Fréttablaðið - 23.10.2010, Page 28
28 23. október 2010 LAUGARDAGUR
É
g hef einu sinni komið
til Íslands. Það var
fyrir mörgum árum
þegar ég var að stíga
mín fyrstu skref í
fyrirsætubransanum
og var ég meðal annars uppi á
jöklum að taka myndir. Svo gat
ég aðeins skoðað landið og farið
í Bláa lónið. Það væri gaman að
fara þangað í frí og Baltasar var
alltaf duglegur að segja okkur frá
landi og þjóð meðan á tökum stóð
í þeim tilgangi að fá okkur í heim-
sókn,“ segir þýska leikkonan Diane
Kruger með afslappaðri röddu og
fullkomnum enskum hreim.
Kruger er stödd í Vancouver
þessa dagana í fríi hjá kærasta
sínum, leikaranum Joshua Jack-
son, sem leikur í þarlendri sjón-
varpsseríu. „Ég reyni að koma
hingað þegar ég á lausa stund. Það
getur tekið á að vera svona mikið í
sundur og við erum meðvituð um
að eyða tíma saman,“ segir Kruger
en viðtalið er hennar þriðja yfir
daginn, þó að klukkan sé bara 11
að morgni að hennar tíma.
Heillandi saga
Það vakti mikla athygli fjölmiðla
þegar leikkonan Diane Kruger
gekk til liðs við leikhóp Baltasars
Kormáks fyrir myndina Inhale.
Kruger er annáluð fegurðardís og
þykir hörkuleikkona. Hún byrjaði
sinn feril sem fyrirsæta í París
en skaust upp á stjörnuhimininn
þegar hún hampaði hlutverki Hel-
enu fögru í stórmyndinni Troy,
eftir mikla leit aðstandenda mynd-
arinnar að konu sem gæti túlkað
fegurstu konu heims á hvíta tjald-
inu.
Inhale, sem átti fyrst að heita
Run for Her Life, fjallar um heim
ólöglegra líffæraflutninga og
vekur upp margar siðferðislegar
spurningar hjá áhorfandanum. Það
var einmitt það sem laðaði Kruger
að myndinni.
„Ég varð strax heilluð af hand-
ritinu og boðskapnum sem felst í
sögunni. Öllum þessum siðferðis-
legu spurningum sem maður getur
velt fyrir sér fram og til baka. Ég
hafði aldrei spáð neitt sérstaklega
í ólöglegum líffæraflutningum og
vissi ekki að þetta væri algengt
vandamál. Um leið og ég var búin
að lesa handritið fór ég á netið
og las mér til um málefnið. Þetta
snerti mig djúpt,“ segir Kruger en
í myndinni fer hún með hlutverk
hinnar týpísku miðstéttarmömmu,
Diane Stanton, sem berst fyrir
lífi dóttur sinnar og er tilbúin til
að gera hvað sem er til að bjarga
henni.
„Diane Stanton kemur frá for-
réttindaveröld og er knúin áfram
af ástinni til dóttur sinnar. Myndin
sýnir muninn milli tveggja heima,
þó landfræðilega séu þeir ekki
langt frá hvor öðrum. Þó að ég sé
ekki móðir sjálf, þá get ég vel sett
mig í hennar spor enda held ég að
það gildi það sama um hvaða ást-
vin sem er. Þú berst fyrir þá sem
þú elskar, ekki satt?“
Kruger segist hafa verið á báðum
áttum með endinn á myndinni
meðan á tökum stóð og var Balt-
asar sjálfur undir þrýstingi með
að ljúka myndinni á annan veg.
„Ég get alveg viðurkennt það að
ég var mjög tvístígandi um hvort
hann væri að taka rétta ákvörðun
í tökuferlinu. Það var ekki bara ég,
heldur voru oft miklar rökræður
um siðferðið í myndinni á milli
manna á tökustað, “ segir Kruger
en bætir við að eftir að hafa séð
myndina nokkrum sinnum sé hún
mjög sátt með útkomuna. „Ég er
mjög ánægð með myndina og held
að hún eigi eftir að ná vel til ákveð-
ins hóps. Þetta er ekki hin týpíska
Hollywood-mynd sem áhorfandinn
horfir á sér til afþreyingar. Tak-
markið með myndinni er að vekja
fólk til umhugsunar, svo ekki sé
minnst á mikilvægi þess að varpa
ljósi á þessa ólöglegu starfsemi,“
segir Kruger.
Hún ber Baltasar vel söguna
og segir hann hafa verið einbeitt-
an og kunnað vel til verka á töku-
stað. „Baltasar var mjög fagmann-
legur í sinni vinnu og lagði mikla
áherslu á persónusköpunina. Þar
liggur oft munurinn milli banda-
rískra og evrópskra leikstjóra. Það
er miklu meiri áhersla á hið per-
sónulega, sem er mjög gott,“ segir
Kruger og bætir við að það hafi
verið góð stemming á tökustað og
mikill hugur í fólki að gera þetta
vel.
