Fréttablaðið - 16.09.2010, Qupperneq 10
16. september 2010 FIMMTUDAGUR
Kaffitími er alþjóðlegt fyrirbæri sem
fólk í hverskonar verslun, þjónustu og
iðnaði nýtir sér til að taka stutta
hvíld frá störfum og hlaða rafhlöðurnar.
Talið er að allt frá 1951 hafi kaffitími
verið skráður í kjarasamninga.
Kaffitíminn er í dag nánast heilög
stund, líka utan vinnutíma.
Angan af
kaffi kemur
bragðlauk-
unum af stað
og ilmurinn
segir til um
ríkt bragðið
af BKI kaffi.
Helltu upp
á gott BKI
kaffi.
BKI Classic
Njóttu lausnar frá amstri hversdagsins
með góðu BKI kaffi. Finndu hvernig þú
hressist með rjúkandi bolla af BKI kaffi. Nýttu
tækifærið. Gefðu þér smá hvíld. Fáðu þér BKI
kaffi. Njóttu kaffiilmsins, hitans og bragðsins
og taktu svo daginn með trompi.
Það er kominn tími fyrir BKI kaffi.
Taktu þér kaffitíma núna
Fangaðu
kaffitímann
með BKI kaffi
Það er kaffitími núna
Kauptu BKI
fyrir kaffitímann
Sérvaldar baunir frá
þekktustu kaffisvæðum
heimsins tryggja hið
mjúka bragð, lokkandi
ilminn og fersklegt
eftirbragðið.
BKI Extra
Snöggristað við háan hita.
Þannig næst fram ríkara
kaffibragð við fyrsta sopa
en léttur og mjúkur keimur
fylgir á eftir. Kíktu á bki.is
Ný vinnubrögð
Þann 15. ágúst 2010 tók gildi samkomulag ASÍ og SA
um vinnustaðaskírteini og eftirlit á vinnustöðum.
Markmið samkomulagsins er að tryggja að allir atvinnurekendur og starfsmenn þeirra fari
að gildandi lögum, reglugerðum og kjarasamningum.
Það er mikilvægt að fyrirtæki sitji við sama borð og fari öll að leikreglum en vinnustaða-
skírteinum er m.a. ætlað að vinna gegn svartri atvinnustarfsemi og undirboðum.
Samkomulagið nær í fyrstu til starfsmanna og fyrirtækja í byggingastarfsemi og
mannvirkjagerð sem og rekstri gististaða og veitingahúsa. Atvinnurekendum í
hlutaðeigandi greinum ber að sjá til þess að starfsmenn þeirra beri vinnustaðaskírteini.
Næstu þrjá mánuði munu eftirlitsfulltrúar veita atvinnurekendum sem samkomulagið nær
til leiðbeiningar um innleiðingu vinnustaðaskírteina. SA og ASÍ hvetja atvinnurekendur til
að bregðast skjótt við og stuðla að heilbrigðu starfsumhverfi á íslenskum vinnumarkaði.
Allar nánari upplýsingar á www.skirteini.is
Vinnu
staða
skírte
ini
Marg
rét Jó
nsdót
tir
Starfs
maðu
r
Kt. 12
3123-
1231
Matfö
ng eh
f.
Svann
ahöfð
a 12,
112 R
eykja
vík
Kt. 12
3123-
1231
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
43
10
7
FRÉTTASKÝRING
Hvernig hafa endurskoðendur horfst
í augu við ábyrgð sína á bankahrun-
inu?
Formaður Félags löggiltra endur-
skoðenda vísar á bug þeirri gagn-
rýni þingmannanefndar Atla Gísla-
sonar að endurskoðendur hafi ekki
rætt þátt sinn í bankahruninu í
sínum ranni. Fjölmargt hafi verið
gert undanfarin tvö ár.
Í skýrslu rannsóknarnefnd-
ar Alþingis eru íslenskir endur-
skoðendur harðlega gagnrýnd-
ir. Þeir hafi ekki sinnt skyldum
sínum við endurskoðun reikninga
og ekki rannsakað og metið virði
útlána þeirra til tengdra félaga þótt
aðstæður hefðu þróast á þann veg að
fullt tilefni væri til þess.
Þingmannanefnd Atla Gíslason-
ar kveður enn fastar að orði í sinni
skýrslu. Þar segir að endurskoðend-
ur hafi augljóslega brugðist skyldum
sínum og leyft vanvirðingu við lög
og reglur að viðgangast allt of lengi.
Þá sé það alvarlegt að þeir virðist
ekki hafa rætt orsakir og afleiðing-
ar hrunsins og aðkomu sína.
Þar að auki beindi rannsóknar-
nefndin því til saksóknara að rann-
saka þyrfti hvort endurskoðendur
skyldu dregnir fyrir dóm.
Eitt endurskoðunarfyrirtæki,
PricewaterhouseCoopers (PwC),
er þegar komið fyrir dóm, þó ekki
í opinberu máli heldur einkamálinu
sem Glitnir hefur höfðað á hendur
svokallaðri sjömenningaklíku Jóns
Ásgeirs Jóhannessonar, auk PwC.
Í Fréttablaðinu í gær var vitnað
til álits fyrrverandi varaformanns
siðanefndar Alþjóðasamtaka endur-
skoðenda, sem taldi PwC hafa gerst
sekt um vítaverða vanrækslu sem
endurskoðandi Glitnis.
Hjá PwC starfar Þórir H. Ólafs-
son, formaður Félags löggiltra end-
urskoðenda, sem er ósammála þing-
mannanefnd Atla Gíslasonar að
ekkert hafi verið gert. Ný lög um
endurskoðendur hafi tekið gildi um
þarsíðustu áramót á grundvelli til-
skipunar frá Evrópusambandinu og
þau hafi gjörbylt vinnuumhverfi og
starfsháttum endurskoðenda. Allur
rammi um starfsemina sé skarpari,
ákvæði komin um eftirlitsskyldu
endurskoðendaráðs, siðareglur og
tengingu við alþjóðlega endurskoð-
unarstaðla.
Í maí hafi enn fremur verið haldið
málþing um rannsóknarskýrsluna.
Á fyrirhugaðri afmælishátíð félags-
ins verði mikið rætt um hana og þá
standi einnig til að taka skýrsluna til
rækilegrar umfjöllunar á haustþingi
sem stendur fyrir dyrum. Þar að
auki hafi mikið verið rætt um málið
á síðasta fundi samtaka norrænna
endurskoðenda í síðasta mánuði. „Í
sjálfu sér hefur því mikið verið að
gerast,“ segir Þórir, og bætir við að
þingmannanefnd Atla Gíslasonar
hafi ekki haft samband við félagið
áður en fullyrðingin var sett fram í
skýrslunni. stigur@frettabladid.is
Segir endurskoðendur
víst hafa brugðist við
Rangt er hjá þingmannanefnd Atla Gíslasonar að endurskoðendur hafi ekki
rætt orsakir og afleiðingar hrunsins í sínum ranni, segir formaður þeirra.
GAGNRÝNDIR VÍÐA Þórir sést hér lengst til vinstri á myndinni. Við hlið hans sitja
Ragnar Z. Guðjónsson og Jón Þorsteinn Jónsson. Þeir tveir sæta nú báðir ákæru fyrir
misferli í kringum bankahrunið. Í skoðun er hvort einnig skuli draga einhverja endur-
skoðendur fyrir dóm vegna aðkomu þeirra að ýmsum málum. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM