Fréttablaðið - 12.08.2010, Page 12
12. ágúst 2010 FIMMTUDAGUR
FRÉTTAVIÐTAL: Steindór Sigurgeirsson eigandi Storms Seafood
Miðasala | 568 8000 | borgarleikhus.is
Tryggðu þér miða á eina af
rómuðustu sýningum Vesturports
Takmarkaður sýningafjöldi
Miðasala er hafin!
Fjárfestingar sjávar-
útvegsfyrirtækisins
Storms Seafood hafa verið
í umræðunni vegna að-
komu erlendra fjárfesta
í félaginu. Jón Bjarnason
sjávarútvegsráðherra telur
að erlent eignarhald fyrir-
tækisins fari á svig við lög
og nefnd um erlenda fjár-
festingu rannsakar eignar-
hald fyrirtækisins.
Maðurinn á bak við Storm Seafood
er Patreksfirðingurinn Steindór
Sigurgeirsson sjávarútvegsfræð-
ingur. Hann hefur í áratug dval-
ið í Asíu ásamt eiginkonu sinni og
þremur börnum, þar sem hann
hefur efnast á því að byggja upp
fyrirtæki, meðal annars í fisk-
eldi.
Sjóðatískan
„Ég var búinn að vera starfandi
fyrir fyrirtækið Sæplast í nokkra
mánuði þegar ég komst á þá skoð-
un að tækifærin væru í Asíu. Þar
var allt að gerast í kringum alda-
mótin og ég heimtaði að vera send-
ur þangað. Á þeim tíma sá ég tæki-
færi sem varð þess valdandi að ég
stofnaði mitt eigið fyrirtæki. Það
er gaman að minnast á það að á
þessum tíma voru allir að stofna
sjóði, og það var útgangspunktur-
inn hjá mér í upphafi. Hins vegar,
í samskiptum mínum við þá sem
ég vildi fá til að fjárfesta í mínu
fyrirtæki, sá ég að menn yfirleitt
höfðu engan áhuga á því að byggja
eitthvað upp. Eina hugsunin virt-
ist vera að kaupa eitthvað, poppa
það upp og selja. Þessa sömu
hugsun sáum við hérna heima í
útrásinni. Ég gat ekki sætt mig
við þessa hugsun og hætti við að
setja fyrirtækið upp sem sjóð.
Hins vegar kynntist ég fólki á
sama tíma sem deildi þeirri hugs-
un með mér að byggja eitthvað
upp. Þeirra á meðal var Kaadoor-
ie-fjölskyldan sem horfir á fjár-
festingar sem langtímaverkefni,“
segir Steindór.
Umrædd Kaadoorie-fjölskylda
er ein sú efnaðasta í heiminum,
enda byggir hún á langri hefð í
viðskiptum og uppbyggingu fyrir-
tækja um allan heim. Eitt af þeim
verkefnum sem Steindór og Kaad-
oorie-fjölskyldan hafa unnið að
voru kaup á fyrirtæki sem elur
sandhverfu. Í dag er það eitt af
stærri fiskeldisfyrirtækjum í
Kína í sandhverfueldi.
Genetísk truflun
„Fyrir tveimur árum fór ég svo
að skoða Ísland; æðið sem virtist
hafa heltekið þjóðina fyrir kreppu
var í rénun og ég sá að það væri
núna loksins í langan tíma hægt
að fjárfesta í sjávarútvegi með
rekstur sem markmið, ekki að
gambla með veiðiheimildir í von
um hækkun. Mig langaði að gera
það sem mig dreymdi alltaf um
og byggja upp sjávarútvegsfyr-
irtæki. Þessar hugmyndir mínar
kynnti ég mínu samstarfsfólki en
það hafði auðvitað engan sérstak-
an áhuga á Íslandi til fjárfestinga
frekar en flestir aðrir. Ég er hins
vegar með þá genetísku truflun að
vera frá Íslandi og tilkynnti þeim
að ég vildi selja í eignarhaldsfélagi
mínu í Hong Kong, Nautilus Equity
Holdings, til að losa fé til fjárfest-
inga hér heima. Þegar þeim var
ljós alvara málsins vaknaði sú
hugmynd að fjölskyldan kæmi að
uppbyggingu fyrirtækisins með
mér. Ég tók vel í það enda sá ég að
þá hefði ég möguleika á að stofna
fyrirtæki með mun sterkara
eigið fé en ég áður hafði áætlað.
Ég vil mun frekar eiga fyrirtæki
með fólki sem ég treysti fullkom-
lega og mun fylgja mér í gegnum
súrt og sætt heldur en vera upp
á náð og miskunn hjá innlendum
eða útlendum bankastofnunum.
Þetta snýst um það hvernig fjár-
festa við viljum. Við viljum ekki
skammtímafjárfesta heldur þolin-
mótt fólk sem hefur metnað til að
byggja upp kraftmikil fyrirtæki.
Til þessa á löggjafinn að hvetja og
einbeita sér að því að gera Ísland
eftirsóknarvert í þeim skilningi.
Það þarf vart að minna á að Íslend-
ingar hafa sjálfir skilið hér eftir
sig sviðna jörð og af hverju eigum
við að fúlsa við tækifærum til að
fá með okkur góða fjárfesta?“
Langtímaverkefni
Stormur Seafood hefur síðan í
vetur stundað útgerð með tvo báta,
Storm KE 1 og Blíðu KE 17. Til
þeirrar útgerðar hefur fyrirtæk-
ið keypt 1.200 tonna aflaheimildir
sem hafa verið keyptar að mestu
af skuldlausum útgerðum, þar sem
annað virðist ekki í boði. Steindór
segir fátt spurður um hvort upp-
bygging fyrirtækisins sé á áætlun.
