Fréttablaðið

Dato
  • forrige månedoktober 2010næste måned
    mationtofr
    27282930123
    45678910
    11121314151617
    18192021222324
    25262728293031
    1234567

Fréttablaðið - 23.10.2010, Side 8

Fréttablaðið - 23.10.2010, Side 8
8 23. október 2010 LAUGARDAGUR TILBOÐ Á PARKETI Í OKTÓBER! ENDINGAR- GÓÐ ÞÝSK GÆÐAVARA Á meðan birgðir endast. Þriggja stafa eikarparket og hágæða undirlag. Verð 3.950 kr. m2 Á rmú l a 32 · 108 Reyk j a v í k · S ím i 568 1888 · F a x 568 1866 · www .pog . i s Komdu í heimsókn í Ármúla 32 eða hafðu samband í síma 568 1888. Við hjálpum þér að finna réa gólfefnið. STJÖRNUFRÆÐI „Þetta er fjarlægasta fyrirbæri sem sést hefur í alheim- inum hingað til. Ljósið frá þessari vetrarbraut lagði af stað fyrir rúm- lega þrettán milljörðum ára, nánar tiltekið aðeins um 600 milljón árum eftir Miklahvell. Það er um átta milljörðum ára áður en jörðin var til,“ segir Sævar Helgi Bragason, ritstjóri Stjörnufræðivefsins og tengiliður ESO á Íslandi, um nýj- ustu uppgötvun stjarnvísindanna. Hópur evrópskra stjarnvísinda- manna hefur með hjálp risavax- ins stjörnusjónauka (VLT) mælt vegalengdina til fjarlægustu vetr- arbrautar sem fundist hefur í alheimi. Þetta er í fyrsta sinn sem ljós frá vetrarbraut sést brjótast út úr þéttri vetnisþoku sem fyllti alheiminn í árdaga. Skýrt er frá þessum niðurstöðum í nýjasta hefti vísindatímaritsins Nature. „Mæling á rauðviki fjarlægustu vetrarbrautar sem sést hefur hing- að til er í sjálfu sér mjög spennandi en þær stjarneðlisfræðilegu álykt- anir sem draga má af þessum mæl- ingum eru enn mikilvægari,“ segir Nicole Nesvadba, einn höfunda greinarinnar. „Þetta er í fyrsta sinn sem við vitum fyrir víst að við erum að horfa á eina af þeim vetr- arbrautum sem brutu upp þokuna sem fyllti alheiminn í árdaga.“ Sævar Helgi segir að uppgötvun- in sýni að stjörnur og vetrarbrautir mynduðust tiltölulega stuttu eftir Miklahvell þegar alheimurinn var enn á barnsaldri. Eins segir Sævar að uppgötvunin sé tæknilegt afrek sem hefði aldrei verið mögulegt án stærstu stjörnusjónauka og öflug- ustu mælitækja heims. Árið 2018 verður stjörnusjón- aukinn E-ELT tekinn í notkun. „Þá verða svona uppgötvanir án efa gerðar reglulega en allar þessar rannsóknir eru liður í því að skilja hvernig alheimurinn ól okkur af sér,“ segir Sævar Helgi. svavar@frettabladid.is Elsta vetrarbrautin mynduð Vísindamenn hafa mælt vegalengdina til fjarlægustu vetrarbrautar sem fundist hefur. Ljóstýran sem var greind með öflugustu mælitækjum heims lagði af stað átta milljörðum ára áður en jörðin varð til. European Southern Observatory, stjörnustöð Evrópulanda á suður- hveli (ESO), er stærsta fjölþjóðlega stjörnustöð Evrópu og ein öflugasta stjörnustöð heims. Höfuðstöðvar ESO eru í Garching nærri München í Þýskalandi. Einnig rekur ESO útibú í Santiago í Síle auk þriggja stjörnustöðva þar í landi. Í La Silla starfrækir ESO stjörnusjónauka sem skilað hefur mestum árangri í leit að reikistjörnum utan sólkerfisins. Í 2.600 metra hæð á Paranal-fjalli eru fjórir fullkomnustu stjörnusjónaukar heims, sem kallast Very Large Telescope (VLT). VLT er röð fjögurra 8,2 metra breiðra sjónauka. Með einum þeirra hafa stjörnufræðingar náð myndum af fyrirbæri af birtustigi 30 með aðeins klukkustundar löngum lýsingartíma. Þetta fyrirbæri er fjórum milljörðum sinnum daufara en greina má með berum augum. ESO hyggur einnig á smíði 42 metra risasjónauka, European Extremely Large Telescope eða E-ELT, sem verður „stærsta auga jarðar“. Árlega leggja aðildarríki ESO um 135 milljónir evra til starfseminnar. Þar starfa um 700 manns. Stjörnustöð Evrópulanda (ESO) STARAÐ Í TÓMIÐ Á þessari mynd sést vetrarbrautin UDFy-38135539, fjarlæg- asta vetrarbraut sem sést hefur í alheim- inum hingað til. Vetrarbrautin sást fyrst á innrauðri ljósmynd sem Hubble-geim- sjónaukinn tók árið 2009. Hubble var beint á sama stað á himinhvolfinu í 48 klukkutíma til að taka myndina. Gríð- arlega erfitt er að mæla fjarlægðina til svo daufrar ljósuppsprettu en það tókst evrópskum stjörnufræðingum engu síður með hjálp hins evrópska VLT ESO sem er fullkomnasti sjónauki heims. MYND/ESO VERY LARGE TELES- COPE (VLF) Í CHILE SÆVAR HELGI BRAGASON 1. Eftir hvaða geimstöð nefndi Mugison nýja hljóðfærið sitt? 2. Hvaða sjúkdómur herjar á starfsfólk sláturhúsa? 