Morgunn


Morgunn - 01.12.1942, Page 55

Morgunn - 01.12.1942, Page 55
M O R G U N N 181 hér er of langt að skýra frá), og hann var áfjáður um, að við segðum konu hans hið sanna um hvernig það hafði atvikazt. Ég gerði það, en þó hikandi, því að mér er kunnugt, að slík bréf koma mörgum meira eða minna éþægilega. En hún ritaði mér mjög elskulegt bréf og sagði, að það hefði verið sér ósegjanleg gleði, og hugarléttir, að fá handan að staðfestingu á því, sem hún hafði sjálf ætíð talið víst, að maður hennar hefði ekki sjálfur vald- ið dauða sínum, þótt svo hefði getað litið út. Hér geta enn allir séð, að engin fjarskynjun getur komizt að. Enn vil ég segja frá einum merkilegum atburði, sem hefir komið fyrir mig. Ung stúlka kom í gegn, sem sagðist heita Nóra. Hún sagðist fyrir hér um bil átta árum hafa dáið af hjartaslagi, að eins 15 ára gömul, eftir að hún hafði verið á knattleik í skólanum, sem hún Var í, og nefndi bæði skólann og forstöðukonuna. Þar sem ekki var lengra um liðið síðan hún dó, gerði ég ráð fyrir, að sama forstöðukona mundi enn vera við skólann, er var kunnur stúlkna skóli. Ég skrifaði henni því kurteist og gætilegt bréf, til þess að reyna að kom- ast eftir, hvort frásögn stúlkunnar væri rétt. En eins og ég hálfgert hafði búizt við, fékk ég kuldalegt svar. Hún sagði. að þar sem ég væri ekki neinn ættingi þess- arrar stúlku. hefði hún ekki ástæðu til að segja mér neitt um hana eða hvernig hún hefði dáið. En það vildi svo vel til, að skömmu seinna hitti ég vinkonu, sem hafði átt þar heima og þekkti fjölskylduria, og hún komst að því fyrir mig, að sagan var alveg sönn. Enginn huglestur. Hér gat enn engin vitneskja verið lesin úr huga neins, sem var á fundinum. Þetta barn, skóli hennar og forstöðukonan voru okkur öllum al- gerlega ókunn. Ég hefi valið þessar sögur sérstaklega af mörgum, sem ég gæti sagt, vegna þess, að þeim er þetta sam-

x

Morgunn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.