Morgunn


Morgunn - 01.12.1942, Side 33

Morgunn - 01.12.1942, Side 33
MO RG UNN 159 var framkölluð, að hún mundi sýna ermarnar kyrrar undir böndunum, en aðra hluti jakkans færða úr stað. Þegar búið var að framkalla plötuna, kom sannarlega fram furðuleg mynd. Jakkaermarnar voru kyrrar á sín- Um stað, en jakkanum var a@ öðru leyti snúið þannig, að bakið sneri fram, jakkabakið lá framan á brjósti miðilsins. Þetta er vitanlega með öllu óskiljanlegt með naannlegum aðferðum. Myndin hefir verið birt opinber- lega og skorað hefir verið á efasemdamennina, að sýna samskonar fyrirbrigði. Það hefir þeim af skiljanlegum ástæðum ekki þótt beinlínis árennilegt að reyna. Þetta fyrirbrigði hefði vitanlega mátt svíkja með því móti, að miðillinn eða aðrir samsekir hefðu haft annan jakka, nákvæmlega af sömu gerð, til að blekkja með, en allir þeir, sem viðstaddir voru þennan atburð, hafa gefið drengskaparvottorð í málinu, enda í fyllsta máta hæpið að hugsa sér, að svíkja sjálfa sig þannig í sínum eigin rannsóknum, sinni eigin leit að sannleikanum. En að hugsa sér, að miðillinn, með margbundnum höndum og fótum, hafi getað gert þetta, er barnaskapur. Hins vegar sjá sanngjarnir menn, og allir, sem nokk- urn snefil hafa af þekkingu á sálarrannsóknunum, að hér er að eins um eitt merkilegt dæmi þess, af mörgum, að ræða, að til eru í alheiminum lögmál, sem hin jarð- úesku vísindi eru undarlega sein að átta sig á, kynna sér og rannsaka, þótt til þess kunni að liggja beinar braut- ir. Þann veg eru sálarrannsóknirnar að varða, þann stór- haikla skerf eru þær að leggja til aukinnar þekkingar mannkynsins. Framh. Milton, enska stórskáldið, sem m. a. orkti Paradísarmissi, sem Jón Þorláksson á Bægisá þýddi, segir: „Milljónir af and- iegum verum ganga ósýnilegar um jörðina, bæði meðan vér vökum og sofum“.

x

Morgunn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.