Fréttablaðið - 18.09.2010, Blaðsíða 35
www.rannis.is/visindavaka
Allir velkomnir. Láttu sjá þig!
Í aðdraganda Vísindavöku Rannís er hellt
upp á hið sívinsæla Vísindakaffi þar sem
fræðimenn kynna rannsóknir sínar fyrir
almenningi.
20. 21. 22. & 23. september
Vísindakaffi 2010
Dagskrá á Súfi stanum,
Máli og menningu í Reykjavík:
Mánudagur 20. september kl. 20:00 - 21:30
Eldfjöll – hvar gýs næst?
Páll Einarsson prófessor í jarðeðlisfræði fjallar um aðferðir til
að fylgjast með virkni eldfjalla og segja fyrir um hegðun þeirra.
Af hverju er stundum hægt að spá og stundum ekki?
Þriðjudagur 21. september kl. 20:00 - 21:30
Hvað á að vera í stjórnarskrá?
Stjórnarskrár landa geta fjallað um allt milli himins og jarðar.
Í tilefni stjórnlagaþings og endurskoðunar stjórnarskrár ræðir
dr. Ragnhildur Helgadóttir prófessor við lagadeild Háskólans í
Reykjavík, um hvað á að vera í stjórnarskrám og hvers vegna.
Miðvikudagur 22. september kl. 20:00 - 21:30
Stofnfrumur – tækifæri eða tálsýn?
Dr. Sveinn Guðmundsson yfi rlæknir Blóðbankans og dr.
Ólafur E. Sigurjónsson forstöðumaður stofnfrumuvinnslu
og grunnrannsókna í Blóðbankanum fjalla um eiginleika
stofnfrumna, kynna notkun blóðmyndandi stofnfrumna
í læknisfræðilegri meðferð, ræða og vara við oftrú á
„galdramætti“ stofnfrumna í nútíma læknisfræði en
kynna jafnframt not stofnfrumna t.d. með stofnfrumugjafaskrám
og nafl astrengsbönkum.
Fimmtudagur 23. september kl. 20:00 - 21:30
Hver eru sameiningartákn íslensku þjóðarinnar? Frá Njáli
Þorgeirssyni til Helga Hóseassonar
Jón Karl Helgason dósent við Íslensku- og menningardeild
Háskóla Íslands fjallar um hvernig ýmsar persónur úr íslenskri
sögu og bókmenntum hafa í ákveðinn tíma orðið fulltrúar
þjóðarinnar allrar eða tiltekinna hópa. Meðal þess sem ber á
góma eru styttur og minnismerki í Reykjavík, rithöfundasöfn
á landsbyggðinni, götuheiti og íslenskir peningaseðlar.
Dagskrá á landsbyggðinni:
Mánudagur 20. september kl. 17:00 - 19:00
Húsavík: Hljóð undirdjúpanna
Rannsókna- og fræðasetur Háskóla Íslands á Norðausturlandi,
Húsavíkurbær og Norðursigling bjóða í Vísindakaffi siglingu til
að kynnast hljóðum undirdjúpanna.
Miðvikudagur 22. september kl. 18:00 - 19:30
Sandgerði: Grjótkrabbi – skemmtilegur og bragðgóður!
Háskólasetur Suðurnesja í Sandgerði og Náttúrustofa
Reykjaness kynna grjótkrabba sem er nýr landnemi hér við
land. Krabbinn er kynntur og síðan eldaður og gefst gestum
færi á að spreyta sig og smakka!
Fimmtudagur 23. september kl. 20:00 - 21:30
Hofi , Akureyri: Erfðabreytt framtíð
Dr. Kristinn P. Magnússon og dr. Oddur Vilhelmsson dósentar
við Háskólann á Akureyri og sérfræðingar í erfðavísindum og
erfðatækni spjalla um erfðavísindi og hagnýtingu þeirra.
Fimmtudagur 23. september kl. 20:00 - 21:30
Skagaströnd: Mikilvægi munnlegrar sögu
Fjórir fræðimenn velta upp mikilvægi munnlegrar sögu og segja
frá samstarfsverkefni um varðveislu munnlegra gagna.
Fimmtudagur 23. september kl. 20:00 - 21:30
Höfn í Hornafi rði: Höfundaverk Þórbergs
Soffía Auður Birgisdóttir bókmenntafræðingur fjallar um
rannsóknir á höfundaverki Þórbergs Þórðarsonar.
Laugavegi 13, 101 Reykjavík
sími 515 5800, rannis@rannis.is
www.rannis.is