Morgunn - 01.12.1972, Blaðsíða 78
156
MORGUNN
sé farið og jafnan beitt til skýringa hinum ágætu myndum,
sem prýða þetta rit, og eru margir þeirra i litum.
Helztu niðurstöður heimsmyndar Martinusar eru þessar:
Lifið er eilíft. Æð9ta markmið lífsins er kærleiksboðið ElskiÖ
hver annan. Allt er líf umlukt lífi. Vegur lífsins liggur í ótelj-
andi lífsgervum um fjölbreytt tilverusvið, allt frá dimmum,
köldum hnöttum til heitra og sólbjartra veralda.
öllum góðum ritum, sem sýna viðleitni til þess að sanna
kærleikskenningar Krists ber að taka tveim höndum. Þess
vegna fagna ég því, að rit Martinusar birtist á íslenzku.
Þýðandinn, Þorsteinn Halldórsson, hefur leyst hið vanda-
sama verk sitt vel af hendi.
Jack Harrison Pcllack:
HUGStNIR GERARDS CROISETS.
Þýðandi: Ævar R. Kvaran.
Útgefandi: Vikurútgcáfan.
Það er eiginlega athygli vert að þeir tveir menn, þeirra sem
nú eru uppi og magnaðasta hafa ófreskigáfu, eru báðir Hol-
lendingar. Árið 1943 var ósköp venjulegur húsamálari að mála
skólabyggingu, skammt frá borginni Haag. Honum skrikaði
fótur í þrjátíu og sex feta háum stiga, féll til jarðar og skadd-
aðist á höfði.
Þrem dögum eftir þetta slys vaknaði hann til meðvitundar í
stofu 3 í Zuiwal-sjúkrahúsinu i Haag. í næsta rúmi við hann
lá kaupmaður nokkur Aard Camberg að nafni.
„Þér eruð ljóti karlinn," sagði húsamálarinn við hann.
„Nú, hvers vegna?" spurði hinn undrandi.
„Þegar faðir yðar lézt fyrir skömmu, arfleiddi hann yður að
gullúri, og nú eruð þér búinn að selja það!“
Þetta reyndist hverju orði sannara. Og ekki var húsamálar-
inn, Pétur Hurkos, síður undrandi á því, hvernig liann vissi
þetta, en kaupmaðurinn. Pétur Hurkos er löngu orðinn heims-
frægur fyrir að leysa ótrúlegustu vandamál fyrir atbeina
skyggni sinnar. Kom hann til dæmis við sögu i sambandi við