Fréttablaðið - 18.09.2010, Blaðsíða 84
52 18. september 2010 LAUGARDAGUR
folk@frettabladid.is
> EINS OG FÍLL
Meðgangan ætlar að reynast söng-
konunni Lily Allen erfið. Hún seg-
ist hafa áhyggjur af þyngd sinni og
hvernig hún eigi að léttast eftir fæð-
ingu frumburðarins. „Mér líður
eins og fíl og veit ekki hvern-
ig ég á að léttast eftir fæðing-
una. Sem betur fer upplifi
ég stundum daga þar sem
mér finnst ég líta frábær-
lega út.“
Ómar Ragnarsson hélt á
fimmtudag fyrri tónleika
sína í Salnum í Kópavogi
í tilefni af sjötugsafmæli
sínu, sem var einmitt
þann sama dag.
Ómar var í miklu stuði á þess-
um tónleikum eins og búast
mátti við. Hann söng fyrir
fullu húsi öll sín bestu lög frá
fimmtíu ára ferli sínum við
góðar undirtektir áhorfenda.
Fjölmargir góðir gestir létu sjá
sig, þar á meðal Ólafur Ragn-
ar Grímsson, forseti Íslands,
og gerði Ómar góðlátlegt
grín að honum á tónleikunum.
Ómar notaði einnig tækifærið
og afhenti fulltrúa endurhæf-
ingardeildarinnar við Grensás
ávísun upp á 418 þúsund krón-
ur.
Afmælistónleikar Ómars
AFMÆLISBARN Ómar fagnaði sjötugsafmæli sínu á tónleikunum sem voru afar vel sóttir.
FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
Í SALNUM Halldóra Andrésdóttir, Ása
Hólmgeirsdóttir og Pétur Olgeirsson
mættu í Salinn.Á TÓNLEIKUM Hersir, Svavar, Svava og Guðrún sáu Ómar Ragnarsson fara á kostum.
TVEIR GÓÐIR Útvarpsmaðurinn Jónas
Jónasson ásamt Óla H. Þórðarsyni, fyrr-
verandi formanni Umferðarráðs.
ÞRÍR GESTIR Jón,
Anna og Jóhann
voru á meðal gesta.
Franski kvikmyndagerðamaðurinn Vinc-
ent Moon hefur vakið mikla athygli fyrir
tónlistarmyndbönd sín. En Moon þessi
myndar þekktar sveitir á meðan þær
leika tónlist sína á óhefðbundnum stöð-
um líkt og almenningssalernum eða götu-
hornum og nefnist verkefnið Take-Away
Shows.
Myndböndin eru flest tekin í einni töku
og hefur Moon meðal annars tekið upp
tónlistarflutning hljómsveita á borð
við Bon Iver, R.E.M., Arcade Fire,
Beirut og íslensku hljómsveitarinnar
Sigur Rós. Moon er staddur hér á landi
í tengslum við kvikmyndahátíðina RIFF,
en nokkur myndbönd hans verða sýnd á
hátíðinni.
„Ég hafði gert tónlistarmyndbönd áður
en ég byrjaði með Take-Away Show og
þoldi ekki að þurfa að eiga við útgáfu-
fyrirtækin. Forstjórarnir voru alltaf að
reyna að koma sínum hugmyndum að en
ég vildi fá að gera þetta á minn hátt. Ég er
mikill aðdáandi lifandi tónlistar og með
þessu langaði mig að prófa að fanga kraft-
inn sem myndast á tónleikum og festa
hann á filmu,“ segir Moon.
Moon hyggst gera heimildarmynd um
kvæðamanninn Steindór Andersen á
meðan hann dvelur á landinu, en hann
fékk veður af Steindóri þegar hann tók
upp myndbandið með Sigur Rós. „Ég á
eftir að heyra í honum og þess vegna er
þetta allt svolítið óráðið enn sem komið er.
En ég held að þetta verði mjög skemmti-
legt verkefni,“ segir hann að lokum. - sm
Myndar á skrítnum stöðum
FANGAR KRAFTINN Vincent Moon hefur unnið
með hljómsveitum á borð við Sigur Rós og
R.E.M. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Leikkonan Megan Fox giftist unnusta
sínum, leikaranum Brian Austin Green,
við látlausa athöfn fyrr í sumar. Parið
hefur verið saman í sex ár og segist Fox
aldrei hafa verið hamingjusamari en nú.
„Ég giftist besta vini mínum. Ég tel mig
heppna að fá að vera með honum hvern
dag, hann verndar mig og ég er örugg og
hamingjusöm,“ sagði leikkonan í nýlegu
viðtali. Hún kveðst einnig vilja eignast
barn einhvern tímann í nánustu framtíð,
en hún hefur aðstoðað við uppeldi sonar
Greens frá því að þau tóku saman.
„Ég hef verið stjúpmóðir síðustu sex
árin og það er frábært. Þetta er mikil
vinna en ég hef gaman af þessu. Ég mundi
elska að eignast mitt eigið barn einhvern
tímann í framtíðinni, það mundi gera mig
mjög hamingjusama.“ Eiginmaður hennar
segir Fox vera afskaplega umhyggjusama
og góða stjúpmóður og segir samband
sonar síns og hennar vera mjög gott.
Vill verða mamma
HAMINGJUSÖM Megan Fox
segist vera hamingjusamlega
gift kona.