Morgunn


Morgunn - 01.12.1942, Side 52

Morgunn - 01.12.1942, Side 52
178 MORGUNN sem þar bjuggu. En þegar ég varð eldri og varð þess vör, að hinir fullorðnu, sem ég í sakleysi sagði frá því, sem ég sá og heyrði, hlógu að mér eða sögðu blátt áfram að ég væri að skrökva, þá lærði ég brátt að tala ekki neitt um kynni mín af öðrum heimi. Og þegar ég varð enn þá eldri og fór að hugsa um annað, skraut og skemmtanir, þá hvarf hjá mér um stund þessi sálræni hæfileiki bernskuáranna, eins og svo oft kemur fyrir, og hann kom ekki í Ijós aftur fyrr en þessi óvænti og undarlegi atburður kom fyrir mig. Þetta sannar, ályktaði ég, að einhvers staðar og ein- hvern veginn er þessi maður enn lifandi. Hann lifir enn og elskar og hugsar um líðan konu sinnar, er enn að reyna til að vera í sambandi við oss, hann er með öðr- um orðum eins og hann ætíð hefir verið, lifir enn þrótt- góðu lífi — einhvers staðar. Ég ásetti mér þá, að reyna til að komast að, hvað hann starfaði og hvar hann væri, því að einhvern tíma mundi ég eiga að vera í sama heimi og hann, og ég þori að sverja, að ég hefi lært mikið um þennan heim fyrir áhuga minn á spiritismanum, þó að fjölda margir segi, að enginn viti hvernig annar heimur sé og hvað sé þar að hafzt. Sú staðhæfing er ekki annað en staðleysa, því að margs konar vitneskja hefir fengizt um það í ýmsum atriðum. Efasemdir á miðilsfundi. Ég tók einu sinni vinkonu mína, fremur efagjarna (ég nefni hana Leilu S.) með mér á fund hjá nafnkunnum miðli. Þar fór fram mjög merkileg samræða við ýmsar verur, sem sögðu henni margt um hana sjálfa, sögu he.nnar, ættingja og ýmis- legt annað. En Leila tók því öllu með yfirlætislegu brosi, því að hún hafði áður sagt mér, að hún héldi, að hvað sem sér yrði sagt, þá mundi það vera „tekið úr huga hennar sjálfrar" með huglestrargáfu miðlisins. En sú liugmynd er algengasta aðferðin til að skýra og tor- tryggja gáfu miðlanna. En ég held, að ef þessi ná-

x

Morgunn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.