Morgunn - 01.12.1942, Síða 42
168
M O RG U N N
heimsókn sína. Við hvöttum þær til að heimsækja dr.
Beale að heimili hans í Borderland, og tóku þær við því
boði með fögnuði. (Dr. Beale er læknirinn frá anda-
heiminum, sem stjórnar oftast miðlinum, ungfrú Rose, og
tekizt hefir að leysa af hendi stórmerkilegar lækningar,
að því er E.M.S. segir í bókum sínum. Þýð.).
Þegar ungfrú Rose kom til sjálfrar sín aftur sá hún
þessar tvær yndislegu andaverur hjá okkur og lýsti
þeim. Ella var há og björt og klæðnaður hennar grænn
og norðurljósablár, en Cora höfði lægri, dökk og klæðn-1
aður hennar loga-rauð-brúnn.
Hin barnslega forvitni og hjartanlega gleði, sem ein-
kenndi þessa gesti var yndisleg og aldrei fundum við
skýrara raunveruleik hinna andlegu stjórnenda miðl-
anna, en í návist þeirra.
Þeirri staðreynd höfðum við kynnzt áður hjá öðrum
stjórnendum, að í hinum heiminum er mörgum gersam-
lega ókunnugt um, að samband milli heimanna sé mögu-
legt. Þeir, sem nýlega hafa verið farnir yfir í anda-
heiminn hafa stundum komið skyndilega í gegn og talað
og hegðað sér alveg eins og þeir væru enn á jörðunni.
Þeir höfðu bersýnilega enga minnstu hugmynd um að
nokkuð óvenjulegt væri að gerast.
Við höfðum oft rætt það mál, hvort mögulegt væri,
að lifandi menn, sálir lifandi jarðneskra manna gætu
tekið stjórn á miðlinum, meðan hann væri í trans. Ein-
hverju sinni spurði ég föður Lucerne um það. Hann kvað
það vera sjálfsagt en þó hugsanlegt að sá jarðneskur
maður mundi geta það.sem væri leikinn í að fara úr jarð-
neska líkamanum og starfa í hinum andlega. Hann
hélt að sá maður, sem sjálfur væri trans-miðill mundi
eiga auðveldara með en aðrir menn, að fara úr lík-
amanum og taka stjórn á líkama annars miðils, sem
væri í transsvefni.
Okkur kom nú saman um, að ungfrú Forest. vinstúlka
okkar, sem var miðill, skyldi gera tilraun til að koma