Fréttablaðið - 18.09.2010, Blaðsíða 72
18. september 2010 LAUGARDAGUR40
timamot@frettabladid.is
EINAR MÁR GUÐMUNDSSON RITHÖFUNDUR er 56 ára í dag.
„Þótt þú siglir um samtíðina og fljúgir inn í framtíðina er for-
tíðin alltaf í farangrinum.“
56
Innilegar þakkir til allra þeirra sem
auðsýndu okkur samúð og hlýhug við
andlát og útför ástkærs eiginmanns
míns, föður okkar, fósturföður,
tengdaföður og afa,
Sævars E. Guðlaugssonar
Byggðarenda 4, Reykjavík.
Karen Ólafsdóttir
Sigrún Sævarsdóttir Bouius
Sólrún Sævarsdóttir Guðmundur Sigurðsson
Anton P. Gunnarsson Elsa I. Konráðsdóttir
Ólafur S. Ólafsson Mari Sampu
Elskuleg móðursystir okkar og
mágkona,
Una Þorgilsdóttir
Ólafsbraut 62, Ólafsvík,
lést miðvikudaginn 15. september á St. Franciskus-
spítalanum í Stykkishólmi. Útförin auglýst síðar.
Fyrir hönd aðstandenda,
Ólafur Sveinsson, Kristlaug Sigríður Sveinsdóttir
og Sveinn B. Ólafsson.
Hjartans þakkir til allra sem hafa sýnt
okkur samhug, stuðning, hjálpsemi og
vináttu eftir fráfall dóttur minnar
og systur,
Jóhönnu Silju
Vilhjálmsdóttur
og minnst hennar af hlýju og vinsemd.
Birna Ósk Eðvarðsdóttir
Óskar Jóhann Birnuson
og aðrir aðstandendur.
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
Auður Waagfjörd
Jónsdóttir
frá Garðhúsum, Vestmannaeyjum,
sem lést á hjúkrunarheimili Hrafnistu í Hafnarfirði
miðvikudaginn 15. september, verður jarðsungin frá
Fríkirkjunni í Reykjavík miðvikudaginn 22. september
klukkan 15.
Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir en þeim sem
vilja minnast hinnar látnu er bent á fjáröflunarsjóð
Þorgerðar I.O.O.F. til líknarmála kt: 691093-3609
reikn.nr. 0526-14-100860.
Kristinn Jörundsson Steinunn Helgadóttir
Kristín Bára Jörundsdóttir Eiríkur Mikkaelsson
Jón Sævar Jörundsson Rita Arnfjörð
Sigurgarðsdóttir
Alda Guðrún Jörundsdóttir Jóhann Hlöðversson
Anna Sigríður Jörundsdóttir Bjarni Kristinn Jóhannsson
Jörundur Jörundsson Áslaug Hreiðarsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn Gjótuhrauni 8, 220 Hafnarfirði Sími: 571 0400, legsteinar@gmail.com
GRANÍT OG LEGSTEINAR
Fallegir legsteinar
á einstöku verði
Frí
áletr
un
Innilegar þakkir fyrir samúð og hlýhug
við andlát og útför
Matta Ósvalds
Ásbjörnssonar
sem lést að Faxabraut 13 Hjúkrunarheimilinu Hlévangi
Keflavík.
Gunnar Mattason Indíana Jónsdóttir
Oddný Mattadóttir Stefán Kristjánsson
og aðrir aðstandendur
Ástkær faðir, tengdafaðir, afi og langafi,
Gunnlaugur Snædal
læknir,
verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni mánudaginn
20. september kl. 13.
Jón Snædal Guðrún Karlsdóttir
Kristján Snædal Sólrún Vilbergsdóttir
Gunnlaugur G. Snædal Soffía Káradóttir
barnabörn og langafabörn
Hjartans þakkir til allra þeirra sem
sýndu okkur stuðning og kærleika
vegna andláts og útfarar yndislega
mannsins míns, stjúpföður, sonar,
bróður og mágs
Gunnars Magnússonar
Goðheimum 4, Reykjavík.
Ásta Agnarsdóttir
Rúnar Máni Gunnarsson Eydís Magnúsdóttir og synir
Davíð Snævar Gunnarsson Ragnhild Svellingen og synir
Tinna Dögg Gunnarsdóttir og börn
Ingibjörg S. Gunnarsdóttir
María M. Magnúsdóttir Bergur Stefánsson og synir
Innilegar þakkir til allra þeirra, sem
sýndu okkur samúð og hlýhug við
andlát og útför elskulegs föður okkar,
tengdaföður, afa, langafa og vinar,
Steins Þ. Steinssonar
fyrrverandi héraðsdýralæknis,
Þverholti 24, Reykjavík.
Þökkum einnig starfsfólki krabbameinsdeildar
Landspítalans við Hringbraut fyrir góða umönnun.
