Fréttablaðið - 05.11.2010, Blaðsíða 4

Fréttablaðið - 05.11.2010, Blaðsíða 4
4 5. nóvember 2010 FÖSTUDAGUR Mynd af unglingum sem var notuð sem myndskreyting með frétt um hagi norrænna ungmenna, og birtist í Fréttablaðinu á laugardag, tengist ekki efni fréttarinnar. Myndin var tekin af öðru tilefni. Hlutaðeigandi eru beðnir velvirðingar. ÁRÉTTTING Vegna rangra upplýsinga frá Þjóð- leikhúsinu birtist rangt nafn við frétt um annan af höfundum tónlistar- innar við leikritið Lé konung. Hið rétta er að Benny Nilsen starfar við sýninguna ásamt Hildi Guðna- dóttur. Beðist er velvirðingar á mistökunum. LEIÐRÉTTINGAR ALÞINGI Sigmundur Davíð Gunn- laugsson, formaður Framsókn- arflokksins, líkti ríkisstjórninni við framvinduna í kvikmyndinni Groundhog Day á þingfundi í gær. Í henni upplifir sögupersónan sama daginn aftur og aftur og ekkert ger- ist. Hann og fleiri gagnrýndu rík- isstjórnina fyrir aðgerðaleysi í brýnustu málum og rukkuðu for- sætisráðherra um stefnu. Voru skuldavandi heimilanna, samráð við stjórnarandstöðuna, atvinnuleysi og atvinnustefnan undir. Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, sagði ríkis- stjórnina verða að gera almenni- lega grein fyrir hvað hún ætlaði að gera fyrir heimilin. Sigmundur Davíð sagði að enn einu sinni væri boðað til samráðs með stjórnarandstöðunni. Það væri sjálfsagt en þá þyrfti ríkisstjórnin að skipta um stefnu. Sigurður Kári Kristjánsson Sjálfstæðisflokki sagði að mæta þyrfti atvinnuleysinu með róttæk- um aðgerðum. Fjöldi tillagna hefði komið fram frá stjórnarandstöðunni og hreyfingum vinnuveitenda og launþega. Ríkisstjórnin hefði hins vegar ekkert fram að færa, en verði kröftum sínum í að skjóta niður til- lögur annarra. Þá sagði hann stjórn- ina svikula og benti á stöðugleika- sáttmálann og stjórn fiskveiða máli sínu til stuðnings. Birkir Jón Jónsson Framsókn- arflokki undraðist að forsætisráð- herra skyldi guma af góðum árangri í efnahagsmálum, raunveruleikinn sýndi annað. Ríkisstjórnin er eins og Groundhog Day Stjórnarandstöðuþingmenn gagnrýna ríkisstjórnina fyrir aðgerðaleysi og rukka hana um aðgerðir fyrir heimilin og fyrirtækin. Forsætisráðherra segir að mikill árangur hafi náðst og skorar á stjórnarandstöðuna að bera upp vantrauststillögu. BIRKIR JÓN JÓNS- SON SIGURÐUR KÁRI KRISTJÁNSSON BJARNI BENEDIKTSSON SIGMUNDUR DAVÍÐ GUNNLAUGSSON Jóhanna Sigurðardóttir sagði margar tillögur á borðinu um aðgerðir fyrir heimilin og í atvinnu- málum. Aðgerðir í skuldamálum yrðu kynntar á mánudag og varð- andi atvinnulífið væru í bígerð stuðningur við nýsköpunarverkefni, vegaframkvæmdir upp á 30 millj- arða, sérstakt atvinnuátak á Suður- nesjum og aðgerðir fyrir atvinnu- lausa. Um efnahagsmálin almennt sagði hún að mikill árangur hefði náðst. Um það vitnuðu erlendir sérfræð- ingar. Ásökunum um svik við stöðug- leikasáttmálann svaraði Jóhanna á þá leið að SA hefði horfið frá honum út af skötusel og ASÍ út af fjármagni í starfsendurhæfingar- sjóð. Lagði hún svo áherslu á mikil- vægi samstarfs stjórnar og stjórn- arandstöðu. bjorn@frettabladid.is „Ef þessi ríkisstjórn er svona ómöguleg eins og stjórnar- andstaðan er að halda fram, af hverju ber hún ekki fram vantraust á þessa ríkisstjórn? Komið þið fram með vantraust á þessa ríkisstjórn. Við skulum sjá hvort hún hafi meirihluta hér á þingi til þess að takast á við þessi viðfangsefni. Ef hún þarf að gera það án stjórnarandstöð- unnar þá skulum við bara láta reyna á það og við skulum þá sjá hvort stjórnarandstaðan er þá annaðhvort tilbúin til að fara í kosningar strax eða taka við.