Fréttablaðið - 14.10.2010, Qupperneq 37
FIMMTUDAGUR 14. OKTÓBER 2010
Nýtt hjólbarðaverkstæði Bíla-
búðar Benna á Tangarhöfða
var opnað í sumar en fram að
því hafði verkstæðið aðeins
eina lyftu og afar takmarkaða
afkastagetu.
Nýja verkstæðið á Tangarhöfða
hefur þrjár lyftur og afkastar veru-
legu magni bíla á degi hverjum. Það
er því kærkomið fyrir reksturinn,
starfsfólkið og viðskiptavinina.
Shell Helix smurþjónusta er einn-
ig veitt á verkstæðinu, sem og smá-
viðgerðaþjónusta. Þar starfa nú 9-11
manns yfir háannatímann.
Starfsfólkið hefur sótt smur-
námskeið hjá Shell og veit því full-
komlega hvaða olíur eiga að fara á
hvern bíl, en nýir bílar eru marg-
ir hverjir sérlega viðkvæmir fyrir
því að rétt olía sé notuð á þá. Hjól-
barðaverkstæðið er vel tækjum
búið. Til dæmis eru dekkjalyftur
niðurfelldar í gólfið sem auðveldar
bíleigendum innkeyrsluna. Á verk-
stæðinu er Artiglio Master dekkja-
vél til að umfelga low profile-dekk
og dýrar álfelgur. Sú vél er með
nælonhjólum og örmum sem snerta
ekki felgurnar sjálfar og því vin-
sæl meðal bíleigenda sem er annt
um felgurnar sínar.
ÞITT ÖRYGGI OKKAR MARKMIÐ
Hjá Bílabúð Benna eru öryggis-
reglur í hávegum á verkstæðum.
Til að mynda eru allar felgurær
handhertar fyrir brottför og allir
ventlar eru lekaprófaðir eftir um-
felgun til að fyrirbyggja leka með
þeim. Starfsfólk verkstæðisins
hefur mikla reynslu af hjólbörðum
og vinnu við þá, sem er mikið ör-
yggisatriði, enda leggur viðskipta-
vinurinn mikla ábyrgð í hendur þess
sem hann lætur vinna við hjólabún-
að bílsins. Allir góðir dekkjamenn
gera sér grein fyrir því að þeir eru
oft með öryggi heillar fjölskyldu í
höndunum þegar skipt er um dekk á
bílnum. Boðið er upp á fría loftmæl-
ingu og skoðun á ástandi dekkjanna.
Mjög margir af viðskiptavinunum
koma til dæmis við á verkstæðinu
áður en haldið er í lengri ferðir, fá
sér einn kaffibolla og aka svo út í
umferðina vitandi að allt er í góðu
lagi.
Nýtt hjólbarðaverkstæði
Nýtt hjólbarðaverkstæði Bílabúðar Benna að Tangarhöfða (við hliðina á Chevrolet-
salnum), var opnað í sumar.
Mikið er lagt upp úr að verkstæðið sé ávallt snyrtilegt. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Fullkomin Artiglio Master dekkjavél sér
til þess að felgurnar skemmist ekki við
umfelgun.
Nesdekk, hjólbarðaverkstæði og
smurþjónusta, er á tveimur stöð-
um, á Fiskislóð 30 í Reykjavík (á
Grandanum), þar sem hún hefur
verið starfandi síðan 1996. Rekstr-
arstjóri þar er Elías Kristjánsson.
Einnig er Nesdekk með hjólbarða-
verkstæði í Reykjanesbæ, að Njarð-
arbraut 9, sem var opnað sumar-
ið 2009. Rekstrarstjóri Nesdekks í
Reykjanesbæ er Ólafur Eyjólfsson.
Nesdekk sérhæfir sig í alhliða
hjólbarðaþjónustu og er einnig
með vinsæla dekkjageymslu, þar
sem viðskiptavinir geta fengið að
geyma dekkin sín, milli árstíða,
gegn vægu gjaldi. Dekkjahótelið
er mjög vinsælt meðal viðskipta-
vina og styttist í að auka þurfi
geymsluplássið.
Nesdekk er einnig með Shell
Helix smurstöðvar og starfsfólkið
hefur hlotið þjálfun hjá Shell til
að framkvæma verkið eins og
best verður á kosið.
Nesdekk tekur einnig að sér
minni háttar viðgerðir og er
auk þess með perur, þurrku-
blöð og rafgeyma. Markmið
Nesdekks er að geta sinnt bíl-
eigendum með sem flesta hluti,
auk þess að vera með fullkomna
hjólbarðaþjónustu.
Þjónustan mikilvæg hjá Nesdekki
Nesdekk í Reykjanesbæ er á Njarðarbraut 9. Þjónustulipurt starfsfólk Nesdekks á Fiskislóð 30.
FR
ÉT
TA
BL
A
Ð
IÐ
/S
TE
FÁ
N
3.
BFGoodrich
G-Force Stud
Dekk sem
kemur neglt
frá verksmiðjum
BFGoodrich.
Léttmálmsnaglar
sem slíta
malbikinu
minna en þyngri
naglar.
4.
BFGoodrich Winter
Slalom KSI
Nýtt dekk frá
BFGoodrich.
Óneglanlegt
vetrardekk fyrir
jepplinga og jeppa.
Mikið microskorið og
allt það nýjasta frá
BFGoodrich.
2.
BFGoodrich
Mud Terrain
KM2
Nýtt dekk frá
BFGoodrich.
Mun sterkari
hliðar og gert
fyrir
Off Road átök.
1.
BFGoodrich
All Terrain
Áratuga reynsla
á Íslandi.
Sívinsæl
jeppadekk
fyrir íslenskar
aðstæður, gott
grip og frábær
ending sem
íslendingar
kannast við.