Morgunn


Morgunn - 01.12.1942, Side 16

Morgunn - 01.12.1942, Side 16
142 MO RG UNN sem ég þekki. Og ef hann hefði átt að gera þetta sjálf- ur, hefði ef til vill ekki komið eins vel fram fögnuður- inn og sælan, sem streymdi út frá honum meðan hann var í sambandinu síðar. Ég sagði frá ýmsu viðkomandi manninum til þess að þið gætuð svo borið það saman jafnóðum og það kom fram í frásögn Steindórs, það sem þar vantar á um sam-> anburð, kemur fram í bréfinu, sem ég las kafla úr rétt áðan. Orðatiltæki Steindórs litla eru stundum dálítið skrítin. Hann segir: „Vatnið sem hleypur", og „hann pikkar fram með öðrum fætinum". „Rennandi vatn“, segir hann að „hlaupi áfram“. — Öll vitum við, að þeir sem hafa tréfót, eða jafnvel að eins staurfót, — ganga nokkuð einkennilega, það kallar S. að „pikka fram fætinum“. tms orðatiltæki og tilsvör Steindórs litla eru oft búin að vekja gleði meðal þeirra, sem á hann hafa hlýtt. Ég veit ekki hvað þið segið, tilheyrendur mínir, en mér finnst ýmistlegt mjög merkilegt og skemmtilegt í þessu, sem ég hefi sagt ykkur. Það er ekkert merkilegt þó kona missi mann sinn eftir fjölda ára sambúð, og að fullorðin börn missi föður sinn, þetta er gangur lífsins, en þegar aðstæð- urnar eru þess valdandi, að yfir síðustu stundum sam- verunnar hvílir skuggi svo dimmur, að hann skyggir á alla gleði heimilisins, með öðrum orðum, útrýmir ljósi og yl, þá er öðru máli að gegna. Eftir fyrra bréfinu, sem ég gat um, virðist þetta vera svona. En svo kemur sendiboði með ljós. Hann er ekki klæddur 'neinum einkennisbúningi. Hann hefir ekki nein sendiherra réttindi. Þetta er aðeins smádrengur, — 2—3 ára er hann fór héðan, eftir því, sem næst verður komist. Hann hefir þarna fengið hið dásamlega hlutverk, að reka myrkrið á dyr, en bera ljós í bæinn. Sjálfsagt myndu einhverjir verða til þess að segja, að þetta sé syndsamlegt, eða ef til vill allt frá hinum vonda.

x

Morgunn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.