Fréttablaðið - 16.09.2010, Síða 53

Fréttablaðið - 16.09.2010, Síða 53
FIMMTUDAGUR 16. september 2010 29 Breska indí-rokksveitin Amusem- ent Parks on Fire spilar á Sódómu Reykjavík í kvöld. Hljómsveitin, sem hefur verið starfandi síðan 2004, hefur gefið út fimm EP-plöt- ur og tvær stórar plötur. Sú þriðja, Road Eyes, er væntanleg hjá útgáfunni Filter US í Bandaríkjun- um. Fyrsta plata sveitarinnar kom út hjá fyrirtækinu Invada Records sem er í eigu Geoffs Barrow úr Portishead. Sveitin kemur við hér á landi á leið til Bandaríkjanna þar sem hún ætlar í stóra tónleikaferð. Tónleik- arnir á Sódómu hefjast klukkan 21 og er miðaverð 1.200 krónur. Bresk sveit með tónleika AMUSEMENT PARKS Hljómsveitin spilar á Sódómu Reykjavík í kvöld. Upptökur hafa staðið yfir að undanförnu á plötu með lögum úr söngleiknum Dísa ljósálfur sem verð- ur frumsýndur í Austurbæ í byrjun október. Álfrún Örnólfsdóttir, sem fer með hlutverk Dísu, syngur þrjú lög einsömul á plötunni og heita þau Allt er læst, Ljósið og Þriðja lag Dísu. Öll lögin í söngleiknum eru eftir Gunnar Þórðarson en text- arnir eru eftir Pál Baldvin Baldvinsson, leikstjóra verksins. Æfingar á söngleiknum hafa staðið yfir undan- farnar sex vikur. Auk Álfrúnar leika í Dísu ljós álfi þau Esther Talia Casey, Kári Viðarsson, María Þórðardóttir, Sólveig Arnarsdóttir, Steinn Ármann Magnússon og Þórir Sæmundsson. - fb Álfrún syngur fyrir Dísu VIÐ UPPTÖKUR Álfrún Örnólfsdóttir og Gunnar Þórðarson við upptökur á plötunni. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA Tvær uppfærslur Útvarpsleikhúss- ins eru tilnefndar til PRIX-EUR- OPA verðlaunanna í ár. Einfarar eftir Hrafnhildi Haga- lín í leikstjórn hennar sjálfrar og hljóðvinnslu Einars Sigurðssonar, er tilnefnt til verðlauna í flokki leik- ritaraða/framhaldsleikrita. Blessuð sé minning næturinnareftir Ragn- ar Ísleif Bragason, með tónlist eftir Önnu Þorvaldsdóttur og í leikstjórn Símons Birgissonar og hljóðvinnslu Georgs Magnússonar, er tilnefnt í flokki stakra leikrita en það var frumflutt um síðustu páska. PRIX-EUROPA er stærsta verð- launahátíð útvarps- og sjónvarps- efnis í Evrópu. Í ár bárust keppn- inni 108 útvarpsverk. Aðeins 40 af þeim, frá 35 löndum, hlutu náð fyrir augum dómnefndar, þar af tvö verk frá Rás 1. Hátíðin verður haldin vikuna 16. til 23. október næstkomandi og verðlaunahafar verða kynntir á lokadegi hennar. Íslensk verk tilnefnd HRAFNHILDUR HAGALÍN GUÐMUNDS- DÓTTIR Sýning Huldu Vilhjálmsdóttur, Sjálfsmynd/identity/hidden ident- ity, verður opnuð í Listasal Mos- fellsbæjar á laugardag klukkan 14. Hulda sýnir þar málverk, teikning- ar og skúlptúra. Hulda, sem lauk námi frá Listaháskóla Íslands árið 2000, hefur haldið fjölda sýninga hér á landi og erlendis. Hún var til dæmis með grasrótarsýninguna Grasrótin er villt í Nýló og komst í undanúrslit fyrir Carnegie-verð- launin í fyrra. Sýningin verður opin á afgreiðslutíma Bókasafns Mos- fellsbæjar. Aðgangur er ókeypis. Sjálfsmynd í Mosfellsbæ MÁLVERK Eitt verkanna á sýningunni. LANCÔME GJAFADAGAR Í LYFJU LÁGMÚLA, LAUGAVEGI OG SETBERGI FIMMTUDAG OG FÖSTUDAG Kaupaukinn* þinn þegar þú kaupir 2 Lancôme vörur: ~ Lancôme snyrtibudda ~ Rénergie Morpholift krem 15 ml ~ Rénergie Morpholift augnkrem 5 ml ~ Rénergie Serum 10 ml ~ Lancôme maskari ~ Color Fever varalitur Verðmæti kaupaukans kr. 16.500.- Einnig aðrar gerðir kaupauka Lágmúla 5 – sími 533-2309 Laugavegi 16 – sími 552-4045 Setbergi – sími 555 2306 Fyrsti maskarinn frá Lancôme sem sjáanlega endurnýjar augnhárin. Þéttir augnhár eftir augnhár. NÝTT * G ild ir m eð an b ir gð ir e nd as t o g á ky nn in gu s te nd ur . G ild ir e kk i m eð B oc ag e og b lý ön tu m .

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.