Fréttablaðið - 23.10.2010, Page 80
44 23. október 2010 LAUGARDAGUR
Á Vísi er hægt að
horfa á myndskreyttan
upplestur úr þessum
sígildu ævintýrum.
Hlustaðu á Dísu ljósálf
og Alfinn álfakóng á Vísi
Hver er uppáhaldsmatur-
inn þinn? Fiskibollur í bleikri
sósu.
Hver er uppáhaldsliturinn þinn?
Það eru eiginlega allir regnbog-
ans litir, gult og blátt og rautt.
Hvað ertu eiginlega gamall? Ég
er átta ára.
Af hverju sést aldrei framan
í mömmu þína? Hún er allt of
stór.
Hvað er mesta skammarstrik-
ið sem þú hefur gert? Þau eru
nú nokkur sem ég hef fengið
skammir í hattinn fyrir. En það
nýlegasta var þegar ég bað Villa
um að klippa mig. Það var ekki
vinsælt á mínu heimili.
Hvert er átrúnaðargoð-
ið þitt? Úff, þetta er erf-
itt. En ég hef voða gaman af
teiknimyndahetjum eins og
Batman.
Hvor er betri, Batman eða
Súperman? Súperman er svona
aðeins betri.
Eruð þið Villi í alvörunni
vinir? Já, við erum nefnilega í
alvörunni vinir.
Hvað ætlar þú að verða þegar
þú verður stór? Mig langar að
vera eitthvað sem krefst
þess að vera í bún-
ingi. Strætó-
bílstóri,
flugmað-
ur eða
slökkviliðsgæi. Einkennisbún-
ingar eru svo töff.
Við hvað ertu hræddur? Ég
er eiginlega ekki hræddur við
neitt.
Ekki einu sinni köngulær? Nei
alls ekki, ég safnaði þeim einu
sinni. Ég er mikið fyrir smá-
dýr. En kannski yrði ég hrædd-
ur við stór dýr sem eru ekki til á
Íslandi, eins og krókódíla.
Ferðu einhvern tímann að
grenja? Já, stundum. Ef ég meiði
mig mikið þá fer ég að grenja.
Stundum líka ef mamma er mjög
reið, þá er oft ágætis leið að fara
að grenja. Þá róast hún líka oft
niður.
Hvenær ertu glaðastur? Þegar
ég er að gera eitthvað mjög
skemmtilegt. Eitthvað sem mig
hefur dreymt um lengi eins og
að búa til þriggja hæða sam-
loku, eða þegar ég er með
vinum mínum.
Finnst þér gaman að vera
fínt klæddur? Nei ekkert sér-
staklega. Ég er búinn að vera
í mörg ár í ullarvesti yfir
skyrtunni á jólunum sem
er mjög óþægilegt. En ég er
búinn að komast að samkomu-
lagi við mömmu um að sleppa
því þessi jólin.
Hvort er skemmtilegra jólin eða
páskarnir? Jólin eru skemmti-
legri, það eru náttúrulega
ekki til neinir páska-
sveinar.
krakkar@frettabladid.is
LITABOK.IS er skemmtileg vefsíða. Þar er hægt að finna myndir af alls konar teikni-
myndapersónum eins og Bubba byggi og kartöfluhaus sem hægt er að prenta út og lita.
EKKI HRÆDDUR VIÐ
NEITT NEMA KRÓKÓDÍLA
■ Í ávaxtakörfunni mátti heyra eftirfarandi samtal:
Bananinn: Hey! Af hverju er svona dimmt hérna inni?
Eplið: Peran fór.
■ Mamma: Af hverju setur þú bangsann þinn inn í frysti?
Halli: Af því mig langar í ísbjörn.
■ Ég var að frétta að maðurinn þinn missti málið í sex vikur.
Nú? Hann sagði mér ekkert frá því.
■ Hvernig stendur á því að í dag kostar kötturinn 5.000
krónur? Hann kostaði ekki nema 3.000 í gær?
Í millitíðinni gleypti hann páfagauk sem kostaði 2.000
krónur.
Þú getur sent brandara til krakkar@frettabladid.is
Hvað skyldi Sveppi ætla að verða þegar hann verður stór og hvert er helsta átrún-
aðargoðið hans? Fréttablaðið hitti Sveppa og lagði fyrir hann nokkrar spurningar.
Horn á höfði
Niðurstaða: Sprenghlægilegt og spennandi leikrit
HITT OG ÞETTA
Einar Steinn Kristjánsson LEIKHÚS LEIKRITIÐ PRUMPUHÓLLINN
verður sýnt í Gerðubergi í dag
klukkan tvö. Leikritið er fyrir
tveggja til tíu ára krakka.
MYNDIR EFTIR SIGRÚNU
ELDJÁRN verða
til sýnis á Torgi
Þjóðminjasafns
Íslands í dag
klukkan þrjú.
Hún og Þórarinn
Eldjárn lesa svo
upp úr bókum sínum.
SÓLA SÖGUKONA segir sögu
sína í bókasafninu í Gerðubergi
á morgun klukkan tvö.
NÝ ÍSLENSK ÓPERA verður
sýnd í Iðnó í dag, á morgun og
mánudag klukkan 20. Flytjend-
ur eru nemendur í Tónlist-
arskólanum í Reykja-
vík.
Jólin eru
skemmtilegri,
það eru náttúrulega
ekki til neinir páska-
sveinar.
„Þetta var fyndið og spennandi leik-
rit um strák sem vaknar einn
daginn með horn á höfðinu,“
segir Einar Steinn um barna-
sýningu ársins 2010, Horn
á höfði.
„Ég gleymi mér í leikhús-
um og pæli ekki hvort aðrir
skemmti sér jafn vel og ég,
en tók eftir að Villi vinur
Sveppa var í salnum
og Skrýtla. Þau voru með sína krakka og hlógu öll,“ segir Einar
Steinn, sem heldur mest upp á Óliver Twist af leikritunum sem
hann hefur séð.
„Ég var hrifnastur af Dýrunum í Hálsaskógi þegar ég var lítill og
aldrei hræddur við Mikka ref. Pabbi saumaði á mig búning úr refa-
efni. Ég var líka hrifinn af Emil í Kattholti og pabbi tálgaði handa
mér trébyssu eins og Emil á. Hann er alltaf góður við mig. Þess
vegna er leiðinlegt að hann hafi aldrei tíma frá vinnunni til að fara
með okkur mömmu í leikhús,“ segir Einar Steinn, sem mælir með
Hornum á höfði fyrir krakka frá fjögurra upp í fjórtán ára.