Fréttablaðið - 12.08.2010, Qupperneq 58
38 12. ágúst 2010 FIMMTUDAGUR
> U2 SPILAR NÝ LÖG
Írska dægurlagasveitin U2 lék þrjú
ný lög á tónleikum á Ítalíu um
helgina. Lögin heita Glastonbury,
North Starf og Return Of The Sting-
ray Guitar og verða væntanlega á
næstu plötu hljómsveitarinnar.
folk@frettabladid.is
Önnur platan frá hljómsveitinni
Rökkurró, Í annan heim, kemur
út á fimmtudaginn. Hægt er að
hlusta á plötuna í heild sinni sem
og kaupa hana í forsölu á síðunni
Gogoyoko.com. Jafnframt verð-
ur þar hægt að nálgast aukalag
sem er ekki á plötunni sjálfri en
í því heyrist kunnugleg rödd úr
íslensku tónlistarlífi. Rökkurró
heldur tónleika í 12 Tónum, sem
gefa út plötuna, á föstudaginn
klukkan 17.30. Þar verður hægt
að fá forsmekkinn af plötunni og
verða einungis lög af henni spil-
uð.
Ný plata frá
Rökkurró
RÖKKURRÓ Önnur platan frá hljómsveit-
inni Rökkurró, Í annan heim, kemur út á
fimmtudaginn.
Rapparinn Eminem gaf nýver-
ið út lag ásamt söngkonunni
Rihönnu sem hefur heldur betur
slegið í gegn vestan hafs. Amma
Eminem viðurkenndi í nýlegu
viðtali að henni þætti gaman að
sjá barnabarn sitt og Rihönnu
saman. „Ég skil vel hvað stúlk-
urnar sjá við hann. Hann er
afskaplega sjarmerandi og er
með þessi fallegu, bláu augu og
hlýlegt bros. Rihanna væri full-
komin fyrir Marshall, en hann
þarf tíma til að njóta lífsins núna
og á ekki að festa sig í sambandi
að svo stöddu,“ sagði amman.
Lagið Love the Way You Lie
hefur verið mikið í umræðunni
undanfarið því textinn fjall-
ar um heimilisofbeldi og finnst
sumum það taka helst til vægt á
málinu. Rihanna hefur þó svar-
að gagnrýnisröddum
og sagt textann ná
að fanga raun-
veruleikann
vel. Hún hætti
sem kunnugt
er með Chris
Brown í ársbyrj-
un eftir að hann
veittist að henni
eftir rifrildi.
Amma
vill Rihönnu
TILVALIN KÆR-
ASTA Amma
Eminem telur
að Rihanna
yrði gott
kvonfang
fyrir barna-
barn sitt.
Hin vinsæla söngkona, Lady Gaga, tók
nýverið aftur saman við gamlan kær-
asta sinn, bareigandann Luc Carl. Eftir
aðeins nokkurra vikna samband frétti
söngkonan af því að unnustinn átti
einnig í sambandi við aðra stúlku.
„Þau eru nýbyrjuð saman en hún
er hrædd um að missa Carl aftur því
hún getur ekki treyst honum. Hún
er líka miður sín yfir því að vera
„hin konan“,“ var haft eftir ónefnd-
um vini söngkonunnar. Parið átti í
sambandi áður en Lady Gaga skaust
upp á stjörnuhimininn og áttu að
hafa hætt saman vegna fíkniefna-
vanda hennar, þótt aðrar heimildir
segi að Carl hafi haldið framhjá söng-
konunni og hún því bundið enda á sam-
bandið.
„Gaga hefur náð heimsfrægð en hvað
einkalífið varðar finnst henni hún mis-
heppnuð því hún fær ekki manninn sem
hún elskar til að elska hana á móti.“ Sam-
kvæmt fyrrnefndum vini söngkonunnar
á hún að hafa verið full grunsemda og
ákveðið að hringja í fyrrum kærustu
sem sagðist enn eiga í sambandi við
manninn. „Gaga varð miður sín. Hún ótt-
ast að hann sé aðeins með henni vegna
frægðar hennar og fjár.“
Misheppnuð Gaga
MISHEPPNAÐ EINKALÍF Lady Gaga er heims-
fræg en finnst hún misheppnuð í einkalífinu.
NORDICPHOTOS/GETTY