Fréttablaðið - 14.10.2010, Side 43
FIMMTUDAGUR 14. OKTÓBER 2010
Hjá fyrirtækinu Arctic Trucks
eru jeppar og jepplingar í
stöðugri þróun og fyrirtækið
mjög framarlega á sviði
breytinga og þróunar á slíkum
farartækjum í heiminum,
einkum hvað varðar akstur í
snjó og torfærum, eins og sjá
mátti í þáttunum Top Gear um
ferðina á segulpólinn.
Fyrirtækið Arctic Trucks, Klett-
hálsi 3, er alþjóðlegt fyrirtæki
sem hefur verið starfrækt hérlend-
is í tuttugu ár, í fyrstunni sem und-
irdeild Toyota en frá árinu 2005 á
eigin vegum. Árið 1999 var opnað
útibú í Noregi og nýverið var opnað
verkstæði í Dubai. Jafnframt
tekur fyrirtækið að sér verkefni
víða um heim. Samkvæmt heima-
síðu fyrirtækisins er markmið-
ið að verða leiðandi afl í þjónustu
við jeppaeigendur og breytingar á
jeppum í heiminum, einkum hvað
varðar breytingar til að gera jepp-
ana færari í akstri við erfiðar að-
stæður eins og til dæmis á norður-
og suðurpólnum.
Gunnar Haraldsson, sölu- og
þjónustustjóri Arctic Trucks, segir
fyrirtækið þó sinna öllu sem við-
kemur jeppum og jepplingum, en
aðaláherslan sé þó á að gera jepp-
ana öflugri, hækka þá upp og setja
á voldug dekk svo þeir verði færir
um að aka við erfiðari aðstæður, til
dæmis á jöklum og í eyðimörkum.
Gunnar leggur þó áherslu á að þjón-
usta þeirra sé einnig fyrir „venju-
lega“ bílstjóra sem vilja að ökutæki
þeirra séu fær í flestan sjó. Einnig
hefur fyrirtækið nýlega tekið við
Yamaha-umboðinu á Íslandi svo nú
falla fjórhjól, vélsleðar og vélhjól
líka undir verksvið þess. „En við
stundum líka allar almennar bíla-
viðgerðir,“ segir Gunnar. „Það er
alls ekki þannig að menn verði að
vera einhver jeppafrík til að geta
sótt þjónustu til okkar.
FLIPASKURÐUR Í STAÐ NAGLA
AT405 er 38 tommu dekk sem Arc-
tic Trucks lætur framleiða fyrir
sig í Kína. Hönnun þess byggir á
reynslu við íslenskar aðstæður og
því hefur það reynst íslenskum
jeppamönnum sérlega vel, en það
er bæði mjúkt og hljóðlátt. Þessi
dekk voru til dæmis notuð í ferð-
inni á segulpólinn í sjónvarps-
þættinum Top Gear. „Svo erum
við líka með hin vinsælu Dick
Cepek 44 tommu dekk sem eru
frábær fyrir akstur í snjó,“ segir
Gunnar. „Þau eru ýmist flipaskor-
in eða mynstri þeirra breytt með
sérstökum dekkjahníf til þess að
bæta gripið.“
Aðspurður segir Gunnar það
verða sífellt vinsælla að vera á
heilsársdekkjum en þó vilji marg-
ir vera á „þrælnegldum“ dekkj-
um og séu dekkin þá boruð eftir
kúnstarinnar reglum og negld „í
bak og fyrir“. „Svo þarf auðvit-
að að skipta um dekk á vorin, ann-
ars yrði þetta bíleigandanum dýrt
spaug,“ segir Gunnar og hlær. „En
það hefur dregið mjög mikið úr
notkuninni á negldum dekkjum og
þar kemur flipaskurðurinn á dekkj-
unum okkar til móts við breyttar
þarfir bíleigenda.“
Beðinn um að útskýra hvað
felist í flipaskurði segir Gunnar:
„Flipaskurður er hárfínn skurð-
ur á mynstri dekkjanna. Aukinn
áróður gegn notkun nagla hefur
leitt til nýrra leiða með það að
markmiði að viðhalda veggripi.
Flestar nýjar gerðir vetrardekkja
fyrir fólksbíla hafa flipaskurði
og eru hluti af hönnun framleið-
enda. Á flestum öðrum dekkjum
er skurðurinn gerður eftir á í sér-
stökum vélum. Er jafnvel hægt að
flipaskera hluta dekksins og negla
hluta þess. Flipaskurður hefur þau
áhrif að fleiri brúnir grípa í snjó-
inn. Við það eykst veggrip veru-
lega, sérstaklega í þjöppuðum snjó
eins og algengt er á vegum. Sumum
finnst flipaskurður reynast betur
en naglar.“
FJÖLBREYTT VERKEFNI
Meginstarfsemi Arctic Trucks
felst í breytingum á jeppum. Gunn-
ar segir viðskiptin innanlands hafa
dregist saman í kreppunni, en á
móti komi að verkefnum erlend-
is hafi fjölgað, til dæmis séu þeir
núna með verkefni í Brasilíu, Finn-
landi og Síberíu, auk mjög stórs
verkefnis í Dubai þar sem unnið er
að því að gera jeppana hæfari til að
ferðast yfir sand eins og í Sahara-
eyðimörkinni.
Fram undan eru spennandi tímar
hjá Arctic Trucks og er nú verið
að vinna að verkefni í Suður-Afr-
íku sem fróðlegt verður að fylgjast
með.
Svifið á flipum yfir
eyðimerkur og jökla
AT 405-dekkin hafa reynst íslenskum jeppamönnum sérstaklega vel, segir Gunnar
Haraldsson, sölu- og þjónustustjóri Arctic Trucks. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
arctictrucks.is
Arctic Trucks | Kletthálsi 3 | 110 Reykjavík | Sími 540 4900 | www.arctictrucks.is
Gerðu bílinn betri!
Viair loftdælur
í tösku og
innbyggðar
Palldúkar
Grillgrindur
Húddhlífar
Gluggavindhlífar
Ljósahlífar
Come-up spil
í mörgum stærðum
Pallhús
Pallkistur og ferðabox
Dick Cepek FCII
Fáanlegt í 31-35“
stærðum og fyrir
15, 16, 17, 18 og 20
tommu felgur.
Sterkt og gott al hliða
jeppadekk með
heilsársmynstri.
Hentar vel fyrir
míkróskurð og
neglingu.
AT 405
38 x 15,5R 15
Frábært alhliða
jeppadekk, mjög
hljóðlátt á vegum.
Dekkið er míkróskor-
ið og neglanlegt.
ProComp AT (All
terrain)
Fáanlegt í 33-35“
stærðum og fyrir 17
tommu felgur.
Sterkt og endingar-
gott jeppdekk með
heilsársmynstri.
Mjög hljóðlátt.
Hentar fyrir
míkróskurð.
Dick Cepek FC
44 x 18,5 15
Frábært snjó-
akstursdekk sem
jeppamenn þekkja
af reynslunni.
Hentar vel fyrir
míkróskurð og
neglingu.
Kletthálsi 3 • 110 Reykjavík • Sími 540 4900