3. Hver telur miðborg Reykjavíkur einn mikilvægasta stað landsins? SVÖR 1. Mír - 2. sláturbóla - 3. Jakob Frímann Magnússon VIÐSKIPTI „Það var mjög gott að klára þetta til að eyða allri óvissu og geta horft fram á við,“ segir Andri Þór Guðmundsson, forstjóri Ölgerðarinnar, en fjárhagslegri endurskipulagningu fyrirtækisins, sem staðið hefur yfir frá í fyrra, er lokið. Við þetta eignast fagfjárfest- ingasjóðurinn Auður 1, sem heyr- ir undir Auði Capital, 36 prósenta hlut ásamt meðfjárfestum og Arion banki fimmtungshlut ásamt því að taka yfir fasteignafélagið G7 sem hýsir starfsemi Ölgerðarinnar. Eignahlutur Andra Þórs, Októs Einarssonar, stjórnarformanns Ölgerðarinnar, og fjögurra fram- kvæmdastjóra fer úr hundrað pró- sentum í 44. Ölgerðin og dótturfélög skuld- uðu rúma fimmtán milljarða króna á þarsíðasta rekstrarári, sem lauk í enda febrúar í fyrra. Þar inni í voru skuldir fasteignafélagsins G7 upp á 4,6 milljarða. Með nýju hlutafé og breytingu á erlendum lánum í krónur lækka skuldir um helming. Andri bendir á að þrátt fyrir að gengishrunið hafi gert félag- inu erfitt fyrir og eiginfjárstaðan orðið neikvæð hafi reksturinn skil- að góðum tekjum og félagið aldrei lent í vanskilum. „Við vorum aldrei á gjörgæslu,“ segir hann. - jab ÖLGERÐIN Nýir fjárfestar komu inn í hluthafahóp Ölgerðarinnar við fjárhags- lega endurskipulagningu. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI Forstjóri Ölgerðarinnar andar léttar að lokinni fjárhagslegri endurskipulagningu: Nýir fjárfestar koma í Ölgerðina LANDBÚNAÐUR Sala á nautakjöti jókst um 15,3 prósent í nýliðnum september samanborið við sama mánuð í fyrra, samkvæmt saman- tekt Bændasamtaka Íslands. Á sama tíma var 5,9 prósenta samdráttur í sölu alifuglakjöts, en sýkingar hafa plagað fram- leiðendur fuglakjöts. Sjúkdómar hafa einnig gert framleiðendum hrossakjöts erfitt fyrir, og er sam- dráttur í sölu 20,2 prósent. Einnig mælist samdráttur í sölu kinda- kjöts, 16,8 prósent, og samdráttur í svínakjötssölu 8,9 prósent milli mánaða, þrátt fyrir að engir sjúk- dómar hafi plagað þá framleiðslu. - bj Áfram sveiflur í kjötsölu: 15% aukning á sölu nautakjöts SVEITARSTJÓRNARMÁL Bæjaryfir- völd í Kópavogi ætla að loka Steypustöðinni Borg á Kársnesi með valdi næsta föstudag. Reksturinn er sagður fara fram í óleyfi. Af honum stafi mengun auk þess sem hann fari að hluta fram á landi bæjarins. Ákalli Borgar um að starfsem- inni yrði þyrmt þar til hún verði flutt á nýja lóð í Hafnarfirði var ekki hlýtt. „Væru það undarleg örlög og í skjön við alla þjóðfé- lagsumræðu um þessar mundir ef þessari síðustu einkareknu steypustöð væri fórnað á síðustu metrum flutnings hennar í var- anlega starfsstöð,“ sagði í bréfi Borgar til Kópavogsbæjar. - gar Steypustöð á hrakhólum: Bærinn boðar lokun Borgar Á ATHAFNASVÆÐI BORGAR Bæjaryfir- völd vilja starfsemina burt. DÓMSMÁL Héraðsdómur Reykja- víkur hefur sýknað ríkið af einnar milljónar skaðabótakröfu manns sem handtekinn var í júlí 2007 í klúbbhúsi vélhjólasamtakanna Fáfnis og sætti síðan gæsluvarð- haldi. Maðurinn var handtekinn eftir ábendingu sem lögregla fékk um að verið væri að ganga í skrokk á manni í húsinu, og sat í gæslu- varðhaldi í fjóra daga. Málið var látið falla niður tæpum tveimur árum eftir að meint árás var gerð. Héraðsdómur taldi að næg efni hefðu verið til að handtaka mann- inn og úrskurða í varðhald. - jss Héraðsdómur sýknar ríkið: Fær ekki bætur VEISTU SVARIÐ?
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar: 249. tölublað (23.10.2010)
https://timarit.is/issue/323791

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.

249. tölublað (23.10.2010)

Handlinger: