Fréttablaðið - 14.10.2010, Page 16
16 14. október 2010 FIMMTUDAGUR
FRÉTTASKÝRING: ÁFORM RÍKISSTJÓRNARINNAR UM NÝ LÖG OG BREYTINGAR Á ELDRI LÖGUM
Björn Þór
Sigbjörnsson
bjorn@frettabladid.is
Í 214 mála þingmálaskrá
ríkisstjórnarinnar kennir
margra grasa. Efnahags- og
viðskiptaráðherra ætlar að
leggja fram flest frumvörp
á yfirstandandi þingi en
forsætisráðherra fæst.
Úr ranni forsætisráðherra eru
væntanleg sjö frumvörp, sam-
kvæmt þingmálaskránni sem lögð
var fram samhliða stefnuræðu
forsætisráðherra í síðustu viku.
Tekið er fram í aðfararorðum að
frumvörpunum kunni að fjölga,
auk þess sem atvik geti hindrað
flutning einstakra frumvarpa.
Meðal þess sem forsætisráð-
herra ætlar að leggja fram er
frumvarp til breytinga á upp-
lýsingalögum. Er markmiðið að
rýmka aðgengi almennings að upp-
lýsingum. Þá verður lögð fram til-
laga til þingsályktunar um stefnu-
mörkun fyrir Ísland fram til 2020
og frumvarp um flutning og end-
urskipulagningu verkefna milli
ráðuneyta.
Sérstakur ræður lögreglumenn
Von er á samtals 32 frumvörp-
um frá Ögmundi Jónassyni. Átján
leggur hann fram sem dóms- og
mannréttindaráðherra. Breyta á
skipulagi lögregluembætta, lög-
festa heimild til að flytja ofbeld-
ismann af heimili sínu, svokallaða
austurríska leið, veita sérstök-
um saksóknara heimild til að
ráða lögreglumenn, fjölga dóm-
urum og herða eftirlit með banni
við áfengisauglýsingum. Þá ætlar
Ögmundur að leggja til að afnum-
in verði sjálfvirk skráning barna
í trúfélög.
Sem samgöngu- og sveitar-
stjórnarráðherra hyggst Ögmund-
ur leggja fram fjórtán mál. Meðal
annars ætlar hann að setja á fót
nýja stofnun; Farsýslu, stjórnsýslu-
stofnun samgöngumála. Í henni á
að sameina stjórnsýsluverkefni
Flugmálastjórnar, Siglingastofnun-
ar, Vegagerðar og Umferðarstofu.
Þá á að færa framkvæmdir, rekstur
og þjónustu alls samgöngukerfisins
undir Vegagerðina.
Sameining stofnana
Guðbjartur Hannesson ætlar að
leggja fram 27 frumvörp úr félags-
og tryggingamálaráðuneytinu og
heilbrigðisráðuneytinu. Meðal
annars ætlar hann að gera Íbúða-
lánasjóði kleift að bjóða íbúðir
sem hann hefur keypt á uppboði til
leigu með kauprétti. Þá ætlar hann
að leggja til sameiningu landlækn-
isembættisins og Lýðheilsustöðv-
ar annars vegar og Lyfjastofnunar,
lyfjagreiðslunefndar og lyfjadeild-
ar Sjúkratrygginga hins vegar.
Á þingmálaskrá fjármálaráð-
herrans, Steingríms J. Sigfússon-
ar, er 31 mál. Flest snúa þau að
skattalagabreytingum. Hækka á
olíugjald, kílómetragjald, bensín-
gjald og sérstakt bensíngjald um
fjögur prósent, leggja á sérstakt
vörugjald á áfengi og tóbak sem
selt er í komufríhöfn og sérstakt
gjald af sölu gistinátta. Eiga tekjur
af gjaldinu að renna til verndunar
og uppbyggingar fjölsóttra ferða-
mannastaða, þjóðgarða og frið-
lýstra svæða. Þá á að framlengja
heimild til útgreiðslu séreignar-
sparnaðar.
Orkufyrirtæki í opinberri eigu
Katrín Júlíusdóttir iðnaðarráð-
herra ætlar að leggja fram frum-
varp um stofnun Framkvæmda-
sjóðs ferðaþjónustunnar. Hlutverk
hans verður að ráðstafa áður-
nefndu sérstöku gistináttagjaldi.
Af öðrum fimmtán fyrirhuguðum
frumvörpum iðnaðarráðherra má
nefna að setja á lög sem tryggja
opinbert eignarhald á mikilvæg-
um orkufyrirtækjum og takmarka
eignarhald einkaaðila.
Frumvarp um nýja grunnlög-
gjöf um starfsemi fjölmiðla er
væntanlegt úr ranni Katrínar Jak-
obsdóttur, mennta- og menningar-
málaráðherra. Breyta á lögum um
opinbera háskóla og meðal annars
færa undir þau starfsemi landbún-
aðarháskólanna.
