Fréttablaðið - 16.09.2010, Side 41
FIMMTUDAGUR 16. september 2010 5
Á dögunum þegar ég skrifaði um muninn á því sem konur og karl-ar hanna fyrir konur
sagði frænka mín við mig: „En
hvenær er komið að því að tala
um kvenskó og það pyntingar-
tæki sem þeir eru?“
Nú er komið að skóm vetrar-
ins og þar sem þeir eru hærri
en nokkru sinni er ekki hægt
annað en að taka þessari áskor-
un. Sjálfsagt er erfitt að finna
svar við spurningunni hvers
vegna okkar vestræna menn-
ing er svo gegnsýrð af þeirri
hugmynd að kona sé fallegri
á hælum. Kannast ekki
allir við að hafa heyrt að
á hælum sé líkamslínan
fallegri, hærri, mjórri?
Líklega staðalmynd sem
okkur er sýnd frá blautu
barnsbeini og endar með því
að verða staðreynd í huga
okkar. Löngum þótti í
Japan fallegt að vera með
smáa fætur og ekki hikað
við að reyra þá í smáa
skó til að hamla vexti.
Þarna er nú hægt að
tala um raunverulegt
úthugsað pyntingar-
tæki. En eftir að
hælar síðustu
alda höfðu
hækkað fóru
þeir jafnframt
að mjókka á 5. áratug
síðustu aldar og um
leið að verða afskaplega
þröngir sem kannski
líkist því sem gert var
fyrr á öldum í Japan. Þó
konur hafi ekki geng-
ið svo langt að skera af
sér hæla og tær eins
og vondu stjúpsystur
Öskubusku tróðu þær
þó fótum í támjóa
og hælaháa skó og
gera enn.
Í vetur slá þó
hælar öll met
í hæð og tærn-
ar tapa plássi því skór eru
tá mjórri en áður. Sumum
fannst það afskaplega snið-
ugt þegur upp voru fundn-
ir svokallaðir pallar eins og
þeir eru kallaðir hér, á fram-
hluta skónna sem gerðu kleift
að hækka þá enn meira. Með
þessum þykka framhluta finnst
ekki eins munurinn á milli
framhlutans og svo hælanna,
ristin er ekki eins bogin. En
hönnuðir hafa gripið tækifærið
til að hækka hælana enn meira
fyrir vikið.
Í vetur er mikið um
dýramynstur, hvort
sem um er að ræða
sebra-, tígra- eða jafn-
vel gíraffamynstur.
Einnig eru skór hár-
auðir enda rautt mikið
notað hvort sem er í skó,
töskur eða föt.
Síðustu ár hafa þó ball-
erínur verið áberndi
í skótískunni og eru
óneitanlega þægilegri
en tólf sentimetra
hælar. Og þó allar
konur neyðist ekki til
að nota sléttbotnaskó
eins og Carla Bruni-
Sarkozy (og Cécilia á
undan henni) vegna
þess hversu stutt-
ur í annan endann
eiginmaðurinn er,
njóta ballerínur
gríðarlegra vinsælda
jafnt vetur sem sumar hjá
fínum sem ófínum merkj-
um. Svo er auðvitað
möguleiki að vera bara
í íþróttaskóm sem
geta verið afskaplega
smekklega hann-
aðir og það vakti
furðu mína í Suður-
Frakklandi að sjá
fólk spássera
um í Birken-
stock.
bergb75@free.fr
Enginn dans á rósum í kvenskóm
ÚR HÁBORG TÍSKUNNAR
Bergþór Bjarnason skrifar frá París
Sími 581 2141 • www.hjahrafnhildi.is
Ný skósending!
FR cosmeticsFegurd er...
Nýtt og spennandi tækifæri. Námskeið í örlitameðferð!
Velkomin í heim örlitameðferðar; meðferðar sem einnig er nefnd Micro-pigmentation, Semi-Permanent make-up og/eða Cosmetic tattoo.
Örlitameðferð er ferli þar sem sérstök ofnæmisprófuð litarefni eru sett undir yfirborð húðarinnar. Örlitameðferð er m.a. notuð til að:
• Forma og móta augabrúnir, gefa þeim meiri fyllingu eða til að setja eftirlíkingu af einstökum hárum sem gerir þær sem
eðlilegastar í útliti
• Gera augnlínu sem skerpir og rammar inn augnumgjörðina
• Skerpa varalínu, skyggja eða lita varir til fulls
Við erum stoltar af að geta loksins boðið upp á námskeið í þessari tækni frá Nouveau Contour, einu stærsta og virtasta fyrirtæki sem er á
þessum markaði.
Námskeiðin, sem eru sjö daga grunnnámskeið, er skipt í tvennt. Fyrri hlutinn eru fjórir dagar og sex vikum síðar eru þrír dagar. Námsefnið er frá
Nouveau Contour og einnig er farið ítarlega í verklega þjálfun. Fámennir hópar á hverju námskeiði.
Einnig er í boði framhaldsnámskeið fyrir þá sem vilja auka þekkingu sína og sérhæfingu enn frekar.
Kennari er Úndína Sigmundsdóttir. Úndína er meistari í snyrtifræði og hefur auk þess sérhæft sig í örlitameðferð og unnið við það eingöngu
undanfarin ár. Þá var hún fyrst hér á landi til að fullnuma sig í því sem kallað er ”Medical Tattoo”. Úndína er viðurkenndur kennari frá Nouveau
Contour.
Fyrsta námskeiðið hefst 30. september. Skráningu lýkur 23. september.
Frekari upplýsingar og skráning: Svala Rán Aðalbjörnsdóttir. Sími 8636903
Lady Gaga náði nýjum hæðum
á MTV-myndbandahátíðinni á
sunnudag enda fáir sem hafa
skartað kjöti frá hvirfli til ilja.
„Mig óraði aldrei fyrir því að ég
myndi einhvern tímann á ævinni
eiga eftir að biðja Cher um að
halda á kjöttöskunni minni,“ var
það fyrsta sem söngkonan Lady
Gaga sagði þegar hún tók við
verðlaunum úr hendi söngkon-
unnar Cher á MTV-myndbanda-
hátíðinni á sunnudag. Þar sópaði
hún til sín átta verðlaunum. Gaga
var klædd í kjöt frá toppi til táar
en klæðnaðurinn er handverk
tískuhönnuðarins Francs Fern-
andez. Hann lét ekki nægja að
búa til kjól heldur mótaði tösku,
skó og höfuðskraut í stíl.
Gaga er þekkt fyrir ögrandi
fatasmekk og ör fataskipti en
þetta sama kvöld skartaði hún
líka fötum frá Alexander McQu-
een og Giorgio Armani. Ekki
fylgir sögunni hvernig Gaga leið
í kjólnum eða hvernig hún lyktaði
en efnið þótti hins vegar leggj-
ast vel að líkama hennar auk þess
sem Cher gaf það upp að henni
þætti taskan hreinasta snilldar-
verk. - ve
Alsett kjöti
Gaga var með höfuðskraut og tösku í stíl
við kjötkjól og -skó. NORDICPHOTOS/GETTY
Hringdu í síma
ef blaðið berst ekki