Morgunn


Morgunn - 01.12.1942, Page 50

Morgunn - 01.12.1942, Page 50
176 MORGUNN yfir því að hafa ekki getað farið þessa ferð, áður en hún fór frá Englandi, en sagðist mundu verða með þeim á leiðinni og hjálpa þeim við starfið eins og henni væri unnt. Hún minntist á eiginmann sinn og á hvað hún væri að aðhafast í Tasmania, bað fyrir skilaboð til ýmissa vina sinna og þ. á. m. sérlega eftirtektarverða orð- sending til miðilsins, ungfrú Rose, sem hún átti að fá þegar hún vaknaði af transinum. Allt þetta samtal bar ljóslifandi einkenni frú Fair, og þar sem þetta gerðist um miðjan dag hér í Englandi, eru allar líkur til þess, að sjálf hafi hún verið sofandi suður í Ástralíu, er þetta gerðist og þá verður skiljanlegra hversu auðvelt henni veittist að stjórna miðlinum. Við höfum (þegar þetta er ritað) enn ekki haft tíma til að fá vitneskju frá henni, sunnan frá Ástralíu, um, hvort hún hafi sjálf verið sér meðvitandi um það, sem hún var að gera. Sennilegt er að svo muni ekki hafa verið, þar sem henni var að sjálf- sögðu alveg ókunnugt um þetta ferðalag vinkvenna sinna, en hinn mikli áhugi anda hennar fyrir því, að þetta verk væri unnið, leiddi hann heim til Englands þar sem verið var að leysa verkið af hendi. Týnd og fundin skjöl o. fl Eftir Margery Lawrence1). Nákominn og kær ættingi minn hafði orðið bráð-1 kvaddur og ég var stödd hjá ekkju hans og var að reyna til að létta henni áfallið. Útförin var nýlega um garð gengin og lögfræðingar voru að gera leit að áríðandi skjölum, en hafði enn ekki tekizt að finna þau, og höfðu 1) Nafnkunnur skáldsagnahöfundur og miðill.

x

Morgunn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.