Þorsteinn Steinsson Sigurbjörg Guðmundsdóttir
Finna Birna Steinsson Baldur Hafstað
Friðrik Steinsson
Bryndís Guðmundsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn
Ástkær eiginmaður minn, faðir,
tengdafaðir, afi og langafi
Jón Björnsson
lyfjafræðingur, Rituhólum 10,
Reykjavík,
lést að heimili sínu laugardaginn 11. september.
Útförin fer fram frá Dómkirkjunni í Reykjavík,
mánudaginn 20. september kl. 15.00.
Fyrir hönd aðstandenda,
Anna Þórunn Ottesen
Björn Jónsson Birna Gunnlaugsdóttir
Sigurbjörg Ásta Jónsdóttir Ray Snider
Þóra Jónsdóttir
barnabörn og barnabarnabarn
„Útgáfan markar vissulega tímamót
fyrir mig því þetta er bók sem ég byrj-
aði á strax árið 1974 en tókst ekki að
ljúka við fyrr en í sumar.“ Þannig
bregst Elías Snæland Jónsson, rithöf-
undur og fyrrverandi ritstjóri, við
beiðni um viðtal á tímamótasíðu vegna
bókar hans Möðruvallahreyfingin
– baráttusaga, sem er að fara í búðir
þessa dagana. Hún er 464 blaðsíður og
í henni eru margar myndir, úrklippur
og fyrirsagnir úr blöðum. Elías kveðst
hafa skrifað ríflega 30.000 orða texta
um Möðruvallahreyfinguna á árun-
um 1974 til 1977 en þá lagt hann frá
sér ásamt eigin dagbókum og minnis-
blöðum frá þessum tíma og tilheyrandi
heimildum sem hafi fyllt marga kassa.
„Þetta efni fór bara út í bílskúr og var
þar nokkra áratugi eða þar til ég gróf
það upp aftur veturinn 2004-5 og ákvað
að ljúka verkinu,“ segir Elías. „Ritið er
mun viðameira en ég hafði hugsað mér
í upphafi, því til að rekja baráttusögu
Möðruvellinga verður að segja hluta
af stjórnmálasögu tímabilsins 1966 til
1976.“
Á baksíðu bókarinnar stendur meðal
annars: „Hér segir frá dugmiklu fólki
sem lagði mikið í sölurnar til að reyna
að gera háleitar pólitískar hugsjónir
sínar að veruleika.“ Elías sjálfur var í
eldlínu þeirra atburða og er beðinn að
lýsa þeim aðeins.
„Í stórum dráttum þá er þetta bar-
áttusaga vinstri arms Framsóknar-
flokksins. Hún byrjaði fyrir alvöru
þegar hópur ungs fólks sem síðar varð
áberandi í þjóðlífinu, tók við forystu
í Sambandi ungra framsóknarmanna
haustið 1966, með Baldur Óskarsson
sem formann. Þetta var fjölmenn sveit
sem kom inn í flokkinn, undir vernd-
arvæng Eysteins Jónssonar sem var
formaður flokksins á þeim tíma. Hann
vann markvisst að því að gera Fram-
sóknarflokkinn að forystuflokki vinstri
manna á Íslandi og unga fólkið var mjög
inni á þeirri stefnu – stefnu vinstri
félagshyggju. Síðan gerist það 1968 að
Eysteinn hættir sem formaður og Ólaf-
ur Jóhannesson tekur við. Upp frá því
stefnir flokksforystan að því að færa
flokkinn til hægri en við þessir ungu
vinstri menn börðumst gegn því.“
Elías segir Möðruvellinga hafa
stundum fjölmennt á fundi Framsókn-
ar til að taka þar völdin. „Hægri arm-
urinn barðist hart gegn okkur,“ rifjar
Elías upp. „Við vildum að flokkurinn
yrði áfram forystuafl á vinstri vængn-
um. Um þetta snerust átökin í nokk-
ur ár þar til að Framsóknarflokkur-
inn klofnaði 1974 og Möðruvellingar
gengu úr honum. Síðar fóru þeir hver
í sína áttina.“
Engin félagaskrá er til úr Möðru-
vallahreyfingunni og Elías segir erfitt
að skjóta á fjöldann sem henni fylgdi.
„En ég er með lista yfir menn sem voru
í hreyfingunni og síðar urðu forystu-
menn hér og þar um landið. Á honum
eru eitthvað um 60 manns. Óhætt er að
fullyrða að sá frægasti er forseti vor,
Ólafur Ragnar Grímsson.“
gun@frettabladid.is
ELÍAS SNÆLAND JÓNSSON: GEFUR ÚT BARÁTTUSÖGU MÖÐRUVELLINGA
Innlegg í stjórnmálasöguna
RITHÖFUNDURINN „Hægri armurinn barðist hart gegn okkur,“ segir Elías Snæland Jónsson
þegar hann rifjar upp átökin innan Framsóknar. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON