka
betur upp hjá A-liðinu.
henry@frettabladid.is
Veisla á Kaplakrikavelli
Íslenska U-21 árs landsliðið gerði sér lítið fyrir og pakkaði Þjóðverjum saman er
liðin mættust á Kaplakrikavelli í undankeppni EM í gær. Leikur íslenska liðsins
var hreint magnaður og sigurinn sanngjarn. Liðið er í góðri stöðu í riðlinum.
SIGRI FAGNAÐ Strákarnir fengu góðan stuðning áhorfenda í gær og þökkuðu vel og innilega fyrir sig eftir magnaða frammistöðu.
Bjarni Þór Viðarsson, Haraldur Björnsson, Jón Guðni Fjóluson og Kolbeinn Sigþórsson þakka hér fyrir sig. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
FÓTBOLTI „Þetta var eins og skóla-
bókardæmi og nánast of gott til að
vera satt,“ sagði landsliðsþjálfarinn
Eyjólfur Sverrisson eftir frábæran
4-1 sigur U21 árs landsliðs Íslands
gegn Þjóðverjum í gær.
Liðið var gríðarlega vel skipulagt
og segir Eyjólfur að hann hafi ekki
lagt upp með að vinna leikinn svona
stórt en spilamennskan var upp á
tíu eftir skipulaginu.
„Við ætluðum að pressa þá vel
og koma þeim aðeins á óvart. Þeir
áttu að finna fyrir því að það væri
ekkert hægt að koma hingað til að
leika sér. Ég er ánægður með að
það tókst að skora snemma og bar-
áttan í liðinu var alveg til fyrir-
myndar,“ sagði Eyjólfur.
Þegar þeir jafna missum
við heldur ekki trúna á verk-
efninu og þá var bara
komið að okkur að
sækja aftur. Við viss-
um að þeir myndu
leysa leikinn upp
og við höfðum opin
augu fyrir skyndi-
sóknarfærum. Það
gekk vel upp,“
sagði þjálfarinn.
Hann vill ekki
endilega meina
að þetta sé besti
leikur liðsins frá
upphafi. „2-6 sig-
urinn gegn Norð-
ur-Írum úti var
alveg ótrúlegur.
Við hristum bara
hausinn yfir því hvað gerðist þar.
En núna vorum við að mæta sterk-
ara liði, leikmönnum sem hafa
margir mikla reynslu úr þýsku
úrvalsdeildinni. Það er með ólík-
indum hvað strákarnir voru öflug-
ir,“ sagði Eyjólfur.
„Þetta er klárlega sætasti sigur-
inn, þetta er alveg frábært,“ sagði
Kolbeinn Sigþórsson sem átti virki-
lega góðan leik í gær og skoraði
meðal annars eitt mark.
„Við vorum allir að spila mjög vel
og áttum sigurinn svo sannarlega
skilinn. Við spilum þétta vörn og
viljum sækja hratt, það gekk vel úti
gegn þeim og gekk líka upp núna.
Við sýndum að við erum bara
með betra lið,“ sagði Kolbeinn.
„Karakterinn í liðinu er
líka frábær og þetta er ekk-
ert komið af sjálfu sér, það eru
bara frábærir leikmenn í
þessu liði. Við áttum
fullt af færum í
leiknum og hefð-
um getað skor-
að meira. Við
klárum riðilinn
gegn Tékkum
og komum svo
algjörlega brjál-
aðir til leiks í
umspilið ef við
komumst þang-
að. Við ætlum
okkur á EM,“
sagði framherj-
inn ákveðinn.
- hþh
Landsliðsþjálfarinn Eyjólfur Sverrisson kampakátur:
Of gott til að vera satt
BARÁTTA Kolbeinn í einu af fjölmörgu einvígum sem hann henti sér í. Barátta hans
var aðdáunarverð.
> Sveinbjörn aftur norður til Akureyrar
Sveinbjörn Pétursson mun spila með Akureyri á næstu
leiktíð. Hann skrifar að nýju undir samning á morgun
þegar hann kemur aftur norður en Akureyri þarf að borga
HK fyrir leikmanninn. Samningaviðræðurnar voru langar
og strangar en Sveinbjörn var í skýjunum með að klára
málið. „Ég er ánægður með þessa niðurstöðu og það
verður gaman að spila aftur fyrir norðan,“
sagði Ísfirðingurinn sem er einn besti
markmaður deildarinnar. Akureyringar missa
bæði Hörð Flóka Ólafsson sem er hættur
og að öllum líkindum Hafþór Einarsson
en munu nota unga markmenn ásamt
uxanum Stefáni Guðnasyni sem er
byrjaður að æfa aftur á nýjan leik.
Tölfræði leiksins:
Skot (á mark): 9-18 (8-7)
Varin skot: Haraldur 6 – Sippel 4
Horn: 4-8
Aukaspyrnur fengnar: 9-18
Rangstöður: 0-9