“ Jóhanna Sigurðardóttir á Alþingi í gær Komið þið fram með vantraust! JÓHANNA SIGURÐARDÓTTIR VEÐURSPÁ Alicante Basel Berlín Billund Frankfurt Friedrichshafen Gautaborg Kaupmannahöfn Las Palmas London Mallorca New York Orlando Ósló París San Francisco Stokkhólmur HEIMURINN Vindhraði er í m/s. Hitastig eru í °C. Gildistími korta er um hádegi. 21° 19° 14° 11° 15° 18° 10° 10° 25° 15° 21° 13° 20° 6° 15° 17° 6°Á MORGUN Strekkingur NV-lands, annars hægri. MÁNUDAGUR Gengur í NA hvassviðri þegar á daginn líður. 3 -1 1 231 2 3 1 0 1 4 1 1 0 1 -2 -1 -2 -2 -6 5 4 2 10 4 1 2 2 3 12 4 1 HELGIN Það má búast við éljum um landið sunnanvert í dag en annars verður víða nokkuð bjart og þá sérstaklega á Norðausturlandi. Á morgun þykkn- ar upp vestan til með slyddu þegar líður á daginn og á sunnudaginn geng- ur í norðaustan hvassviðri. Ingibjörg Karlsdóttir veður- fréttamaður Sigfús Eymundsson bóksali teiknaði uppdráttinn að upphaflegri Hótel Valhöll sem reist var á Þingvöll- um árið 1898 en ekki Guðjón Samúelsson eins og sagði í Frétta- blaðinu í gær. Seinna var byggt við hótelið sem flutt var fyrir árið 1930 á þann stað sem það stóð þegar eldsvoði grandaði því í fyrrasumar. SAMFÉLAGSMÁL Dagfinnur Stefáns- son, flugmaður flugvélarinnar Geysis sem fórst á Bárðarbungu árið 1950, keypti fyrsta Neyðar- kall Slysavarnafélagsins Lands- bjargar þegar sala hófst í gær. Kostnaðarsamt ár er að baki hjá björgunarsveitunum og ber þar hæst eldgosið í Eyjafjallajökli og eftirmál skjálftans á Haítí. Ólöf Snæhólm Baldursdóttir upp- lýsingafulltrúi segir í samtali við Vísi að aðgerðirnar hafi útheimt mikinn mannafla og tækjabún- að og skilin hafi verið eftir tæki fyrir fimmtán milljónir króna á Haítí. Neyðarkallinn verður seld- ur um allt land um helgina. - sv Neyðarkallinn kominn í sölu: Flugmaður Geysis fyrstur FYRSTI KALLINN KEYPTUR Flugstjóri Geysis kaupir fyrsta Neyðarkallinn af Slysavarnafélaginu Landsbjörgu í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM NOREGUR Norðmenn og Rússar hafa samið um að opna landa- mæri ríkjanna að hluta. Þetta verður í fyrsta sinn sem ríki innan Schengen-svæðisins opnar landamæri til ríkis sem er ekki aðili að Schengen-landa- mærasamstarfinu. Landamæri ríkjanna verða þó ekki opnuð almennri umferð, heldur fá íbúar á svæðunum næst landamærunum sérstök skilríki sem gera þeim kleift að ferðast á milli að vild. Það voru utanríkisráðherr- ar ríkjanna, þeir Jonas Gahr Støre og Sergei Lavrov, sem undirrituðu samninginn í Osló. - gb Smuga á Schengen: Norðmenn og Rússar opna LÖGREGLUMÁL Karlmaður sem hand- tekinn var í fyrradag vegna rann- sóknar lögreglunnar á höfuðborgar- svæðinu á framleiðslu amfetamíns og kannabis hér landi var í gær úrskurðaður í gæsluvarðhald til 18. nóvember. Fjórir