Hann segist vita að um langtíma-
verkefni sé að ræða að byggja upp
fyrirtæki í sjávarútvegi. Hlutafé
fyrirtækisins er um 400 milljónir
og skiptist á milli Steindórs, sem
á 57 prósent, og erlendu fjárfest-
anna, sem eiga 43 prósent. Hann
hyggst auka hlutafé fyrirtækisins
á næstunni og segist eiga fyrir því
sem til stendur að gera í uppbygg-
ingu Storms.
„Ég hef starfað í Kína í tíu ár og
það er auðvelt. Lög og regluverk
eru skýr og pólitíkin er ekkert að
hlaupa útundan sér við minnsta
tilefni og gefa yfirlýsingar,“ segir
Steindór og vísar til orða sjávar-
útvegsráðherra og Einars K. Guð-
finnssonar, fyrrum sjávarútvegs-
ráðherra og sveitunga síns, „sem
ætti nú að hafa haft nægan tíma
til að kynna sér reglur um erlent
eignarhald sem hann ásamt öðrum
samþykkti á þingi fyrir ekki svo
mörgum árum. Ég er að vona að
sá dagur renni upp að hér á Íslandi
verði ekki erfiðara að fjárfesta
heldur en í Kína.“
Magma er kveikjan
Steindór segir að umræðan um
erlenda fjárfestingu í Stormi Sea-
food verði að skoðast í samhengi
við kaup Magma á Hitaveitu Suð-
urnesja og hversu stjórnmálin eru
eldfim þessa dagana. Spurður um
upphlaup sjávarútvegsráðherrans
segir hann að það verði að virða
honum það til vorkunnar að hann
sat ekki á þingi þegar lögin voru
sett. Hins vegar fari hann með
málaflokkinn og ætti því að kunna
lögin að stórum hluta utanbókar.
„Magma-málið er kveikjan enda
hafa menn vitað af okkar fyrir-
tæki mánuðum saman og við aldrei
dregið dul á þetta eignarhald. Ef
hins vegar er litið til fréttaflutn-
ings Ríkisútvarpsins þá var mark-
miðið að búa til einhverja stemn-
ingu. Ég held að upphlaupið varpi
fyrst og síðast ljósi á stjórnsýsl-
una í landinu og störf þeirra sem
sitja á þingi. Ef þingmennirnir
skilja ekki lögin sem þar eru sett
og umræða skapast um þau, þá
verður að horfa til þeirra vinnu-
bragða sem þar eru viðhöfð. Rótin
að þessu eru mismunandi túlkan-
ir á lögum sem ættu að vera mjög
einföld og öllum skiljanleg. Það
eru þau hins vegar ekki.“
Fiskur verður alltaf veiddur
Steindór segist ekki óttast aðkomu
nefndar um erlenda fjárfestingu
og úttekt um eignarhald fyrirtæk-
isins. „Ég óttast ekki niðurstöðu
nefndarinnar. Ég hef enga ástæðu
til þess og held ótrauður áfram að
byggja upp mína útgerð,“ segir
Steindór. Hann segir jafnframt
að boðuð fyrningarleið stjórnvalda
haldi ekki fyrir sér vöku.
„Það tal allt hefur ekki áhrif
á mig því ég horfi á reksturinn.
Fiskur verður alltaf veiddur frá
Íslandi. Ég trúi því að sú leið sem
verður farin stórskaði ekki fyrir-
tækin og ég ætla að byggja upp
lítið til meðalstórt fyrirtæki sem
veiðir og vinnur úr tvö til þrjú þús-
und tonnum af hráefni á ári. Fyrir-
tækjum af þeirri stærð gengur vel
hér á landi.“
Fjölbreytt tækifæri
Steindór útilokar ekki frekari fjár-
festingar í sjávarútvegi og hefur
fylgst með verkefnum í fiskeldi.
Hann nefnir jarðvarma og tæki-
færi til að framleiða heitsjávarteg-
undir fyrir markaði í Evrópu og
Bandaríkjunum. „Það eru áhuga-
verð verkefni í gangi og ég fylgist
með þeim. Það er margt spennandi
að gerast í íslenskum sjávarútvegi.
Makríllinn er eitt, ég sé tækifæri í
beitukóng og sæbjúgum og veiði og
vinnslu á krabba. Það þarf ekki allt
að snúast um þessar hefðbundnu
tegundir. Þetta snýst um fyrirtæki
eins og okkar, unga nýliða í sjávar-
útvegi sem eru tilbúnir að stökkva
á nýjar hugmyndir og framkvæma
þær. Hvort mínir bakhjarlar vilji
taka þátt í frekari fjárfestingu
mun tíminn leiða í ljós. Ég útiloka
ekkert.“
Léttara að fjárfesta í Kína
MEÐ STORMINN Í FANGIÐ Steindór hefur víðtæka reynslu af fjárfestingum í Asíu
en segist hafa verið knúinn til að fara heim. Draumurinn var alltaf að byggja upp
sjávarútvegsfyrirtæki hér og hann fagnar aðkomu einnar ríkustu fjölskyldu heims
að því verkefni. Þar fer varkár fjölskylda, að hans sögn. Fólk sem tekur ekki þátt í
ævintýramennsku og tekur fjárfestingar alvarlega. FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR
Svavar
Hávarðsson
svavar@frettabladid.is