Fréttablaðið - 28.08.2010, Blaðsíða 88
56 28. ágúst 2010 LAUGARDAGUR
sport@frettabladid.is
FÓTBOLTI Enska úrvalsdeildarlið-
ið Liverpool þarf að misstíga sig
ansi hressilega ætli liðið að sitja
eftir í Evrópudeild UEFA en
dregið var í eina tólf riðla í gær.
Liverpool þarf að fara til Rúm-
eníu, Ítalíu og Hollands á móti
liðum sem öll ættu að teljast tals-
vert veikari en enska liðið.
Lið þeirra Kolbeins Sigþórsson-
ar og Jóhanns Bergs Guðmunds-
sonar, AZ Alkmaar, mætir tveim-
ur sterkum austantjaldsþjóðum í
sínum riðli.
Rúrik Gíslason og félagar hans
í OB eru í frekar skemmtilegum
riðli með Stuttgart, Getafe og
Young Boys. - hbg
> Einn leikur í Pepsi-deildinni
Það er nóg af íslenskum fótbolta í boði um helgina og 18.
umferð Pepsi-deildar karla hefst klukkan 16.00 á Voda-
fone-vellinum í dag. Þá munu Haukar taka á móti Kefla-
vík. Haukar eru sem fyrr á botni deildarinnar en eygja enn
veika von um að bjarga sér frá falli. Frábær sigur liðsins
á Breiðabliki ætti að gefa liðinu byr undir báða vængi í
dag. Keflvíkingar hafa átt
erfitt uppdráttar síðustu
vikur og ekkert fallið með
liðinu. Keflvíkingar ætla
þó örugglega að koma sér í
gang með sigri í dag.
Fylkismaðurinn Tómas Joð Þorsteinsson var talsvert í sviðsljósinu
í leik Fylkis og KR á fimmtudag. Tómas fékk að líta rauða spjaldið
undir lok leiksins og missti í kjölfarið stjórn á skapi sínu og stjak-
aði við Örvari Sæ Gíslasyni dómara á leið sinni af vellinum. Það
gæti reynst honum dýrt.
„Þetta var uppsafnaður pirringur. Bæði að vera að
tapa 4-1 á heimavelli gegn KR og svo hefur gengið illa
í síðustu leikjum. Gremjan var því uppsöfnuð hjá mér.
Þegar ég fæ gult spjald þá reiddist ég aðeins. Ætlaði
svo að skila boltanum á staðinn þar sem átti að taka
aukaspyrnuna en hendi boltanum of ákaft fyrir smekk
dómarans. Hann gefur mér því rautt spjald,“ segir Tómas
Joð sem reiddist enn meir þegar hann sá rauða spjaldið.
„Þegar ég sé rauða spjaldið þá sé ég fyrir mér að það sem
Óli þjálfari hefur sagt í tvo til þrjá mánuði að spila með haus-
inn kaldan. Þá finnst mér tilgangslaust af minni hálfu að láta
reka mig af velli þegar leikurinn var nánast búinn. Mér fannst
það líka tilgangslaust hjá dómaranum. Ég sé það reyndar núna
að það var rangt af mér að bregðast við á þennan hátt. Þegar
þarna var komið við sögu þurfti lítið til að senda mann fram af
brúninni og ég fór fram af henni,“ segir Tómas svekktur út í sjálfan
sig.
Hann segist ekki endilega búast við löngu banni en er þó
ekki alveg viss.
„Ég er ekkert of stressaður yfir því. Miðað við hvernig
þetta er hér heima býst ég við 2-3 leikja banni. Ég sé
ekki ástæðu til þess að gefa mér lengra bann. Kannski
vilja dómarasamtökin gera fordæmi úr mér þar sem
ég snerti dómara. Þetta verður bara að koma í ljós.
Miðað við hvað mótið er stutt er blóðugt að fá 4-5
leikja bann,” segir Fylkismaðurinn Tómas Joð Þor-
steinsson.
