Fréttablaðið - 12.08.2010, Blaðsíða 16

Fréttablaðið - 12.08.2010, Blaðsíða 16
16 12. ágúst 2010 FIMMTUDAGUR hagur heimilanna HEILSA „Ríkið setur smokka í hæsta skattþrep sem gerir það að verkum að það er 25,5 prósenta virðisauka- skattur á þeim,“ segir Halldór Guð- mundsson, annar eigandi Líkama og lífsstíls, umboðsaðila One smokka á Íslandi. Halldór er þeirrar skoðunar að smokkar ættu að vera án virðis- aukaskatts eða í mesta lagi skatt- lagðir eins og matvæli og aðrar nauðsynjavörur. Álfheiður Ingadóttir heil- brigðisráðherra segir beiðni frá Sóttvarnaráði hafa legið á borði heilbrigðisráðu- neytisins frá því árið 2004, varð- andi aðgang ungs fólks að ókeypis smokkum. „Klamidía er í sókn hér á landi og það kemur í ljós í könnun frá því í sumar að það eru ekki nema tuttugu prósent ungmenna sem nota smokk,“ segir Álfheiður. „Allt frá árinu 2004 hefur Sóttvarnaráð lagt þetta til við ráðherra án þess að það hafi leitt til niðurstöðu. Við höfum kallað eftir upplýsingum frá fjármálaráðuneytinu og Landlækni varðandi þetta mál.“ Samkvæmt upplýsingum frá fjármálaráðuneytinu voru tekjur ríkisins árið 2009 af innflutningi á smokkum um 25,6 milljónir, fyrir álagningu heild- og smásala. Haraldur Briem sóttvarnalæknir, segir vel fylgst með smitleiðum kyn- sjúkdóma af Landlæknisembætt- inu. „Það myndi draga gríðarlega úr tíðni ýmissa kynsjúkdóma ef Íslendingar væru duglegri að nota smokkinn,“ segir Haraldur. „Það er verið að skoða þessi mál í fullri alvöru. Hvort mögulegt sé að auka aðgengi að smokkum og lækka verð- ið á þeim. Einnig verður að sann- færa ungt fólk í eitt skipti fyrir öll um mikilvægi þess að nota þá.“ Haraldur segir gríðarlegan kostnað fylgja því að greiða niður smokka, en það hafi verið rætt innan emb- ættisins. Stefán R. Birgisson, deildarstjóri hjá Halldóri Jónssyni ehf., umboðs- aðila Durex á Íslandi, er ekki sam- mála því að verð á smokkum sé fyrirstaða hjá ungu fólki. „Notk- unin hefur haldist stöðug á síðustu árum,“ segir Stefán. „Smokkar eru ekki feimnismál lengur og að meðal- tali kostar stykkið um 150 krónur.“ Samkvæmt könnun Fréttablaðs- ins eru smokkar ódýrastir í net- versluninni Smokkur.is, 1.199 krón- ur stór pakki. sunna@frettabladid.is 1999 2001 2003 2005 2007 2009 Útgjöldin > Gistinætur Íslendinga á tjaldsvæðum HEIMILD: HAGSTOFA ÍSLANDS 168.591 196.474 206.326 215.551 232.071 340.180 „Ég hef einstakt lag á því að fá í fötin mín hina ýmsu bletti og það er eitt húsráð sem hefur reynst mér afskaplega vel,“ segir Gabriella Unnur Kristjánsdóttir, laganemi og varaformaður Stúdentaráðs HÍ. „Til að ná mjög erfiðum blettum úr fötum skal bleyta blettinn vel, strá svo slatta af salti yfir og láta standa í sólarhring. Næst er flíkin sett í þvottavél og kemur undantekningalaust blettalaus út. Saltið dregur í sig vökva og tekur litinn úr blettinum með. Gullið húsráð sem móðir mín kenndi mér.