Fréttablaðið - 23.10.2010, Side 72
36 23. október 2010 LAUGARDAGUR
Í ÞÁ TÍÐ...
1900ÁR 201020001950 1960
Fyrir réttum fimmtíu árum, í lok október 1960, fóru að kvisast út sögusagnir um að stórt geimferðaverkefni hafi farið forgörðum
hjá Sovétmönnum, en þær fengust ekki staðfestar frá yfirvöldum.
Hins vegar birtist nokkrum dögum síðar tilkynning frá miðstjórn
Kommúnistaflokksins þar sem sagt var að marskálkurinn Mitrof-
an Nedelin, yfirmaður eldflaugaáætlunar Sovétríkjanna, hafi látist
í flugslysi.
Fram að lokum kalda stríðsins var þetta eina opinbera plaggið sem
til var um mannskæðasta eldflaugarslys sem átt hefur sér stað. Sann-
leikur málsins var sá að um var að ræða frumútgáfu af langdrægri
sprengjuflaug Sovétmanna, R-16, sem sprakk í loft upp á skotpalli í
Síberíu.
Í asanum við að koma flauginni á loft á tilsettum tíma var litið
framhjá nokkrum veigamiklum göllum á flauginni. Nedelin fór sjálf-
ur upp að skotpallinum og rak sína menn áfram.
Galli í ræsibúnaði varð til þess að annar áfangi flaugarinnar, sem
átti aðeins að kvikna þegar upp í loft var komið, kveikti í neðsta hlut-
anum og gríðarleg sprenging varð. Eldhnöttur um 120 metrar í þver-
mál blossaði upp með skelfilegum afleiðingum.
Alls biðu 76 bana við skotpallinn þennan dag vegna bruna eða eitur-
gufna, þar á meðal Nedelin sjálfur, og að minnsta kosti 16 létust síðar
á sjúkrahúsi.
Það var ekki fyrr en 1989 sem frekari upplýsingar voru veittar um
hvað átti sér stað, en nú er á skotstaðnum minnismerki með nöfnum
þeirra sem létust á þessum sorgardegi. - þj
Slysinu leynt í áratugi
Nær 100 létust í Nedelin-eldflaugarslysi.
Ávallt til vinnu á hjólhesti
MYNDBROT ÚR DEGI | Miðvikudagurinn 20. október | Tekið á Canon EOS-5D
Tjörvi Bjarnason býr í 101 Reykjavík ásamt fjölskyldu sinni. Á hverjum degi hjólar hann eða gengur á milli póstnúmera í
Bændahöllina, þar sem hann vinnur meðal annars að útgáfu Bændablaðsins ásamt öðru góðu fólki.
2 Ég seldi Land Roverinn þegar kreppan skall á enda ekki verjandi að aka stuttan spotta til vinnu á dísilhák. Hjóla-
túr fyllir lungun af fersku lofti og ekki er verra að veifa
nágrönnum og vinum á leiðinni sem sitja fastir í Hring-
brautarumferðinni.
1 Dagurinn byrjar á því að fylgja krakkastrollunni til mennta. Katla (8) og Jökull (6) fara í Vesturbæjarskól-
ann en Embla (4) ver sínum vinnudegi á Drafnarborg í góðu
yfirlæti. Mamma þeirra, hún Arna, er farin á fjölskyldubíln-
um á sinn vinnustað niðri við Sundahöfn.
3 Í dag er Bændablaðsdagur, en við þurfum að klára blað-ið fyrir dagslok og senda í prentsmiðjuna. Erla Hjör-
dís blaðamaður spáir í spilin en uppi á palisanderklæddum
veggnum eru margar hálfunnar síður og göt fyrir fréttaefni
og myndir. Nóg að gera.
4 Rauk út til að taka forsíðumyndina klukkan 17.00 þegar bændur og fulltrúar ríkisvaldsins skrifuðu undir nýjan bún-
aðarlagasamning. Menn reyna að gera gott úr hlutunum þrátt
fyrir mikinn niðurskurð. Fjármálaráðherra sagði að nú mætt-
um við þrengja beltisólarnar! Jón Bjarnason hress að vanda.
5 Klukkutíma eftir undirritunina í sjávarútvegs- og land-búnaðarráðuneytinu flæðir Bændablaðið úr prentvélum
Landsprents við Rauðavatn. Fer þangað til að biðjast afsök-
unar á seinkuninni en líka til að baktryggja að blaðið sé í
lagi.
6 Um kvöldið eru allir búnir að borða þegar ég kem heim. Katla er í tölvunni og Jökull stautar sig í gegnum nýtt
lestrarkver með mömmu sinni. Embla og tíkin Týra hafa
minna fyrir stafni en sinna sínu.
Kanarí
Ath. takmarkaður fjöldi sæta og gistingar í boði
– verð getur hækkað án fyrirvara!
Kr. 129.900 – með „öllu inniföldu“
Netverð á mann, m.v. 2 fullorðna og eitt barn 2-11 ára í íbúð
í 14 nætur með „öllu inniföldu”. Netverð á mann.
Verð á mann í tvíbýli 139.900 með allt innifalið í 14 nætur.
27. nóvember - 14 nætur
Frá kr. 129.900 með „öllu inniföldu“
Turbo Club Apartments - Ótrúlegt sértilboð!
Nú bjóðum við allra síðustu sætin í sólina á Kanaríeyjum 27. nóvember á frábæru tilboði. Í boði er m.a. frábært sértilboð
með „öllu inniföldu“ á Turbo Club Apartments. Þetta er góð íbúðagisting sem er vel staðsett á Maspalomas svæðinu.
Stór og fallegur hótelgarður með tveimur sundlaugarsvæðum og góðri sólbaðsaðstöðu. Aðeins örfá sæti í boði.