Fréttablaðið - 14.10.2010, Page 42
4 ● fréttablaðið ● baðherbergið
Flísa- og baðmarkaðurinn opn-
aði í Bæjarlind 6 í vor. Þar má
finna allt fyrir baðherbergið,
frá handklæðum til innrétt-
inga.
„Verslunin býður eitt mesta úrval
landsins af handlaugum á breiðu
verðbili, vegghengdar, á borð og
frístandandi,“ segir Herdís Vatt-
nes, verslunarstjóri Flísa- og
baðmarkaðarins í Bæjarlind 6.
Í versluninni er einnig að finna
úrval vegg- og gólfflísa eða allt að
130 tegundir sem eru afgreiddar
beint af lager.
„Það er eins með flestar vör-
urnar hjá okkur, þær fást af-
greiddar strax og viðskiptavin-
ir okkar þurfa ekkert að bíða.
Flísarnar, sem allar eru í fyrsta
gæðaflokki, eru af öllum gerðum,
bæði postulínsflísar og keramik.
Til dæmis eigum við mjög sterk-
ar gólflísar á bílskúrsgólf og sval-
ir. Við leggjum áherslu á postulín-
ið og flísarnar en bjóðum einnig
úrval innréttinga, blöndunartækja
og sturtuklefa,“ segir Herdís.
Flísa- og baðmarkaðurinn býður
vörumerki eins og Vitra, Wisa,
Bathco og Ceravid. Allt eru það
stórir evrópskir hreinlætistækja-
framleiðendur sem vinna með ít-
ölskum hönnunarhúsum og hönn-
uðum á borð við Ross Lovegrove
og fleiri.
„Frá þýska fyrirtækinu Cera-
vid eigum við talsvert af tilbúnum
pökkum þar sem fylgja með vatns-
lás, botnventill, Grohe-blöndunar-
tæki, tengikranar og annað sem til
þarf við uppsetningu. Þá er ein-
falt að raða einingunum saman
og þægilegt að geta fengið allt á
einum stað.“
Eigendur fyrirtækisins hafa
lagt sérstaka áherslu á að bjóða að-
eins þekkta gæðavöru fyrir þetta
mikilvæga rými sem baðherberg-
ið er. Í hillum verslunarinnar er
því ekki einungis að finna grófari
vörur til framkvæmda á baðher-
berginu. Verslunin býður einn-
ig úrval fylgihluta á baðherberg-
ið, svo sem skálar og glös undir
sápur, handklæðaslár og hand-
klæðaofna svo eitthvað sé nefnt.
„Það má segja að okkar mark-
mið sé að bjóða góðar vörur og
breitt úrval á lágu verði. Það er
ekki sama álagning hjá okkur og
víða annars staðar. Við erum ekki
með neinn afslátt heldur bjóðum
stöðugt verð. Þó stutt sé síðan
við opnuðum – í mars á þessu ári
– hafa viðtökurnar verið fram-
ar vonum. Fólk stendur í fram-
kvæmdum á þessum tímum eins
og áður og þá er gott að geta boðið
gott verð. Við lækkum verðið einn-
ig eftir því sem gengið lagast og
það finnst mér að fleiri verslan-
ir mættu gera. Ástandið í landinu
kallar á það og nú er svigrúm til
þess. Flísa- og baðmarkaðurinn
mun halda því áfram í takt við
gengið.“
Höldum áfram að lækka
verð í takt við gengið
Herdís Vattnes, verslunarstjóri Flísa- og baðmarkaðarins í Bæjarlind, segir viðtökur
fólks síðan verslunin opnaði í vor vera góðar. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
„Meðal nýjunga hjá okkur í
Flísa- og baðmarkaðnum er
úrval niðurfalla og stálrista í
öllum stærðum og lengdum,“
segir Herdís. Hún segir rist-
arnar jafnframt vera á mjög
góðu verði eða í samræmi við
þá stefnu fyrirtækisins að bjóða
vörur á eins hagstæðu verði og
hægt er hverju sinni.
Hún segir verð á þessum
vöruflokki hafa verið nokkuð
hátt í öðrum verslunum fram að
þessu en það sé að breytast.
„Með innkomu okkar á mark-
aðinn með þessa vöru sýnist
mér verðið á vörum annars stað-
ar hafa lækkað. Við höfum jafn-
vel verið helmingi lægri í verði
en víða þekkist en við gáfum
okkur góðan tíma í að finna
framleiðendur sem bjóða hag-
stæðustu kjörin,“ útskýrir Her-
dís. Hún hvetur jafnframt við-
skiptavini til að kynna sér úrval
niðurfallsrista hjá Flísa- og
baðmarkaðnum.
Leituðu hagstæðra kjara
Mikið úrval er af niðurföllum og stálristum í Flísa- og baðmarkaðnum.