“ GÓÐ HÚSRÁÐ SALTIÐ Á BLETTINA ■ Gabriella Unnur Kristjánsdóttir er gjörn á að fá bletti í fötin. NEYTENDUR Fríhöfnin í Leifsstöð er oft á tíðum lokaáfangi leiðangra Íslendinga úr landi. Algengt er að fólk birgi sig upp af sælgæti við heimkomuna í trausti þess að vör- urnar séu ódýrari en í almennum verslunum, enda án virðisauka- skatts og aðflutningsgjalda. Laus- leg könnun Fréttablaðsins á kíló- verði á sælgæti í fríhöfninni borið saman við verð í lágvöruverðs- verslunum Bónuss, leiddi í ljós að fríhöfnin er í flestum tilvikum dýrari. Samanburður á verði Síríus Nóa kropps og Freyju djúpa sýndi fram á slíkt hið sama. 400 gramma poki af Nóa kroppi kost- ar 749 krónur í fríhöfninni en 498 krónur í Bónus. 180 gramma poki af Freyju djúp- Fríhöfnin á Keflavíkurflugvelli er ekki í samkeppni við íslenskan markað: Sælgæti oft dýrara en í Bónus Suðurlandsbraut 20, Reykjavík | Sími 588 0200 | www.eirvik.is Kynntu þér málið hjá sölumönnum Eirvíkur Kaffivél fyrir kröfuharða Verð frá kr. 119.000* ENA kaffivélarnar frá JURA eru ekki nema tæpir 24 cm á breidd. Í þær má setja uppáhalds kaffibaunirnar þínar og stilla styrkleika kaffisins að eigin óskum. ENA kaffivélarnar hafa hlotið evrópsku neytendaverðlaunin sex sinnum og eru með mest seldu vélum í Evrópu í dag. Bjóðum einnig fjórar gerðir af sérvöldum kaffibaunum frá JURA Smokkar settir í hæsta skattþrepið Virðisaukaskattur á smokkum er 25,5 prósent. Beiðni frá Sóttvarnaráði um niðurgreiðslu á smokkum hefur legið hjá ráðuneytinu síðan 2004. Um 20 pró- sent ungmenna nota smokk, samkvæmt niðurstöðum nýrrar könnunar. ÁLFHEIÐUR INGADÓTTIR HARALDUR BRIEM „Bestu kaupin mín en jafnframt þau ópraktískustu eru Júníform-kjólarnir mínir sem ég nota mjög mikið. Ég keypti fyrsta kjólinn minn stuttu eftir að ég átti mitt fyrsta barn og var á leið á árshátíð. Þetta var í fyrsta skipti sem ég fór úr heimagallanum með ælu- og mjólkurblettunum á og var því nokkuð lengi að hafa mig til. Þegar ég mætti síðan á árshátíðina var ég ægilega montin með mig en var síðan strax spurð að því hvenær ég ætti von á mér. Ég var svo glöð í kjólnum mínum að ég fór að gráta og skellihlæja á sama tíma. Annars hafa flest kaup mín verið ópraktísk. Nýlega keypti ég til dæmis tvisvar sinnum vindsæng og í hvorugt skiptið hélt hún lofti til morguns. Kannski fengum við hjónin okkur bara of mikið af grillkjöti kvöldið áður.“ NEYTANDINN: Edda Hermannsdóttir, hagfræðinemi Grét og skellihló á sama tíma Lauslegur verðsamanburður á kílóverði á sælgæti Vara Bónus - kílóverð Fríhöfn - kílóverð Mismunur M&M 1.939 kr. kg 1.679 kr. kg 260 kr. Kit Kat 1.595 kr. kg 1.833 kr. kg 283 kr. Haribo stjörnumix 1.496 kr. kg 1.499 kr. kg 3 kr. Nóa Kropp 1.223 kr. kg 1.873 kr. kg 650 kr. Freyju Djúpur 1.656 kr. kg 1.772 kr. kg 116 kr. Nemar á framhalds- og háskólastigi keyptu námsbækur fyrir 40 