Fréttablaðið - 12.08.2010, Side 70
50 12. ágúst 2010 FIMMTUDAGUR
„Jú, það stemmir. Við ætlum
að flytja okkur í nýtt húsnæði í
kringum áramótin en verslunin
Sautján mun ekki opna þar,“ segir
Svava Johansen, eigandi NTC,
sem hefur tekið gamla Skífuhús-
næðið við Laugaveg 26 á leigu og
stefnir á að flytja þangað fyrir
jól.
Frá næstu áramótum hefur því
verslunin Sautján sungið sitt síð-
asta í bili í miðbænum. „Það er þó
nokkuð síðan við fluttum verslun-
ina frá miðbænum og yfir í mjög
flott pláss í Smáralindinni en auk
GS skóbúðarinnar, höfum við
starfrækt Sautján einungis á jarð-
hæðinni í Laugavegshúsnæðinu
síðan þá og munum gera til næstu
áramóta,“ segir Svava sem finnst
Sautján-búðirnar henta betur í
verslunarmiðstöðvunum.
Sautján opnaði sína fyrstu
verslun á Laugavegi 46 árið 1976
og hefur sett sinn svip á aðal-
verslunargötu Reykjavíkurborgar
síðan þá. Það er því óhætt að segja
að brotthvarf Sautján úr mið-
bænum marki ákveðin tímamót
í sögu fyrirtækisins. Árið 1991
var verslunin flutt og starfsemi
NTC, í húsnæðið að Laugavegi
91. Í dag rekur NTC fyrirtækið
tuttugu verslanir, saumastofu og
heildsölu.
„Það getur vel verið að við
opnum Sautján aftur í smærri
mynd neðar á Laugaveginum
í framtíðinni en akkúrat í dag
stendur það ekki til,“ segir Svava
en hún er spennt fyrir húsnæðinu
þar sem Skífan var áður.
„Þetta er flott og skemmtilegt
rými sem býður upp á marga
möguleika. Verslunin er stór með
tveimur hæðum sem ég vil gera
mikið úr. Okkur langar til að hafa
þar flottar tískusýningar, sérstak-
lega þegar nýju línurnar koma
inn á vorin og haustin til þess að
gefa fólki kost á að sjá það nýj-
asta hverju sinni,“ segir Svava en
hún er þessa dagana að undirbúa
sig og sitt fólk fyrir tískuvikuna í
Kaupmannahöfn sem er um næstu
helgi þar sem keyptar verða inn
vörur sem Íslendingar geta fundið
í verslunum næsta vor og sumar.
alfrun@frettabladid.is
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
BESTI BITINN Í BÆNUM
ár eru síðan
Sautján opnaði á
Laugavegi 46.34
LÁRÉTT
2. áfall, 6. frá, 8. glaumgosi, 9. fugl,
11. tveir eins, 12. brotthlaup, 14. fót-
mál, 16. klafi, 17. frjó, 18. frestur, 20.
stöðug hreyfing, 21. illgresi.
LÓÐRÉTT
1. óheilindi, 3. einnig, 4. matgæðing-
ur, 5. að, 7. skemill, 10. ról, 13. hey-
skaparamboð, 15. matur, 16. munda,
19. tveir eins.
LAUSN
LÁRÉTT: 2. lost, 6. af, 8. gæi, 9. lóa,
11. ll, 12. strok, 14. skref, 16. ok, 17.
fræ, 18. töf, 20. ið, 21. arfi.
LÓÐRÉTT: 1. fals, 3. og, 4. sælkeri, 5.
til, 7. fótskör, 10. ark, 13. orf, 15. fæði,
16. ota, 19. ff.
„Besti bitinn er pylsa með öllu
á Bæjarins bestu niðri í bæ.
Pylsurnar eru sérstaklega góðar
þegar Svenni Blöndal eða Sölvi
eru að vinna.“
Sigtryggur Berg Sigmarsson listamaður.
