Morgunn - 01.12.1942, Blaðsíða 46
172
MORGUNN
og mér var það mikið kappsmál, að hún gerði það. Samt
liðu mánuðir án þess að henni gæfist tækifæri, en loks
kom hún á þeirri stundu, sem enginn af okkur bjóst
við henni.
Við vorum saman kominn, fámennur hópur, og einn
eða tveir gestir frá ósýnilega heiminum höfðu heim-
sótt okkur í gegn um ungfrú Rose. Skyndilega var breytt
um stjórn á ungfrú Rose, hún rétti hendurnar í áttina til
frú Fair, nefndi nafnið W. (sem hún var vön að ávarpa
ungfrú Forest með), og nefndi auk þess nöfn tveggja
manna, sem hún kvaðst vera stödd með á þessari stundu,
Og báð frú Fair að segja mér, að sér hefði heppnazt til-
raunin. Við skrifuðum henni, hvað gerzt hefði hjá okk-
ur og hún svaraði okkur því, að hún hefði verið að gera
tilraun með að koma í gegn hjá ungfrú Rose, hún lýsti
herberginu, sem við hefðum setið saman í, og sumu af
fólkinu, sem viðstatt var, en hún sagðist ekki hafa getað
fundið mig, sem hún hefði þó sérstaklega ætlað að tala
við, hún hefði ekki getað séð mig því að einhver annar
hefði skyggt á mig. Hún var ákaflega glöð yfir að við
hefðum þekkt hana. Hún var ekki viss um, að hve miklu
leyti sér hefði heppnazt tilraunin og sagði að sér hefði
fundizt hún vera að tala í gegn um einhvern undar-
legan munn, sem hefði verið stirður og óþjáll.
Fáeinum mánuðum síðar kom ungfrú Forest (sem enn
var fjarlæg) aftur óvænt í gegn hjá ungfrú Rose og
kom þar fram skilaboðum, sem sögðu fyrir verknað,
sem okkur fannst ákaflega ólíklegt að ungfrú Forest
mundi drýgja. Við lögðum satt að segja ekki mikinn
trúnað á þessa orðsending, vegna þess hve innihald
hennar var ólíklegt, en þegar atburður rættist nákvæm-
lega stuttu síðar, minntumst við þess, sem okkur hafði
verið sagt fyrir, skýrum orðum.
f tvö önnur skipti var það bersýnilegt, að í trans-
inum var ungfrú Rose stjórnað af lifandi, jarðneskum
persónum. Hún og frú Fair voru nýkomnar heim frá