Morgunn - 01.12.1942, Blaðsíða 38
164
M O R G U N N
sögn lýsir hún nákvæmlega. Enn segir hún: „Þessi bók
segir frá mörgum og ólíkum löndum“, og að lokum segir
ún, að „alveg í upphafi bókarinnar" muni sonurinn
finna sagt frá stað, sem hann (faðirinn) hafi haft
miklar mætur á. Nú fer sonurinn að spyrja um hvar
þetta ókunna herbergi sé og hvar bókin sé, en af vör-
um miðilsins er þá svarað með nokkurri óþolinmæði, sem
í jarðlífinu hafði einkennt föðurinn, „Láttu mig um
það!“ og var því bætt við, að faðirinn skyldi „leiða
hann að staðnum".
Svo litla hugmynd hafði A. um húsið, og bækurnar,
sem faðir hans hafði talað um, að hann fór til Hamp-
stead og gerði þar árangurslausa leit í eina húsinu, sem
honum gat komið til hugar, að lýsingin gæti átt við. Fá-
einum dögum síðar fór hann, eins og af hreinni tilvilj-
un, í heimsókn til frænda síns nokkurs í Croydon. En
þegar þangað var komið, fann hann herbergið alveg
óvænt. Lýsingin á fundinum hjá frú Leonard af hús-
gögnunum reyndist nákvæm og þarna stóð bókaskáp-
urinn, með glerhurðum fyrir, nákvæmlega á þeim stað,
sem honum hafði verið sagt til um! Hann gekk nú rak-
leiðis að skápnum og tók „þriðju bókina til hægri í
annarri hillunni að ofan. Á 27. blaðsíðunni ofanverðri,
alveg þar sem honum hafði verið sagt til, var frásögn-
in, sem honum hafði verið sagt, að þar ætti að vera.
Þá fletti hann við. Á 26. blaðsíðu var einnig það, sem
þar átti að vera. Aftast var listi með nöfnum fjölda
landa og borga, sem sagt var frá í bókinni og í neðan-
málsgrein formálans var talað um Ítalíu, landið, sem
faðir A-s hafði haft mestar mætur á af öllum löndum
á meginlandinu. Bókina sjálfa hafði A. hvorki heyrt né
séð áður. Hún var skrifuð vestur í Ameríku og gefin
þar út. Honum var sagt að hvorki frændi hans né nokk-
ur annar í húsinu hefði nokkurn tíma lesið þessa bók.
En frændinn minntist þess nú, að þegar faðir A-s var
síðast í heimsókn hjá honum, hefði hann verið að lesa