SVAVA JOHANSEN: VERSLUNIN BÚIN AÐ VERA Á LAUGAVEGINUM FRÁ 1976
Sautján kveður miðbæinn
EVAN Í SKÍFUHÚSNÆÐIÐ Svava Johansen ætlar að flytja Evubúðina í gamla Skífuhús-
næðið en verslunin Sautján hættir að starfsemi sinni í miðbænum í bili.
FRÉTTABLADID/VALLI
„Ég er furðu lostinn og skil ekki
hvað er í gangi,“ segir tónlistar-
maðurinn Hjörtur Geirsson, sem
er að eigin sögn undir stífu eftir-
liti hjá stjórnendum Myspace-tón-
listarsíðunnar.
„Það er ekki heimilt að segja
hvað sem er á Myspace. Ég er
búinn að reka mig á ótrúlega hluti
í sambandi við það,“ segir Hjört-
ur. Hann fékk á sínum tíma verð-
laun fyrir þrjú lög sem hann sendi
í lagasmíðakeppni hjá Paramount
í Bandaríkjunum og þau voru í
framhaldinu gefin út á safnplötu.
Hann hefur gefið út tvær sólóplöt-
ur og kom sú síðari, The Flow, út
árið 2007.
Hjörtur hefur átt í erfiðleikum
með að birta myndbönd á síðunni
sinni, sem hefur ekki gerst á Face-
book og Youtube. „Ég fékk það á
tilfinninguna að það væri verið að
ritskoða mig,“ segir hann og telur
að ekki megi rita orðið „censor“
(ritskoðun) á síðunni. Ekki megi
heldur tala þar illa um kennara.
„Þetta er alveg með ólíkindum.
Það er eins og þeir séu að fylgjast
með hverju orði sem ég skrifa.“
Hjörtur segir þetta bagalegt
enda notar hann Myspace til að
koma tónlist sinni á framfæri úti
í hinum stóra heimi. Hann hefur
íhugað að hætta með síðuna en
vill ekki gefast upp fyrr en í fulla
hnefana. „Ég sendi þeim skilaboð
og var mjög reiður. Þeir hafa ekki
svarað mér en ég hef alveg eins
búist við því að þeir sendu mér
skilaboð um að þeir ætli að loka
þessu.“
Þrátt fyrir vandræðin er Hjört-
ur enn á fullu í tónlistinni því
nýlega var hann beðin um að
semja fjögur lög fyrir jafnmarga
kántrítónlistarmenn í Nashville,
eða þau Blake Shelton, Adrianna
Freeman, Lucas Hoge og Wyn-
ona.
Furðu lostinn yfir ritskoðun á Myspace
HJÖRTUR GEIRSSON Hjörtur er að eigin sögn undir stífu eftirliti hjá stjórnendum
Myspace-síðunnar. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Reykvíkingar ráku upp
stór augu í vikunni
þegar þeir tóku eftir að
risasnekkja milljarða-
mæringsins Paul Allen
var horfin. Snekkjan
er þó ekki farin út fyrir
íslenska landhelgi og sást síðast
sigla um Eyjafjörðinn, þannig
að það er aldrei að vita nema
Akureyringar fái heimsókn frá
Allen og föruneyti hans á næstu
dögum. Það er reyndar óvíst hvort
milljarðamæringurinn sjálfur er
enn þá um borð, en samkvæmt
heimildum Fréttablaðsins skellti
hann sér á tónleika U2 á Ítalíu um
síðustu helgi. Það er þó líklegt að
hann sé kominn aftur enda með
einkaþotu, bát, þyrlu og tvo kafbáta
til umráða.
Jón Gunnar Geirdal og félagar
hjá útgáfufyrirtækinu Senu héldu
árlega fræg partí fyrir nokkrum
árum þar sem ekkert var til sparað.
