Fréttablaðið - 18.09.2010, Blaðsíða 33
matur
[ SÉRBLAÐ FRÉTTABLAÐSINS UM MAT ]
Eftirréttir á borðum Nönnu Rögn-valdardóttur matgæðings fara eftir því í hvernig skapi hún er hverju
sinni, veðrinu og matnum sem hún
var að borða á undan. Stundum
koma dagar þar sem hana lang-
ar í eitthvað frísklegt, ávaxtasalat
og slíkt, en óhollari útfærslur verða
oftar fyrir valinu. „Minn smekkur
er svolítið mikið út í súkkulaði- og
karamellusukk, svona oftast nær. Ég
er hins vegar ekki hrifin af dísætum eft-
irréttum þannig að þessir eftirréttir eru
ekki ein sykurleðja. Og ef ég er með eitt-
hvað mjög sætt þykir mér gott að hafa
eitthvað skarpt bragð með, svo sem sítr-
ónukrem eða ávexti,“ segir Nanna.
Nanna útbjó tvo eftirrétti fyrir Frétta-
blaðið. Fyrri uppskriftin er úr væntan-
legri bók, Smáréttir Nönnu, fingramat-
ur, forréttir og freistingar. Réttirnir eru
allir smáréttir en hægt er að stækka þá
upp og gera þá að aðalrétti eða eftirrétti,
eins og Nanna gerir hér með pekanböku
með búrbonrjóma. „Sukkið í þessari
uppskrift er púðursykur og síróp og svo
pekanhneturnar, sem eru mjög fiturík-
ar þótt hægt sé að telja sér trú um að
þær séu hollar. Bökurnar eru einfald-
ar og jafnvel hægt að kaupa bökudeig-
ið tilbúið. Hinn rétturinn, tvílitur súkk-
ulaðibúðingur, er tilbrigði við búðing
sem ég geri oft og er alltaf vinsæll. Ég
hef reyndar líka gert ís eftir þeirri upp-
september 2010
Uppáhald Elvis
Elvis Presley var mikill matmaður
og flaug eitt sinn langar leiðir
vegna þess að hann langaði í
samloku með hnetusmjöri, sultu
og beikoni.
SÍÐA 6
FRAMHALD Á SÍÐU 4
Sukkað eftir kvöldmat
Eftirréttir eru oft þeir bitar sem flestir
bíða með mestri óþreyju eftir.
Nanna Rögnvaldardóttir
og Sigurður Ívar Sigurðs-
son hristu fram úr erm-
unum eftirrétti úr smjöri,
sykri, súkkulaði, sírópi, og
fleiru ómótstæðilegu.
Yfir sjónvarpinu
Jóhann Friðgeir Valdimarsson
gefur uppskrift að túnfisksalati
sem gott er að borða með tortilla-
flögum yfir sjónvarpinu.
SÍÐA 2
RÝMINGARSALA Á ELDHÚSTÆKJUM
ALLT AÐ 70% AFSLÁTTUR
Rýmum fyrir nýjum vörum og bjóðum því eldhústæki með allt að
70% afslætti. Ofnar, viftur, háfar og helluborð í hæsta gæðaflokki frá
merkjum á borð við DeDietrich, Brandt, Blomberg og –– ––––––––––– Mjög
takmarka
ð
magn!