Morgunn - 01.12.1972, Page 56
134
MORGUNN
Vitundarsvið venjulegs meðalmanns er afmarkað með merki-
linu innan marka persónuleikans, en utan línunnar tekur við
hið dulvitaða svið persónuleikans.
Þegar fólk tekur að iðka hugleiðslu kemur oft ýmislegt dul-
vitað inn á svið vitundarinnar, sem vert er að taka eftir, en ekki
dvelja við, heldur sigla ótrautt áfram í átt til hinna alheims-
legu vitundarþátta. Það er mikilvægt að skilja, að markmið
hugleiðslu er ekki að bæla eða binda starfsemi hugans, heldur
kyrra hann; þannig, að hann verði eins og sléttur spegill og
endurspegli hinar hærri alheimslegu vitundarvíddir.
Mikilvægt er að athuga, að þessar vitundarvíddir eru hver
inn i annari: sú 7. inn í öllum, 6. inni í öllum, nema þeirri sjö-
undu o.s.frv. Þróun og næmleiki heilans er svo ákvarðandi fyrir
meðvitaða upplifun vitundarviddanna.
Ekki er hér pláss til þess að rekja hinar athyglisverðu spurn-
ingar, sem Geir Viðar lagði fyrir samræðumenn sína i þessum
sjónvarpsþætti, enda voru þeir Þorhjörn prófessor og Snorri
læknir yfirleitt ákaflega varkárir í svörum; einkanlega prófess-
orinn. Ekki andmælti hann þó þeim skoðunum, sem fram hafa
komiðhjá öðrum vísindamönnum í þessum efnum og stjórnandi
vildi fá ræddar, en hélt sig nær eingöngu við það að útskýra
hverju sinni hvað teldist til hinnar hefðbundnu eðlisfræði. Pró-
fessorinn var yfirleitt seinn til svara og ákaflega varkár. Svip-
að má segja um afstöðu Snorra læknis, en hann gekk þó að því
leyti lengra en Þorbjörn, að hann játaði, að full ástæða væri til
þess að rannsaka öll þessi fyrirbrigði nánar. Taldi hann hins
vegar, að í mörgum tilfellum ætti eigin gróðrarmáttur líkamans
til sjálfslækningar meiri þátt í lækningunni, en látið væri í
veðri vaka. Yfirleitt virtist hann jákvæðari en prófessor Þor-
björn. Það var hins vegar ekki komið að tómum kofunum hjá
Ólafi Tryggvasyni. Hann var flugmælskur og nefndi mörg at-
hyglisverð dæmi um góðan árangur huglækninga sinna. Þegar
talið berst að hinum athyglisverðu hæfileikum hans, er hann þó
auðmjúkur í anda og telur sig einungis vera verkfæri æðri mátt-
arvalda. En hvaðan sem kraftur hans annars er kominn, verður
hinu ekki neitað, að honum hefur tekizt að lækna fólk, sem