Morgunn


Morgunn - 01.12.1942, Side 82

Morgunn - 01.12.1942, Side 82
208 MO RG UNN legu hjarta. Hann, sem er „kóngur englanna", mun láta þegna sína veita oss þjónustu, því að hann er þar eins og hér að leita að hinu týnda, unz hann finnur.' „Eru þeir ekki allir þjónustubundnir andar?“ segir Hebreabréfið um englana, og enn segir séra Hallgrím- ur: „Þeir góðu andar oss eru nær“, og enn hefir reynsla þúsunda og aftur þúsunda staðfest þessi dýrlegu sann- indi, og staðfestir þau enn í dag. Þeirra vernd hefir faðir lífs þíns, áranna og eilífðarinnar Guð, falið þig þegar í þessu lífi, og þeirra vernd hefir hann falið þá blessuðu vini, sem þú saknaðir fyrr með sárum trega og minnist nú með þakklæti og blessunarbænum í kvöld. Dýrð sé góðum Guði í hæstum hæðum! Til kaupenda Útgefendur MORGUNS verða að biðja kaupendur og lesendur velvirðingar á ]>ví, að þrátt fyrir nokkra verShœkkun á ritijiu hefir útgáfukostnaður aukizt svo niiklu meira, að ekki reyndist annað unnt en að stytta ritið á síðustu stundu um tvær arkir, 32 bls. Þess vegna verður ýmislegt að bíða, sem í ritið átti að fara að þessu sinni, svo sem hinar venjulegu niðurlagsgreinar ritstj. „Á víð og dreif“, og ekki síður ritdómar um tvær merkar bækur um sálræn efni, sem út hafa komið hér á liðnu ári, bókina um Indriða miðil, sem mjög mikið hefir verið keypt og kannske vnkið meira umtal en nokkur önnnur bók, sem út hefir komið á árinu, og ennfremur þýðing Hallgríms Jónssonar á bókinni „Bláa eyjan“, sem miklar vinsældir hefir hlotið víða um lönd meðal þeirra, sem sálrænar bækur kaupa. — Þé hefir orðið sá dráttur á útkomu þessa lieftis MORGUNS, sem ónjákvæmilegur reyndist vegna hins mikla ann- ríkis í prentsmiðjunum. Á öllu þessu biðja útgefendur velvirðingar, og vænta þess, aö kaupendur MORGUNS sjái, a'ö þær orsakir eru hér að verki, sem ekki var unnt að ráða við. Útcjef.

x

Morgunn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.