Morgunn - 01.12.1972, Page 63
VIÐTAL
VIÐ HAFSTEIN BJÖRNSSON
1 hvert sinn sem það spyrst að yfirskilvitleg fyrirbæri hafi
verið tekin til rannsóknar á vísindalegum grundvelli, fagna
sálarrannsóknamenn slíkum fréttum. Eðlilega höfum við eink-
um vænzt áhuga á þessum efnum af hinum háskólamenntuðu
sálfræðingum. En meðan íslenzkir sálfræðingar lýsa því jafn-
vel yfir í fjölmiðlum, að sálin sé ekki til, getur varla verið mik-
ils að vænta úr þeirri átt. Ekki ber þó svo að skilja, að þeir hafi
allir svo fáránlegar hugmyndir, að telja það ekki til, sem þeir
þó kenna sig við. En það þarf oft þrek til þess að segja
sannleikann. Sérstaklega meðan hann er ekki enn viðurkennd-
ur af akademiskri rétttrúnaðarstefnu. Eins og prófessor Harald
Schjelderup hefur bent á, þá voru dulræn eða dularsálfræðileg
fyrirbæri í upphafi gerð útlæg af hinni almennu, akademisku
sálfraiði og hafa síðan ekki átt afturkvæmt í vanabundinn hug-
takaheim þeirra fræða.
Það hlýtur því að vera öllum viðsýnum Islendingum fagn-
aðarefni að komið hafa fram tveir ungir, hámenntaðir sálfræð-
ingar á íslandi, sem dirfast að rannsaka þessi fyrirbæri for-
dómalaust á vísindalegan hátt. En það eru þeir dr. Erlendur
Haraldsson og Geir Viðar Vilhjálmsson.
Er hér á öðrum stað í tímaritinu gerð grein fyrir vettvangi
hins siðarnefnda, en dr. Erlendur hefur þegar hafið ítarlegar
rannsóknir á hinum miklu og einstæðu hæfileikum Hafsteins
Bjömssonar.
Hefur hann þegar setið yfir fimmtíu fundi með Hafsteini
hér á landi og hefur lofað Morgni fréttum af niðurstöðum
þeirra rannsókna, þegar úr þeim hefur verið unnið.
Þegar þetta er skrifað er dr. Erlendur við rannsóknir á Ind-