Morgunn


Morgunn - 01.12.1942, Page 77

Morgunn - 01.12.1942, Page 77
MORGUNN 203 Vitanlega er hér um að ræða ýmsar lindir, sem allar koma frá hinni einu allsherjar uppsprettu, vitanlega er það kærleikur hins eina föður alls lífs, sem hjálpar framliðnum vinum vorum hinu megin grafarinnai', en sá kærleikur streymir til þeirra í gegn um starf engla og anda, sem náð hafa þeirri fullkomnun, að þeir geta verið hreinn farvegur fyrir sístreymandi elfu hins mikla kærleika, sem Guð er stöðugt að veita frá sér yfir heim- ana til allra, sem vilja þiggja. Þannig er í rauninni allt þetta heilaga verk Guðs verk, en til þess að framkvæma vilja sinn notar hann hina háu í þjónustu hinna lágu. Og hvað er það annað en þetta, sem heil. Ritning er að kenna oss, þegar segir um hina ósýnilegu hjálpendur í texta mínum: „Eru þeir ekki allir þjónustubundnir andar, út sendir í þeirra þarf- ir, sem hjálpræðið eiga að erfa“. (Hebr. 1, 14.). Enn fremur eru í Nýa testamentinu nokkur ummæli Jesú sjálfs, þar sem hann talar um það, að englarnir séu sendiboðar Guðs, sem framkvæmi vilja hans. Þannig kennir Ritningin sjálf oss, að Guð stjórni heiminum ekki beint, heldur með englum og öndum sem milliliðum. Ef menn aðhyllast ekki þetta, verða þeir að gera sér ljóst, að þarna eru þeir í andstöðu við sjálfan höfund krist- innar trúar. Þetta er forn-kirkjuleg trú, en þetta er einnig í sér-1 stökum skilningi skýlaus reynsluþekking margra nú- tímamanna. Ég hygg það vissulega vera svo um lang- flesta þá, sem eru að reyna að rannsaka þessa hluti með hjálp þeirra, sem sálrænum gáfum eru gæddir, — og engin önnur leið er til, til þess að kynna sér þessa hluti af eigin reynd — að þeirra stórfelldasta og dásamlegasta undrunarefni sé einmitt það, að fá að kynnast því ofur- magni kærleikans, þeim innileik ástúðarinnar og þeirri þrautseigju þolinmæðinnar, sem þeir sýna þessir ,,þjón-i ustubundnu andar“ í afskiptum sínum af deyjandi fólki og nýdánu. En þeirrar elsku, sem er langlunduð og þol-

x

Morgunn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.