Hollywood er draumaheimur
Kruger á íbúð í París en þar hóf
hún fyrirsætuferil sinn eftir
að ballerínudraumurinn brást
vegna meiðsla. Hún er altalandi
á frönsku og hefur einnig haslað
sér völl í franska kvikmyndageir-
anum. Hún á líka hús í Los Angel-
es og segist njóta þess að flakka á
milli heimsálfa enda séu það ólíkir
menningarheimar.
„Ég eyði miklum tíma í París
og ég elska að komast til Evrópu.
Hollywood er hálfgerð drauma-
borg. Alltaf gott veður og flott
umhverfi. Þess konar fullkomnun
er ekki alltaf holl og gott að kom-
ast til Parísar og hverfa inn í raun-
veruleikann þar,“ segir Kruger
og viðurkennir að hún finni mikið
fyrir æsku-og útlitsdýrkuninni
sem tíðkast í kvikmyndaheimin-
um. „Ég er mjög heppin að geta
tekið mér pásu frá þessum heimi
inn á milli og unnið í Evrópu.
Þar er ekki sama pressa og meiri
áhersla lögð á að leika vel en að
líta vel út. Þannig nýt ég þeirra
forréttinda og fæ það besta frá
báðum heimum.“
Kruger er gjarna talin með
tískufyrirmyndum í Hollywood og
hefur hún meðal annars verið and-
lit Calvins Klein og snyrtivöru-
framleiðandans L´Oréal. Hún er
einnig góð vinkona yfirhönnuðar
Chanel-tískuhússins, Karls Lager-
feld, en vill sem minnst um þann
vinskap tala. „Ég get ekki sagt
að ég sé þræll tískunnar en mér
finnst fatnaður vera góður tján-
ingarmáti. Það er gaman að klæð-
ast flottum fötum en ég elti ekki
alla tískustrauma,“ segir Kruger
en hún hefur lagt fyrirsætuferil-
inn á hilluna og saknar þess ekk-
ert „Það er samt svo skrýtið að
leikkonustarfinu fylgja eiginlega
fleiri myndatökur. Mér líður vel
fyrir framan linsuna, það er nokk-
uð ljóst og ætla mér að vera þar
eins lengi og ég get,“ segir Kruger
áður en hún kveður.
ÁNÆGÐ MEÐ INHALE Þýska leikkonan Diane Kruger heillaðist strax af handriti myndarinnar og segir leikstjórann Baltasar Kormák
fagmannlegan. NORDICPHOTOS/GETTY
Heillaðist af
handritinu
Hún skaust upp á stjörnuhimininn sem Helena fagra í Hollywood-
myndinni Troy og lék tálkvendið í Inglourious Basterds. Fegurðardísin
Diane Kruger fer með annað aðallhlutverkanna í Inhale, kvikmynd
Baltasars Kormáks sem frumsýnd var hér á landi í gær. Álfrún Páls-
dóttir talaði við leikkonuna um samvinnuna við Baltasar, fyrstu kynn-
in af Íslandi og draumaborgina Hollywood.
Baltasar Kormákur, leikstjóri Inhale, ber Diane Kruger og þeirra samstarfi vel sög-
una. „Við náðum mjög vel saman á fyrsta fundi
og mér leist strax vel á hana,“ segir Baltasar.
„Hún sýndi myndinni áhuga um leið og við höfð-
um samband,“ segir Baltasar og segir Kruger
vera mikinn vinnuhest og enga dívu,
þrátt fyrir að hafa náð langt í Holly-
wood. „Nei, hún er engin díva en auð-
vitað gerir hún kröfur um að hlutirn-
ir séu í lagi. Það eru engir stælar
í henni og hún er líka skemmti-
legur húmoristi,“ segir Baltas-
ar og bætir við að hann hafi trú
á því að Kruger eigi eftir að ná
langt í bransanum og kallar hana
þýskt kameljón. „Hún er mikill
atvinnumaður og gerir hlutina af
alvöru. Algjör proffi.“
■ LEIKSTJÓRINN
Hún er algjör proffi.
Baltasar var mjög fagmannleg-
ur í sinni vinnu og lagði mikla
áherslu á persónusköpunina. Þar
liggur oft munurinn milli banda-
rískra og evrópskra leikstjóra.
Félagsfundur Skotvís
Félagsfundur Skotvís verður haldinn í Gerðubergi
þriðjudaginn 26. október 2010 kl. 20:00.
Dagskrá:
Sagt frá baráttu félagsins varðandi takmark-
anir á veiðum og umferð í Vatnajökulsþjóð-
garði. Níels Árni Lund, varaformaður Skotvís.
Hvað segja veiðiskýrslurnar okkur um rjúpna-
veiðar landsmanna. Steinar Rafn Beck,
sérfræðingur hjá Umhverfisstofnun.
Kynning á ýmsum varningi fyrir rjúpnaveiði-
menn.
Allir velkomnir meðan húsrúm leyfir.
www.skotvis.is