Morgunn - 01.06.1983, Side 25
23
HEIMILDIR ,,AÐ HANDAN“
Nei, ekki enn.
Ekki enn og bráðum kominn maí! Mér þykir þú vinda
bráðan bug að brottför þinni í önnur lönd. ...
Veit Ragnheiður um þessa fyrirætlun þína?
Daði vill ekki ljúga aftur frá rótum.“ K. 352—53.
Guörún: „Ég er þegar í sumar að fara af landi burt.
Heigull, sem ekki þorir að standa fyrir máli sinu, ætlar
að flýja. Veit faðir þinn um það?
Ég hef ekki enn minnst á það við föður minn, meistari
Brynjólfur, en þú veist ,að Árni bróðir minn sigldi, og það
hefir alltaf staðið til, að ég sigldi líka ...
Veit Ragnheiður mín um það, að þú ert að sigla?
Nú er Daði í vanda staddur.11 G. 144—45.
17. Klæðiiaður Ragnheiðar fyrir eiðinn
Kamban (lýsing mjög stytt): „Jómfrú Ragnheiður . . .
búin rauðgullnu atlaski. Kjóllinn er í tveimur hlutum .. .
herbergismærin er að . . . hneppa á kjólinn ermarnar, sem
eru mjög gagnskornar, . . . skyrtan með háum, mosgráum
ermaknipplingum nýtur sín að fullu. Yfir herðum stór
knipplingakragi í sama iit. Treyjan er reimuð að framan
. . . með fimm gylltum silfurspennum með kornsettu víra-
virki. . . . Sokkar hennar eru af silki, rauðgullnir eins og
kjóllinn, en litblærinn ekki alveg hinn sami, . . . kordúnu-
skór, svartir með silfurrósettum. Hár hennar ... skipt í
miðju og fellur þykkt, rauðjarpt og liðað niður á brjóstið
og endar báðum megin í þríhyrningi, mjög reglulega og
haglega bundinn svai’tri flauelslauf." K. 363—64.
GuÖrún: „Steinunn Finnsdóttir kemur inn og tekur til
að klæða Ragnheiði. Hún klæðir hana í rauðan satínkjól
með fínum knipplingum og víravirki að framan. Hár henn-
ar er skipt í miðju og látið falla fram. I það eru settar
svartar slaufur. Hún setur á sig fallega skó, svarta, en hún
er í rauðum sokkum við hinn rauða kjól.“ G. 205.