Morgunn - 01.12.1972, Blaðsíða 23
MIÐILSFUNDIR
101
þess starfs og boðskapar, er átti sína undursamlegu þungamiðju
á Golgata, en einmitt með þessu fyrirbrigði, — að margir
framliðnir menn birtust?------ Hinir sannfærðu andahyggju-
menn hafa rétt fyrir sér: Andahyggjan er i eðli sínu andlegt
hjálpræðismál, og er vígð og helguð af sjálfum höfundi kristin-
dómsins. Miðilsfundi á þvi ekki að halda i kæruleysislegum og
þyrkingslegum gagnrýnianda, heldur í lotningaranda og með
þeirri virðingu, sem andahyggjunni ber. En hinir sannfærðu
andahyggjumenn mega ekki gleyma því, að til eru aðrir menn,
sem þarfnast sannana, og sambandsfundum þarf því að korna
þann veg fyrir, vegna slíkra manna, að þeim gefist kostur á að
afla sér þeirra sannana, er þeir þarfnast. Að mínum dómi er að
mörgu leyti hagkvæmast og heppilegast, að þessir tveir flokkar
Manna, er vér höfum athugað um hrið, starfi sem mest saman
i bróðurlegri einingu. Myndu báðir græða á þeirri samvinnu
og andahyggjan fengi þar sterkt vígi, sem öruggt væri gegn
öllum árásum.
Komum vér þá að þriðja flokkinum. Honum teljast þeir
menn, sem einungis sækja miðilsfundi af forvitni. Þeim finnst
það eiginlega tilheyra almennri menntun nútímans að hafa
einhvern tíma verið á miðilsfundi, og er það alls ekki svo fjarri
sanni. Þessir menn verða oft fyrir vonbrigðum. Þeir gera sér oft
fyrirfram rangar hugmyndir um miðilsfundi og sambandið við
annan heim yfirleitt. Þeir hafa oft litla þekkingu á þessu máli, og
gera sér alls ekki Ijóst, hve mörgum og miklum erfiðleikum
það ennþá er bundið að komast i samband við framliðna menn.
Málið er ennþá alltof víða aðeins á tilraunastigi, eins og reynd-
ar mörg, ef til vill flest, visindi eru. Oft gæta þessir menn þess
ekki heldur, að tiltölulega mjög lítils er venjulega að vænta af
einum einasta miðilsfundi, og að verulega merkilegur árangur
af þessu starfi fæst sjaldan fyn- en eftir marga fundi, þar sem
allt hefur farið fram með skipulögðum hætti og nákvæmum at-
hugunum liafi verið beitt. Og þarf þá bæði á mikilli dómgreind
°g mikilli Jiolinmæði að halda. Enginn þarf að búast við því,
að á fyrsta miðilsfundi sem hann situr, gerist mjög mikil tákn
°g stórmerki, að himnarnir opnist skyndilega og einhver Ja-