Fréttablaðið


Fréttablaðið - 16.09.2010, Qupperneq 12

Fréttablaðið - 16.09.2010, Qupperneq 12
12 16. september 2010 FIMMTUDAGUR hagur heimilanna „Verstu kaupin sem ég hef gert er tvímælalaust Ford Escort sem ég keypti þegar ég var 17 ára. Það var alveg hræði- legt,“ segir Bragi Þór Hinriksson kvikmyndagerðarmaður sem frumsýndi á dögunum nýjustu mynd sína, Algjör Sveppi og dularfulla hótelherbergið. „Það átti að vera góður prís og bíllinn var flottur, en svo sprakk þetta upp í andlitið á mér. Það voru einhverjir duld- ir gallar og svoleiðis, en þetta er eitthvað sem maður lærir af. Eins konar lífslexía sem maður fór í gegnum þar.“ Bragi segir að bestu kaupin hafi hins vegar verið forláta plasmasjónvarp sem hann festi kaup á á rýmingarsölu þegar verslunin Japis lagði upp laupana á sínum tíma. „Það var alveg frábært því að plasma var þá eitthvað sem maður gat ekki vonast eftir því að það var svo dýrt. Þetta var nýtt og framandi á þeim tíma og mér fannst það alveg geðveikt að landa skjá sem átti að kosta milljón fyrir 200 þúsund kall.“ Bragi segist hafa verið í heilt ár að borga upp skjáinn góða, en hann sé enn til og kaupin hafi því verið vel þess virði. NEYTANDINN: Bragi Þór Hinriksson Sér eftir bílkaupum Umhverfisstofnun hefur gefið leyfi til urðunar á rúmlega 185 þúsund fuglum síðan í apríl í kjölfar salmonellusýkingar. Innkalla þurfti töluvert magn úr verslunum. Allt að 10 prósenta hækkun á verðlagi er ýmist byrj- uð eða mun koma inn í verslanir í næstu viku. Reykjagarður, framleiðandi Holta- kjúklings, urðaði um 100 þúsund kjúklinga í kjölfar salmonellusýkingar sem kom upp síðasta vor. Hver kjúkl- ingur er að meðaltali um eitt og hálft kíló og skipti tjónið tugum milljóna. Síðustu tíu sláturhóparnir hafa reynst ósýktir og segist Matthías Hannes Guðmundsson framkvæmdastjóri von- ast til að sýkingin sé þar með alfarið úr sögunni. Sýkingin hafi upphaflega komið inn í húsin með fóðri árið 2008. „Það eru mjög harðar reglur varð- andi þetta út frá hagsmunum neyt- enda,“ segir Matthías. „Ef hús smit- ast tekur Matvælastofnun það yfir og gerir kröfur um að urða þann kjúkling sem þar er.“ Kjúklingaframleiðandinn Matfugl þurfti að innkalla kjúkling úr versl- unum og urða um 60 tonn í kjöl- far sýkinganna í sumar. Sveinn Jónsson framkvæmdastjóri tekur undir orð Matthíasar um að sýkingin hafi borist með fóðri inn í húsin. „Það sem kom í ljós er að stofninn greindist hjá fóðurfyr- irtækjum en þeir hafa ekki við- urkennt að svo hafi verið,“ segir hann. Ágætlega hefur gengið að útrýma sýk- ingunni hjá Matfugli en Sveinn segir tjónið hafa skipt tugum milljóna fyrir fyrirtækið. Ísfugl er eini framleiðandinn sem ekki þurfti að urða kjúkling í kjölfar faraldursins í sumar. „Það var ekki mikið tjón að öðru leyti en því að við þurftum að inn- kalla þær vörur sem við vorum búin að senda út, sem voru um 300 til 400 kíló,“ segir Helga Lára Hólm, fram- kvæmdastjóri Ísfugls. „Það sem við áttum eftir var fryst og sett í geymsl- ur. Þá hafa fyrirtækin leyfi til þess að steikja vörurnar og sjóða, þar sem salmonella drepst við 74 gráðu kjarn- hita.“ Ísfugl hækkar verð á kjúklingi um allt að tíu prósent á mánudaginn næst- komandi. Reykjagarður hækkaði verð í síðustu viku og Matfugl í ágúst, bæði um 8 prósent. Eru ástæður hækkana stighækkandi verð fóðurs á markaðn- um. sunna@frettabladid.is 250 tonn af kjúklingi urðuð vegna salmonellusýkingar KJÚKLINGABÚ REYKJAGARÐS Nauðsynlegt var að urða um 100 þúsund fugla í kjölfar salmonellusýk- ingar í vor. FRÉTTABLAÐIÐ/HARALDUR 19 98 20 01 20 04 20 07 20 10 4.441 kr. 12000 10000 8000 6000 4000 2000 4.633 kr. 10.822 kr. 2.042 kr. 6.276 kr. Olía til húshitunar Kr./100 lítra Heimild: Hagstofa Íslands. VILDARÁSKRIFT AÐ STÖÐ 2 SPORT INNIHELDUR 512 5100 STOD2.IS VERSLANIR VODAFONE VERSLANIR OG ÞJÓNUSTUVER SÍMANS 800 7000 RAUÐI HERINN Í EVRÓPU! Í KVÖLD KL 19:00 Mörg af sterkustu liðum álfunnar mætast í Evrópudeildinni í vetur. Stjörnurnar frá Bítlaborginni ætla sér stóra hluti í þessari sterku deild. Næsti bardagi þeirra er gegn öðru sögufrægu stórveldi - Steaua frá Búkarest. Misstu ekki af þessum stórleik í Evrópudeildinni! LIVERPOOL – STEAUA BUCHAREST LÉTTÖL ÞAÐ ER AUÐ VEL T AÐ K AUP A ÁS KRIF T Á STO D2.I S
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.