Sjávarútvegs- og landbúnaðar-
ráðherra ætlar að leggja til breyt-
ingar á fiskveiðistjórnuninni, bæði
hvað varðar einstaka tegundir og
eins heildarendurskoðun kerfisins.
Þá ætlar hann að leggja til breyt-
ingu á lögum um búnaðargjald,
með hliðsjón af forsendum dóms
Mannréttindadómstóls Evrópu um
iðnaðarmálagjald.
Náttúruverndarlög endurskoðuð
Helsta frumvarp Svandísar Svav-
arsdóttur umhverfisráðherra hlýt-
ur að teljast heildarendurskoðun á
lögum um náttúruvernd. Af öðru
má nefna frumvarp um umhverf-
isábyrgð, meðhöndlun úrgangs og
stjórn vatnamála.
Össur Skarphéðinsson utanrík-
isráðherra ætlar einkum að leggja
fram frumvörp og þingsályktun-
artillögur til innleiðingar eða full-
gildingar alþjóðasamningum en
einnig leggur hann fram tillögu um
stefnumótun í öryggis- og varnar-
málum og þróunarsamvinnu, svo
dæmi séu tekin.
Lög um smálán
Von er á 33 frumvörpum frá Árna
Páli Árnasyni, efnahags- og við-
skiptaráðherra. Mörg eru lögð fram
vegna bankahrunsins og snúast
ýmist um breytingar á fjármála-
markaði eða rétt og stöðu fólks
gagnvart fjármálafyrirtækjum.
Að auki má nefna að Árni Páll
hyggst beita sér fyrir lagasetn-
ingu um starfsemi smálánafyrir-
tækja. Í frumvarpi þar um verður
lagt til að starfsemi þeirra verði
leyfisskyld og skýr ákvæði sett um
hegðun þeirra á markaði og eftir-
lit með þeim. Þá vill hann breyta
lögum um Seðlabankann, einkum
að auka skilvirkni í rekstri hans og
skilgreina betur hlutverk hans við
að viðhalda fjármálastöðugleika.
Enn fremur er væntanlegt frum-
varp til breytingar á lögum um
erlenda fjárfestingu. Lýtur það að
stjórnsýslulegri meðferð tilkynn-
inga um erlenda fjárfestingu. Þá á
að skýra nánar ákvæði er lúta að
fjárfestingu í orkumálum.
Farsýsla stofnuð og lög sett um
smálán og austurrísku leiðina
RÍKISSTJÓRN ÍSLANDS Ráðherrar ætla ekki að sitja auðum höndum í vetur; þeir hafa þegar í hyggju að leggja fram samtals rúm-
lega tvö hundruð frumvörp og þingsályktunartillögur og eflaust á ýmislegt eftir að bætast við. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
■ Rýmka á aðgengi almennings að opinberum upplýsingum.
■ Herða á eftirlit með banni við áfengisauglýsingum.
■ Afnema á sjálfvirka skráningu barna í trúfélög.
■ Stofna á Farsýslu, stjórnsýslustofnun samgöngumála.
■ Sameina á landlæknisembættið og Lýðheilsustöð.
■ Sameina á Lyfjastofnun, lyfjagreiðslunefnd og lyfjadeild Sjúkratrygginga.
■ Hækka á olíugjald, kílómetragjald, bensíngjald og sérstakt bensíngjald.
■ Tryggja á opinbert eignarhald á mikilvægum orkufyrirtækjum og tak-
marka eignarhald einkaaðila.
■ Ráðast á í heildarendurskoðun á lögum um náttúruvernd.
■ Leggja á fram tillögu um stefnumótun í öryggis- og varnarmálum.
■ Starfsemi smálánafyrirtækja verður leyfisskyld.
■ Skilgreina á betur hlutverk Seðlabankans við að viðhalda fjármálastöðug-
leika.
Eitt og annað úr þingmálaskránni
Sparaðu
með Siemens
Siemens er þekkt fyrir
umhverfisvæna stefnu
sína og er í fremstu röð
þegar skoðaðar eru
tækninýjungar er varða
orkusparnað á heimilum.
A
T
A
R
N
A
Nóatúni 4 • Sími 520 3000
www.sminor.issparnaður
-50%
1995 2010
0,13 kwst.
sparnaður
-36%
1995 2010
0,11 kwst. 0,07 kwst.
sparnaður
-48%
1995 2010
Þvottavél
WM 16S770DN
Orkunotkun miðuð við
þvott á 1 kg á 60° C.
Uppþvottavél
SN 46T590SK
Orkunotkun miðuð við
borðbúnað fyrir einn.
Kæliskápur
KG 36VX74
Orkunotkun miðuð við
100 l á sólarhring.
0,48 kwst. 0,25 kwst.0,26 kwst.