Morgunn - 01.12.1942, Side 78
204
M 0 R G U N N
inmóð, er þeim mikil þörf, svo örðugt er oft þeirra
heilaga verk. Árum og áratugum saman vinna þeir sín
kyrrlátu líknarstörf í sambandi við jarðneska menn, án
þess, að þeir krefjist svo mikilla launa, hvað þá meira,
að þeir segi til nafns síns.
Fyrir nokkrum árum birti tímaritið Morgunn þýðing
af lítilli bók eftir enska ágætiskonu, sem um langt
skeið starfaði sem hjúkrunarkona. Séra Haraldur
kynntist þessari konu og fannst mikið til um hana, vegna
göfuglyndis hennar og mikilla mannkosta. I starfi sínu
fyrir deyjandi fólk varð þessi ágætiskona fyrir merki-
legri reynslu um þjónustu ósýnilegra hjálpenda við þá,
sem eru að flytjast yfir landamærin, og mig langar til
að lesa yður eina af þessum frásögnum frúarinnar, enda
þótt einhverjir yðar kunni að hafa heyrt hana eða
lesið fyrr:
„Af öllum þeim andlátum, sem ég hefi verið viðstödd,
er andlát frú L . . .. ein af mínum dýrmætustu endur-
minningum frá hjúkrunarstarfinu. Frú L. var nafnkunn
söngkona, hún var góð kona og með afbrigðum elsku-
leg í allri umgengni. Hún þjáðist af ólæknandi innvort-
is sjúkdómi. í 24 klukkustundir hefir hún verið svo veik,
að hún gat ekki meira en hvíslað og alls ekki sezt upp í
rúmi sínu. Ég fór nú að sjá tvo engla. Þeir biðu sín
hvoru megin við rúmið hennar og ég vissi, að þeir voru
komnir til þess að flytja sál hennar inn á annað lífs-
svið, þar sem friður ríkir og fögnuður og þjáningarnar
þekkjast ekki. Ég bjóst við því á hverju augnabliki,
að sjá nýja líkamann hennar uppi yfir útslitna líkam-
anum í rúminu. Skyndilega opnaði hún fallegu augun
sín. Hún gaf enga bending um, að hún þekkti englana,
en hún reis upp í rúminu, andlitið ljómaði af fögnuði og
hún söng frá upphafi til enda hinn mikilfenglega lof-
söng, Hvíl þig í drottni. Röddin hennar hljómaði hrein
og sterk, eins og þegar fólk hafði hlustað hugfangið á
hana í tónleikasölunum á liðnum árum. Það er gott til