Eftirminnileg eru partí í Hafnarhús-
inu og á Apótekinu þar sem reglur
um klæðaburð voru teknar
svo alvarlega að þotu-
liðinu var óhikað vísað
frá. Talið var að mörg ár
myndu líða þar til annað
slíkt partí yrði haldið hér
á landi, en það ku
ekki vera rétt …
Mikill titringur er nefnilega á meðal
ákveðins hóps í Reykjavík þessa
dagana vegna risapartís sem verður
haldið í Reykjavík í lok ágúst. Sam-
kvæmt heimildum Fréttablaðsins
verður Saltfélaginu breytt í klúbb í
eitt kvöld og munu veigarnar fljóta
eins og þær gerðu í frægum partí-
um fyrir tveimur til þremur árum.
Þegar reynt er að grafast fyrir um þá
sem koma fram í partínu kemur eitt
nafn upp úr krafsinu: Dj Margeir.
Það er samt ljóst að fleiri munu
þeyta skífum þetta kvöld. Erfitt er
að verða sér úti um miða í
partíið, en samkvæmt
sömu heimildum eru
þeir þegar orðnir afar
eftirsóttir – þótt fæstir
viti með vissu hvað
verði í gangi. Þýðir þetta
að kreppan sé
búin? - afb
FRÉTTIR AF FÓLKI
„Ég fer út og verð viðstaddur fjórar sýningar
en þetta er í fyrsta sinn sem ég kem til Suður-
Kóreu og því mjög spenntur,“ segir Örn Marinó
Arnarson kvikmyndargerðarmaður.
Mynd Arnar Marinós og Þorkels Harðar-
sonar, Feathered Cocaine, hefur verið valin
til sýninga á stórri kvikmyndahátíð í Seoul í
Suður-Kóreu. Hátíðin ber nafnið EIDF og var
Feathered Cocaine valin úr hópi 536 kvikmynda
til sýninga á hátíðinni.
„Við sóttum í rauninni ekkert eftir að komast
á hátíðina heldur höfðu aðstandendur hennar
samband við okkur,“ segir Örn Marinó en mynd-
in hefur átt góðu gengi að fagna úti í hinum
stóra heimi og vakið meiri athygli en þá félaga
hefði nokkurn tíma getað grunað. Hún var
meðal annars á Tribeca-hátíðinni í New York og
var sýnd fimm sinnum þar fyrir fullu húsi.
Myndin er heimildarmynd sem fjallar um
fálkasmygl og afleiðingar þess. Myndin tók
hins vegar óvænta stefnu þegar aðalsöguhetja
myndarinnar, Alan Parrot, fullyrti að Osama
Bin Laden byggi í Íran undir verndarvæng þar-
lendra stjórnvalda og væri mikill áhugamaður
um fálka. Það kemur fram í myndinni að fálka-
sala er ein helsta tekjulind Al Kaída-samtak-
anna. Eins og Fréttablaðið hefur áður greint frá
hafa þessar upplýsingar vakið mikil viðbrögð
hjá bandarískum fjölmiðlum.
Landsmenn geta barið myndina augum í haust
þegar hún verður frumsýnd í íslenskum bíóhús-
um. „Við hlökkum mikið til að sýna myndina hér
á landi enda er þá löngu og ströngu ferli lokið,“
segir Örn Marinó en alls tók vinnuferlið í kring-
um myndina sex ár.
- áp
Fálkamynd sýnd á hátíð í Suður-Kóreu
ÚTVALIN Mynd þeirra Arnar Marinós Arnarsonar og
Þorkels Harðarsonar, Feathered Cocaine, hefur vakið
mikla athygli erlendis. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
Sýningar á leikritinu
Hallveig ehf.
í Reykholti.
14. ágúst kl. 17:00
21. ágúst kl. 17:00
28. águst kl. 17:00
Miðapantanir á heimasíðu
http:// hallveig.sida.is og í
síma 690 1939
Rakarastofan
Klapparstíg
S: 551 3010
Hringdu í síma
ef blaðið berst ekki