TÓMAS JOÐ ÞORSTEINSSON: FÉKK RAUTT SPJALD GEGN KR OG STJAKAÐI SÍÐAN VIÐ DÓMARANUM Í KJÖLFARIÐ
Býst ekki endilega við mjög löngu leikbanni
A-riðill: Juvent us, Man. City, Salzburg,
Lech Poznan
B-riðill: Atletico Madrid, Bayer Leverkusen,
Rosenborg, Aris Thessaloniki
C-riðill: Sporting Lisbon, Lille, Levski Sofia,
Gent
D-riðill: Villarreal, Club Brugge, Dinamo
Zagreb, PAOK
E-riðill: AZ Alkmaar, Dynamo Kiev, BATE
Borisov, FC Sheriff
F-riðill: CSKA Moskva, Palermo, Sparta
Prag, Lausanne
G-riðill: Zenit St. Petersburg, Anderlecht,
AEK Aþena, Hadjuk Split
H-riðill: Stuttgart, Getafe, OB, Young Boys
I-riðill: PSV Eindhoven, Sampdoria Metal-
ist Kharkiv, Debreceni
J-riðill: Sevilla, PSG, Borussia Dortmund,
Karpaty Lviv
K-riðill: Liverpool, Steaua Búkarest,
Napoli, Utrecht
L-riðill: Porto, Besiktas, CSKA Sofia, Rapid
Vín
Dregið var í riðla fyrir Evrópudeild UEFA í gær:
Þægilegt hjá Liverpool
HANDBOLTI Kiel og Hamburg höfðu
algera yfirburði í þýsku úrvals-
deildinni í fyrra. Snemma stungu
þau önnur lið í deildinni af og
héldust í hendur nánast allt til
enda tímabilsins. Að lokum fór
svo að Kiel varði titilinn sem var
mikið áfall fyrir Hamburg sem
hefur eytt háum fjárhæðum í liðið
sitt.
Alfreð Gíslason, þjálfari Kiel,
býst við Hamburgarliðinu enn
sterkara á þessari leiktíð sem og
Íslendingaliðinu Rhein-Neckar
Löwen.
„Það er mikil tilhlökkun að fara
aftur af stað. Það er vissulega allt-
af gott að fara í frí en undirbún-
ingstímabilið finnst mér aldrei
skemmtilegt. Mér finnst það frek-
ar leiðinlegt. Ég bíð því spennt-
ur eftir að spila einhverja leiki,“
segir Alfreð en Kiel hefur titil-
vörn sína á heimavelli á morgun
þegar liðið mætir Friesenheim.
„Ég er mjög sáttur við hópinn
sem ég hef í höndunum en hann er
lítill í samanburði við leikmanna-
hópana sem Hamburg og Rhein-
Neckar Löwen hafa. Það er bara
þannig og ég ætla ekkert að væla
yfir því,“ segir Alfreð sem fékk
Daniel Kubes frá Lemgo í sumar
og línumanninn serbneska Milutin
Dragicevic frá Bjerringbro-Silke-
borg í Danmörku.
„Það verður erfiðara að verja
titilinn í ár en í fyrra. Ég á von á
því að Rhein-Neckar Löwen blandi
sér miklu meira í toppslaginn í ár
og geri einnig ráð fyrir Flensburg
mjög sterku. Ég held að fjögur
lið berjist um titilinn í ár,“ segir
Alfreð en hann segir það skipta
miklu máli fyrir Löwen að Ólaf-
ur Stefánsson sé búinn að aðlag-
ast liðinu.
„Það breytir miklu að Óli sé
búinn að vera með liðinu í heilt
ár. Hann er því búinn að venj-
ast þeim og þeir honum. Svo fékk
liðið Borge Lund frá okkur og svo
kom Robbi {Róbert Gunnarsson]
til þeirra og á eftir að nýtast þeim
vel. Þegar Gaui [Guðjón Valur Sig-
urðsson] verður kominn á fullt
með liðinu þá verður þetta svaka-
legt lið,“ sagði Alfreð.
