Morgunn - 01.12.1942, Page 22
148
MO RG UNN
systir yðar?“ (Vissi að systurnar voru aðeins tvær).
,,Nei, það er yngri systir mín!“ ,,En ég mætti henni rétt
innan við hús mitt klukkan níu“, segi ég undrandi. —
,,Hvað hefur komið fyrir?“ Bróðir stúlkunnar telur
þetta hugarburð einan, því systir sín hafi fundizt örend
í flæðarmálinu inni undir bryggju klukkan fimm þeima
morgun og samstundis verið flutt í líkhúsið.
Þegar ég kom í líkhúsið á hádegi, þá liggur fallega
stúlkan glaðværa þar á borðinu, og er sami sári, rauna-
legi svipur á andlitinu og ég áður hefi lýst, en nokkuð
hafði þó ró dauðans dregið úr raunadráttunum. Hún var
að öllu svo búin, sem fyrr getur.
Ég stóð agndofa og gat, og get raunar eigi enn, nokk-
urn skilning á því fengið, hvernig það mætti verða, að ég
mætti stúlkunni þarna á götunni um níu-leytið. Eigi er
því til að dreifa, að mér hafi orðið hugsað til hennar;
ég man, að ég var að hugsa um sjúkling þann, er ég
skyldi vitja. En mér finnst þessi atburður nokkuð áþreif-
anleg sönnun þess, að margt er oss mönnunum enn hulið
í ríki guðs og náttúrunnar, en þetta fyrirbrigði er aðeins
eitt af ótal líkum.
V. St.
Merkilegur miðill.
Eftir séra Jón Auðuns.
í Suður-Wales á Englandi fæddist árið 1907 maður-
inn, sem, ég ætla að segja hér lítillega frá. Hann var af
alþýðufólki fæddur og í skírninni hlaut hann nafnið
John Boaden Webber, en var oftast kallaður Jack
W e b b e r .
Menntun fékk hann af skornum skammti í uppvext-
inum. Fjórtán ára að aldri fór hann að vinna í kola-