Morgunn


Morgunn - 01.12.1942, Side 13

Morgunn - 01.12.1942, Side 13
MORGUNN 139 og að hann verði besti samferðarmaður minn“. Þetta segir Steindór eins og fyrir munn mannsins. Eftir þetta lýsir S. ýmsum einkennum hans, en þeim sleppi ég að mestu. S. segir: „Hann hefir verið vel hagur í höndunum. Hann er búinn að byggja bæ hér, handa sér og mömmunni, þegar hún kemur. Á öllu þar er ákaflega mikil prýði og snyrtimennska, svo að dá- samlegt er á að líta. Hann hlýtur því að hafa verið hagur og snyrtimenni". Það er að heyra á því hvernig S. segir þetta, að hann fái ekki nógsamlega dásamað frágang mannsins á bænum, sem ætlaður er honum og konu hans. Eftir þetta hverfur Steindór úr sambandinu, en í hans stað kemur maðurinn sjálfur. Hann talar fyrst nokkuð hratt og óskýrt, en það breytist bráðlega og er eins og hann jafni sig. Hann talar í hálfstuðluðu máli eðá næstum í Ijóðum, en þar sem enginn var tilbúinn að skrifa jafnóðum niður, verður að láta nægja að segja frá efni þess, er hann sagði. Það kom fljótt í ljós, er hann hafði jafnað sig, að hann var mjög ánægður með umskiftin, og að líðan hans var ákaflega góð, að hann hafði flutzt úr kulda og dimmu í ljós og yl, — frá stríði í frið o. s. frv. — Það kom síðar í ljós, að í þessu á hann aðeins við erfið- leika síðustu áranna. í gegnum allt tal hans lýsir af ástúð og kæleika til konu og barna og hann er alltaf að biðja um, að kona sín yrði látin vita um það, hversu vel sér líði, og hve ánægður hann sé. Fundarmenn sögðu, að það hefði engu verið líkara, en að sem ljóma og ástúð legði af hverri setningu er hann sagði. — Hann endaði með því að biðja um, að kona sín yrði látin vita um það, — og lagði áherzlu á, — að hún þyrfti engar áhyggjur að bera hans vegna, og að nú skyldi hún láta birta yfir hug sínum og horfa með gléði fram á veginn. .,Nú á ég aðeins eitt að hugsa um og hlakka til“,

x

Morgunn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.