menn sátu fyrir í varðhaldi vegna málsins og voru þeir einnig úrskurðir í áframhald- andi gæslu til sama tíma. Allir eru mennirnir litháískir ríkisborgarar á þrítugs- og fertugsaldri. Fjórir mannanna voru hand- teknir í Reykjavík og Grímsnesi í október. Rannsókn lögreglu snýr að ætlaðri framleiðslu fíkniefna, sölu þeirra og dreifingu. Við hús- leitir var lagt hald á amfetamín og kókaín og mun magn hvorrar teg- undar hafa verið undir kílói. Þá fundust um tvö kíló af mar- ijúana, sem grunur leikur á að mennirnir hafi framleitt. Loks fann lögregla um sex milljónir króna í reiðufé sem er álitið að sé afrakstur fíkniefnasölu. Lögregla tók einnig í sína vörslu ýmis önnur verðmæti sem grunur leikur á að séu, minnsta kosti að hluta, þýfi, svo og tæki sem talin eru tengjast framleiðslu á amfet- amíni og marijúana. Einn mannanna hefur áður komið við sögu hjá lögreglu hér vegna fíkniefnamáls. - jss FYRIR DÓMARA Einn mannanna færður fyrir dómara í gær. FRETTABLADID/STEFAN Gæsluvarðhald hóps litháískra ríkisborgara framlengt: Fimmti maðurinn handtekinn MÓTMÆLI Hátt í sjö hundruð manns á Vestfjörðum hðfðu síð- degis í gær skráð sig í átak á Facebook gegn ríkisstjórninni. Upphafsmaður átaksins, Guð- jón M. Þorsteinsson, vill að Vest- firðingar slökkvi ljós á heimilum sínum og fyrirtækjum í eina mín- útu klukkan sjö í kvöld. „Vest- firðingar. Sýnum samhug í verki. Ríkisstjórnin vill að við flytjum héðan ef marka má vinnubrögð- in,“ segir Guðjón á Facebook-síðu sem hann stofnaði um átakið. - gar Ríkisstjórninni mótmælt: Vestfirðingar slökkva ljósin ÍRLAND Ríkisstjórnin á Írlandi boðar metniðurskurð á næstu árum til þess að koma ríkis- fjármálum í betra horf. Fjárlagahalli verður minnk- aður niður í rúm níu prósent af þjóðarframleiðslu á næsta ári og niður í þrjú prósent á þarnæsta ári. - gb Írska stjórnin í niðurskurð: Hyggst draga hratt úr halla AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS – AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Hendrik Sigurðsson hendrik@frettabladid.is, Guðmundur Steinsson gudmundurs@365.is, Laila Awad laila@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is, Sigmundur Halldórsson sigmundur@frettabladid.is ALLT SÍMI 512-5402: Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is, Henný Árnadóttir henny@365.is, Þórdís Hermannsdóttir thordish@365.is SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5016: Sigríður Hallgrímsdóttir sigridurh@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynurs@365.is, Bjarni Þór Sigurðsson bthor@365.is, Benedikt Freyr Jónsson benediktj@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Sigurlaug Aðalsteinsdóttir sigurlaug@365.is, Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Guðný Gunnlaugsdóttir gunny@365.is GENGIÐ 04.11.2010 GJALDMIÐLAR KAUP SALA HEIMILD: Seðlabanki Íslands 204,8076 GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR 108,52 109,04 175,57 176,43 154,48 155,34 20,719 20,841 18,891 19,003 16,640 16,738 1,3402 1,3480 172,38 173,40 Bandaríkjadalur Sterlingspund Evra Dönsk króna Norsk króna Sænsk króna Japanskt jen SDR
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.