Fréttablaðið - 12.08.2010, Blaðsíða 35
Jazz í 15 daga!
Vi ÊvinnumÊ’Êhlj— Django Bates spilar með tríói
sínu í Norræna húsinu á Jazz-
hátíð Reykjavíkur og verður
einnig með einleikstónleika í
Þjóðmenningarhúsinu.
Fyrirsögnin hér að ofan er bein til-
vitnun úr viðtali við breska pían-
istann Django Bates í tímaritinu
Jazzwise fyrr á þessu ári. Þessi
skemmtilegi, og sumir segja stór-
undarlegi, listamaður hefur ekki
farið troðnar slóðir í list sinni og
lætur sér fátt óviðkomandi þegar
kemur að efnisvali og úrvinnslu.
Hann er alinn upp í fjölskyldu
ákafra tónlistaráhugamanna og
vandist því snemma að engin tón-
list væri annari æðri. Honum veit-
ist því auðvelt að sjá skóginn fyrir
trjánum hvað tónlistina varðaði
og meðal þeirra sem hann hefur
unnið náið með eru menn á borð
við spunameistarann Evan Parker,
tónsmiðinn Gavin Bryars, ameríska
saxófónleikarann og súpertónskáld-
ið John Zorn og víólu- og gítarleik-
arann Jonny Greenwood úr Radio-
head. Svona blanda listamanna er
Django Bates eðlileg og hefur verið
allt frá því að hann starfaði í hljóm-
sveitinni Loose Tubes á níunda ára-
tug síðustu aldar.
Það kom nokkuð á óvart þegar
Django Bates tók tónlist saxófón-
leikarans Charlie „Bird“ Parker til
handargagns. Plötur hans fram að
því höfðu ekki gefið fyrirheit um að
slíkt væri á döfinni. „Þetta er það
fyrsta sem ég geri þar sem hryggj-
arstykkið er óumdeilanlega jazz.
Líklega er allt hitt sem ég hef gert
flokkað undir annað,“ sagði Bates
um plötu sína með Beloved Bird
tríóinu sem kom út nýverið.
Og gagnrýnendur eru á einu
máli um að vel hafi tekist:
MIKE FLYNNTIME OUT
Hin mannblendna og lífsglaða
tónlistarsýn Django Bates
virðist ekki vera í takt við
hina frekar jarðbundnu
bresku senu. Jafnvel útjösk-
uðustu lög hins goðsagnakennda
Charlies Parker öðlast nýtt líf
þegar Bates (með nákvæmni
skurðlæknisins) bútar þau í sund-
ur og togar þau og teygir ásamt
tríói sínu. Og allt virðist vera
spunnið á staðnum.
JOHN FORDHAMTHE GUARDIAN
Vortex-klúbburinn var pakkaður.
Návígið við þetta magnaða tríó
gerði hinar hrynhöfugu útsetn-
ingar enn magnaðri en ella. Bates
situr uppi með eitt af mögnuð-
ustu píanótríóum jazzins. Enda-
laus leit hans að nýjum upplifun-
um gæti gert það að tímabundnu
fyrirbæri.
MIKE HOBARTFINANCIAL
TIMES
Yfrburðatækni Django
Bates hefur jafnan hald-
ið í við hugmyndaflug hans.
Honum hefur tekist að forðast
gildrurnar sem felast í því að
höndla tónlist Parkers eins og
heilagan texta. Bates hikar ekki
við að setja eigið mark á músíkina
með því að endurraða henni með
breyttum takttegundum og óvænt-
um áherslum.
Django Bates spilar með Belov-
ed Bird tríói sínu í Norræna Hús-
inu 19. ágúst. Hann mun líka leika
einleikstónleika í Þjóðmenningar-
húsinu þann 18. ágúst, en þá kall-
ar hann Autumn Fires and Green
Shoots.
„Mér líkar vel við jazz.
Hann fær mig til að hlæja“