Fréttablaðið - 21.10.2010, Qupperneq 74
21. október 2010 FIMMTUDAGUR50
golfogveidi@frettabladid.is
Sex ungir kylfingar skipa
íslensku landsliðin á heims-
meistaramóti áhugamanna
sem fer að þessu sinni fram
í Argentínu. Mótið er gríð-
arsterkt nú eins og undan-
farin ár.
Ragnar Ólafsson, liðsstjóri karla-
landsliðsins, segir að andinn í
herbúðum Íslands sé afar góður,
en hann aðstoðar Steinunni Egg-
ertsdóttur, liðsstjóra kvennaliðs-
ins, í Argentínu. Stelpurnar, sem
voru á leið á 1. teig þegar Frétta-
blaðið hafði samband í gær, hafa
þó lent í smá áföllum við undir-
búninginn í Argentínu. Tinna
Jóhannsdóttir Íslandsmeist-
ari tapaði til dæmis golfsettinu
sínu á ferðalaginu, en því var
að öllum líkindum stolið. Í gær
var lögð áhersla á að útvega nýtt
sambærilegt sett fyrir Tinnu. „Á
hinn bóginn er gaman að segja
frá því að hún fór holu í höggi á
æfingahring á þriðjudag.“
Leikið er á tveimur ólíkum
völlum; velli Olivos-golfklúbbsins
og Buenos Aires-golfklúbbnum.
Þátttökuþjóðirnar í kvennaflokki
eru fleiri en nokkru sinni í sögu
mótsins, eða 54 talsins.
Ragnar segir að markmiðið
hjá kvennaliðinu sé að klára um
miðjan hóp. „Ef við náum sæti í
kringum 30 yrði ég afar sáttur.
Þetta er gríðarlega sterkt mót og
í gegnum tíðina hafa hér keppt
sterkustu kylfingar heims bæði í
kvenna- og karlaflokki. Árið 1994
í Frakklandi keppti Tiger Woods
á þessu móti og var þá strax spáð
miklum frama.“ Ragnar segir
jafnframt að fjölmargir kylfing-
ar úr bandaríska háskólagolf-
inu keppi á mótinu sem sé gæða-
stimpill. Það á ekki síst við um
kvennaflokkinn.
Strákarnir hefja leik fimmtu-
daginn 28. október. Þátttökuþjóð-
irnar eru 69 og fyrir hönd Íslands
leika þeir Hlynur G. Hjartar-
son úr Keili, Ólafur B. Loftsson
Nesklúbbnum og Guðmundur Á.
Kristjánsson Golfklúbbi Reykja-
víkur. Ragnar segir stefnt á 20.
til 25 sætið í karlaflokki.
Heimsmeistarakeppnin var
fyrst haldin árið 1958 og er hald-
in á tveggja ára fresti. Núverandi
heimsmeistarar eru Skotland í
karlaflokki og Svíþjóð í kvenna-
flokki.
svavar@frettabladid.is
123 49
Ung en efnileg landslið
á HM áhugakylfinga
BUONOS AIRES-VÖLLURINN Það væsir ekki um kylfingana. Hér er mynd af 7. braut. MYND/WATC
G
O
LF
&
H
EI
LS
A
Allt of margir eru slæmir í hnjám
og hafa jafnvel farið í aðgerð á
hné eða hnjám til að laga vanda-
málið. Aðgerðin leysir vandann
hjá sumum en aðrir verða aftur
slæmir eða hreinlega lagast ekki
við aðgerðina. Þá er nauðsynlegt
að horfa á heildarmyndina. Rangt
álag til lengri tíma getur skaddað
hnéð eins og slys en mikilvægt er
að komast að og leiðrétta orsök-
ina fyrir verknum, skrifar Magni
Bernhardsson.
„Hné er einn af þessum
óheppnu liðum sem er háður
eðlilegri hreyfingu frá mjöðmum
og ökklum. Ef hreyfing skerðist
frá þessum fyrrnefndu liðum
þá getur það breytt afstöðu
hnéliðarins og myndað óeðlilegt
slit. Ef vöðvar í kringum hné
eru missterkir og eða liðbönd á
utanverðu lærinu stíf, getur það
valdið því að hnéskelin hreyfist
óeðlilega og myndað bólgur
undir hnéskel sem getur verið
sársaukafullt. Stuttur fótur getur
valdið óeðlilegu álagi á mjaðmir
og skert hreyfigetu mjaðmalið-
arins í svokölluðum ytri snúningi
liðsins; við það styttast vöðvar í
kringum mjaðmaliðinn og hvað
gerist? Meiðslahætta eykst í baki
og hnjám og golfsveiflan getur
breyst til hins verra.
Láttu ekki verki og óþægindi
koma í bakið á þér. Hryggurinn
þinn er grunnur að góðri heilsu.
Finnum og leiðréttum orsökina,
það er leiðin út úr meiðslum.
Höfundur starfaði með PGA-golfkenn-
ara, Justin Stout, í Bandaríkjunum árið
2007 við að hreyfi- og styrktargreina
nemendur hans ásamt því að nota
kírópraktískar aðferðir til að auka
hreyfanleika iðkenda.
Verkur í hné
Magni M. Bernhardsson,
kírópraktor með sérhæfingu í
golfmeiðslum og öðrum íþrótta-
meiðslum.