milljónir í gegnum heima- síðuna www.skiptibokamarkadur.is, á fyrsta starfsári síðunnar. Áætlað er að um 10.000 notaðar bækur hafi gengið kaupum og sölum um síðuna, en andvirði nýrra bóka er um 80 milljónir. Því má gera ráð fyrir að nemendur hafi saman sparað um 40 milljónir við bóka- kaup með því að nota síðuna. Árlegur bókakostnaður fyrir nemendur í framhalds- og háskólanámi getur farið upp í 60 þúsund séu bækurnar keyptar nýjar í verslunum. Einnig getur það munað töluverðu fyrir námsmenn að fá eitthvað fyrir gömlu námsbækurnar sínar í stað þess að leyfa þeim að safna ryki uppi í hillu. ■ Veraldarvefurinn: Hagstæð skólabókakaup á netinu SMOKKAR Sóttvarnaráð bað stjórnvöld fyrst um að niðurgreiða smokka 2004. Verð á smokkum í verslunum og á Netinu Verslun Vara Verð Apótekarinn Durex Featherlite, 12 stk. 1.742 kr. Bónus Durex Xtra Safe, 12 stk. 1.198 kr. Lyf og heilsa Durex Featherlite, 12 stk. 1.881 kr. Femin.is Durex Featherlite, 12 stk. 1.998 kr. Femin.is One Super Sensitive, 12 stk. 1.710 kr. Smokkur.is One Super Sensitive, 12 stk. 1.199 kr. EDDA HERMANNSDÓTTIR um kostar 298 krónur í Bónus en 319 krónur á Keflavíkurflugvelli. Guðlaugur Gauti Þorgilsson, rekstrarstjóri í Bónus, segir að markmiðið sé að vera með lægsta verð á landinu. „Við erum með tvo einstaklinga í vinnu hjá okkur sem skanna mark- aðinn í sífellu,“ segir hann. Hlynur Sigurðsson, fram- kvæmdastjóri fríhafnarinnar á Keflavíkurflugvelli, segir verð í versluninni vera lægra en gengur og gerist í landinu. „Við reynum að stilla verðið þannig að virðisauk- inn fari í vasa viðskiptavinarins,“ segir Hlynur. „Þar sem vörurnar okkar eru lausar við hann getum við ekki verið í neinni samkeppni við markaðinn.“ - sv Neytendasamtökin komast ekki að sömu niðurstöðu og Póst- og fjarskipta- stofnunin (PFS) um hvort símafyrirtækin fari að reglum um nýtt verðþak og nýjum reglum Evrópugjaldskrárinnar sem tóku gildi 1. júlí síðastliðinn. Samkvæmt úttekt PFS uppfylla öll símafyrirtækin fjögur skilyrði nýju regln- anna, en Neytendasamtökin telja ekkert þeirra gera það. „Í flestum tilfellum er um mínútuverð að ræða, en þar geta litlar upphæðir fljótlega orðið stórar þegar mínútur og viðskiptavinirnir margfaldast. Gjaldskrám þessara fyrirtækja verður því að breyta,“ segir í umfjöllun Neytendasamtakanna. Í nýjum Evrópureglum segja samtökin verðþak á svokölluðum reikisímtölum og SMS-skilaboðum innan Evrópu mikilvægast fyrir neytendur. „Þakið á við þegar hringt er úr farsíma, hringt er í farsíma, eða sent SMS- skilaboð úr farsíma sem er staddur utan heimalands síns en innan Evrópu. PFS segir í úttektinni að öll símafyrirtæki á Íslandi séu með gjaldskrár sínar í samræmi við nýtt verðþak. Svo virðist þó ekki vera í öllum tilvikum.“ ■ Álitamál á fjarskiptamarkaði NS og PFS rýna í gjaldskrárnar
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.