Morgunn


Morgunn - 01.12.1942, Side 51

Morgunn - 01.12.1942, Side 51
MO RG UNN 177 þeir af því allmikla áhyggju, því að það skipti ekki litlu máli fyrir hag ekkjunnar, að þessi skjöl fyndust. Hún var fallin í svefn, þegar ég fór frá henni, og ég hafði farið mjög snemma að hátta. Ég lá þó vak- andi og var að brjóta heilann um, hvar skjölin gætu verið. Þá sá ég allt í einu við fótagaflinn á rúmi mínu koma skyndilega í ljós lýsandi mannsmynd gegnum myrkrið í herberginu, rétt eins og einhver væri með lýsandi ritblý að draga upp ummálsdrætti mannsmynd- arinnar á myrkurvegginn. Meðan ég lá og starði á þessa drætti myndaðist upp úr þeim nákvæmlega andlit frænda míns, þangað til ég sá hann eins ljóslifandi og í lifanda lífi; var sá einn munur, að eins og hann stóð þarna fyrir mér, voru þess- ir lýsandi drættir eins og litblik (aura) hans, er lukti um hann allan. Innri heyrn. Þetta kom of flatt upp á mig til þess að ég yrði hrædd, og þegar hann nú tók til máls, heyrði ég og þekkti málróm hans, þótt ég gæti ekki þá né geti heldur nú sagt, hvort ég heyrði það með líkamlegu eyra, eða einhvers konar innri heyrn. En hann sagði mér, hvar kassinn mundi finnast, sem skjölin voru geymd í, og bað' mig að skila til konu sinnar kveðju og fullvissa hana um, að honum liði vel og hann væri ánægður, en þá hvarf hann, og allra síðast hvarf blik- röndin, sem umlukti hann glampandi í myrkrinu. Það dátt alveg ofan yfir lögfræðingana daginn eftir, þegar ég símaði til þeirra og tilgreindi staðinn, þar sem skjölin lolcsins fundust, nákvæmlega þar sem andinn hafði sagt, að þau mundu vera, í skáp, sem stóð sér í skrifstofu þeirra sjálfra bak við stafla af öðrum plögg- um, en ég sagði þeim aldrei, hver hefði stungið upp á að leita þar. En þetta atvik vakti hjá mér mikla undrun og um- hugsun. Eins og fjöldi annara barna kom ég inn í þennan heim með ákveðinni meðvitund um annan heim og þá 12

x

Morgunn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.