Fjölmargar skilgreiningar eru sífellt í notkun á golfvellinum en þær vilja
flækjast fyrir fólki í hita leiksins. Þessar skilgreiningar ættu allir kylfingar að
þekkja, að mati Hinriks Gunnars Hilmarssonar, sem annast hefur eftirlit,
vallarvörslu og dómgæslu hjá Golfklúbbi Reykjavíkur:
Eftirfarandi skilgreiningar má finna í reglubók Royal&Ancient. Það verður
aldrei nóg undirstrikað að það er öllum kylfingum hollt að lesa skilgreining-
arnar og læra því það hjálpar tvímælalaust við golfleikinn.
Að miða bolta. Leikmaður hefur miðað boltann þegar hann hefur tekið
sér stöðu og lagt kylfuna á jörðina. Í torfæru hefur hann hins vegar miðað
boltann þegar hann hefur tekið sér stöðu.
Hreyfa eða hreyfður. Bolti hefur hreyfst ef hann hreyfist úr stað og
stöðvast á öðrum stað. Skiptir þá engu hversu stutt það er.
Högg. Högg er hreyfing kylfunnar fram á við, til að greiða
högg að og hreyfa boltann. Stöðvi leikmaður af sjálfsdáð-
um framsveifluna áður en hún nær að boltanum telst hann
ekki hafa greitt högg.
Lausung. Lausung eru hlutir í náttúrunni, svo sem stein-
ar, laufblöð, kvistir, greinar og því um líkt. Einnig skordýr
og hrúgur eða haugar eftir þau, svo fremi að þeir séu
ekki fastir eða grónir niður, niðurgrafnir sem neinu
nemi, eða loði við boltann. Sandur og laus mold
eru lausung á flöt, en ekki annars staðar. Snjór
og ís, annað en hrím, teljast aðkomuvatn eða
lausung. Dögg og hrím eru ekki lausung.
Hollráð Hinna
Skilgreiningar á golfvellinum
Jack Nicklaus (BNA) 1960
Nick Price (Simbabve) 1976
Vijay Singh (Fidjíeyjar) 1980
Colin Montgomerie
(Bretland og Írland) 1984
José María Olazábal (Spánn) 1984
Jesper Parnevik (Svíþjóð)
1984, 1986
Phil Mickelson (BNA) 1990
David Duval (BNA) 1990, 1992
Michael Campbell (Nýja Sjáland)
1992
Justin Leonard (BNA) 1992
Tiger Woods (BNA) 1994
Sergio Garcia (Spánn) 1996, 1998
Henrik Stenson (Svíþjóð) 1998
Trevor Immelman (S-Afríka) 1998
Camilo Villegas (Kolumbía)
1998, 2000, 2002
Annika Sorenstam (Svíþjóð)
1990, 1992
Se Ri Pak (Kórea) 1994
Frægir kylfingar
TINNA JÓHANNS-
DÓTTIR ÚR KEILI
Lék á 78 höggum
í gær. Er í 108.
sæti.
SIGNÝ ARNÓRS-
DÓTTIR ÚR KEILI
Lék á 77 högg-
um í gær. Er í 94.
sæti.
GUÐRÚN BRÁ
BJÖRGVINSDÓTT-
IR ÚR KEILI
Lék á 86 högg-
um í gær. Er í
148. sæti.
Íslensku keppendurnir
Golfklúbburinn Leynir á Akra-
nesi fagnar 45 ára afmæli sínu í
ár. Upphafið má rekja til 15. mars
1965 þegar 22 Skagamenn komu
saman í fundarsal íþróttahúss-
ins á staðnum og stofnuðu Golf-
klúbb Akraness. Klúbburinn fékk
nafnið Leynir árið 1970, eins og
fréttavefurinn Skessuhorn grein-
ir frá.
Bæjarstjórn Akraness úthlut-
aði klúbbnum gamalgrónu
þriggja hektara túni í byrjun sem
var við austurenda skógræktar
bæjarins. Voru þar gerðar tvær
holur. Árið eftir fékkst álíka stór
blettur til viðbótar vestan þess
fyrsta og voru settar út sex braut-
ir. Völlurinn fékk snemma nafnið
Garðavöllur, enda hafði landið til-
heyrt Garðaprestakalli.
Síðan hefur mikið vatn runnið
til sjávar en tíu ár eru frá opnun
18 holu vallar að Garðavelli.
- shá
Tímamót á Akranesi
Leynir fagnar
45 ára afmæli
GARÐAVÖLLUR Á AKRANESI Tíu ár eru
síðan 18 holu völlurinn var opnaður.
MYND/EDWIN ROALD
ÁRA ALDURSMUNUR er á yngsta og elsta keppanda HM áhugamanna í
kvennaflokki. Elsti keppandinn í mótinu er 62 ára gömul kona, Beatriz de Arenas frá
Gvatemala. Yngsti keppandinn er Marijosse Navarro frá Mexíkó, hún er 13 ára.
Golf Iceland-samtökin fengu marg-
ar heimsóknir frá erlendu fjöl-
miðlafólki og fulltrúum ferðaskrif-
stofa í sumar og er afrakstur þess
að líta dagsins ljós í erlendum fjöl-
miðlum, að því er segir á kylfingi.
is. Alls komu 58 manns frá ellefu
löndum í sumar og hefur íslenskt
golf fengið umfjöllun á vefsíðum, í
dagblöðum og tímaritum erlendis.
Margir þeirra eru gríðarlega
hrifnir af Vestmannaeyjavelli og
umhverfinu í kringum völlinn. - shá
Erlent fagtímarit um golf:
Íslenskt golf
vekur athygli
FRÁ VESTMANNAEYJUM Það þarf engan
að undra þó að völlurinn í Eyjum veki
athygli útlendinga. MYND/GSÍ
ÞJÓÐIR LEIKA Á HM áhuga-
manna í Argentínu. Aldrei hafa fleiri
þjóðir mætt til leiks.