„Þetta verður þræljafnt allan
tímann og við munum sjá topplið-
in tapa fleiri stigum heldur en síð-
ustu ár. Við setjum samt stefnuna
á titilinn eins og alltaf.“
henry@frettabladid.is
VERÐUR ERFIÐARA EN Í FYRRA
Þýska úrvalsdeildin í handknattleik er farin af stað. Alfreð Gíslason og lærisveinar hans eiga titil að verja.
Alfreð býst við afar erfiðri titilbaráttu og segir að fleiri lið eigi eftir að blanda sér í baráttuna en síðustu ár.
ÆTLAR AÐ VERJA TITILINN Alfreð Gíslason gerir ráð fyrir erfiðri titilvörn en ætlar sér
samt ekkert annað en meistaratitilinn. NORDIC PHOTOS/BONGARTS
Kiel varð fyrir miklu áfalli á undirbúningstíma-
bilinu þegar Frakkinn sterki Daniel Narcisse sleit
krossband í hné. Hann verður því væntanlega ekki
með liðinu fyrr en í mars.
Aron Pálmarsson mun því fá enn frekari ábyrgð á
öðru ári sínu með liðinu.
„Ég mun veðja á Aron en það var alltaf stefnan hvort
sem var að nota hann meira. Við erum með fjóra rétthenta
fyrir utan og nú eru þrír eftir. Það er því ljóst að við
þolum ekki miklu meiri meiðsli hjá okkur,“ segir Alfreð
sem saknar líka Kim Andersson en hann ætti að vera
klár í slaginn í október.
Kiel verður lengi án Frakkans Daniel Narcisse:
Alfreð mun veðja á Aron
Evrópudeild UEFA
1. deild karla:
Grótta - Víkingur 1-6
Mark Gróttu: Ásgrímur Sigurðsson. Mörk Víkings:
Helgi Sigurðsson 2, Marteinn Briem 2, Viktor Örn
Guðmundsson, Þorvaldur Sveinn Sveinsson.
HK - Fjölnir 1-0
Ólafur Júlíusson.
LEIKIR DAGSINS:
14:00 ÍR - Þór Akureyri (ÍR-völlur)
14:00 Fjarðabyggð - Njarðvík (Eskifjarðarv.)
15:00 KA - Leiknir (Akureyrarvöllur)
STAÐAN:
Víkingur R 19 12 3 4 39-21 39
Leiknir 18 12 2 4 27-13 38
Þór 18 9 7 2 36-19 34
Fjölnir 19 9 4 6 34-26 31
ÍR 18 8 5 5 29-29 29
ÍA 19 6 8 5 30-26 26
KA 18 6 5 7 26-31 23
HK 19 6 4 9 26-32 22
Þróttur 19 6 4 9 26-34 22
Grótta 19 4 5 10 25-37 17
Fjarðabyggð 18 4 3 11 23-35 15
Njarðvík 18 3 2 13 13-31 11
ÚRSLIT
RALLYCROSS
Síðasta umferð Íslandsmótsins í Rallycrossi
er sunnudaginn 29.ágúst kl. 13:00 á
Rallycross-brautinni í Kapelluhrauni.
Miðaverð kr. 1000. Frítt fyrir 12 ára og yngri.
Nánari upplýsingar á www.aihsport.is
www.benni.is
Mætum öll
FÓTBOLTI Víkingar áttu ekki í
vandræðum með lélegt Gróttulið
á Seltjarnarnesi í gær. Þeir unnu
6-1 sigur og komust í toppsæti 1.
deildarinnar. Leiknismenn eiga
möguleika á að endurheimta efsta
sætið með sigri gegn KA í dag.
Gróttumenn eru í harðri fallbar-
áttu og fara niður í fallsæti í dag
ef Fjarðabyggð vinnur Njarðvík.
Fjölnir tapaði fyrir HK en eftir
þau úrslit dó von Grafarvogsliðs-
ins um að komast upp. - egm
Leikið í 1. deild karla í gær:
Víkingar sestir í
toppsætið
LEIFUR Á TOPPNUM Úr leiknum á Sel-
tjarnarnesi í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI