Morgunn - 01.12.1972, Blaðsíða 60
138
MORGUNN
2) Huglækningar: tJtbúinn hefur verið spurningalisti í yf-
ir í sjötiu liðum, sem byrjað er að leggja fyrir íslenzka og er-
lenda huglækna til könnunar á þeim fyrirbrigðmn, sem hug-
læknar telja að gerist í sambandi við starfsemi sína.
Er ætlunin að leggja þetta safn spurninga fyrir alla finnan-
lega íslenzka huglækna, en þeir eru sennilega milli 20 og 30
að tölu. Einnig er unnið að því að finná hlutlægar, lífeðlis-
legar stærðir, sem gefið gætu nánari upplýsingar um eðli hug-
lækninga og hafa mælingar á heilabylgjum, öndun og á raf-
magnsútgeislan frá höndum (Kirlian ljósmyndun) gefið til
kynna athyglisverðar breytingar.
Hluti af niðurstöðum hefur þegar verið birtur í 70 mín.
sjónvarpsþætti um huglækningar, sem sendur var út 17. októ-
ber 1972.
<
3) Skyggni: Unnið hefur verið að athugun á skynjun lit-
fyrirbrigða, bliks eða áru, í kringum fólk og verið er að kanna
möguleika rússneskrar hátíðni- og háspenni-ljósmyndatækni,
Kirlian ljósmyndun, sem virðist gera ljósfyrirbrigði ekki ósvip-
uð svokölluðu bliki öllum sýnileg'. Þessar athuganir eru á byrj-
unarstigi.
4) Þróun menntamála: Stöðugt er unnið að upplýsinga-
söfnun í sambandi við þróun menntamála og hafa niðurstöður
m.a. leitt til þess að við höfum farið þess á leit við menntamála-
ráðuneytið, að sjálfsþekking verði tekin upp, sem eitt af mark-
miðum grunnskóla og þar með, að sjálfsþekking verði ein af
námsgreinum skyldunámsins.
5) Sállyf: Safnað er upplýsingum um lyf, sem hafa sálræn
áhrif og leitað er að leiðum, til þess að draga úr misnotkun
lyfja. Koma þar einkum til greina hinar ýmsu leiðir, sem
nefndar voru í lið 1) Viljastjórn vitundar, en slíkar leiðir geta
í mörgum tilfellum komið í staðinn fyrir lyf að nokkru eða
inu Sállyf, notkun þeirra og misnotkun og var send til ýmissa
einkaaðila og opinberra stofnana, sem síðan verður leitað álits
hjá, þegar kemur að endurskoðun og útgáfu skýrslunnar. Styrk-
beiðnir varðandi verkefnið voru einnig sendar og barst jákvætt